Síða 1 af 5

Mercedes Benz 220SEb Coupé 1965 (W-111) SELDUR

Innsent: 10 Ágú 2006, 10:27
frá Benni
ATH. AÐ ÞESSI BÍLL ER EKKI LENGUR Í MINNI EIGU.
Þráður um bílinn hjá nýjum eiganda:
http://mbclub.is/spjall/viewtopic.php?f ... 5&p=174308" onclick="window.open(this.href);return false;

Hér er að finna upplýsingar um "projectið" mitt:

Um er að ræða 1965 módelið af 220SEb Coupé.

Mér hefur alltaf fundist þetta boddí vera eitt það allra flottasta sem Benz hefur sent frá sér og langaði að eignast eitt eintak. Ekki var verra að það væru mjög fáir svona bílar hér á landi :lol:

Það þarf að gera heilann helling við þennan bíl, fékkst tiltölulega ódýrt vegna hagstæðs gengis en mun að sjálfsögðu kosta sitt að gera hann upp. Vél og kram er þó að mestu leyti í lagi og er bíllinn ökufær þó hann eigi enn dálítið í vandræðum með að fara í gang ("kaldræsibúnaður" er bilaður).
Innréttingin er hins vegar illa farinn og þarf að gera hana alla upp (setja nýtt leður á sæti, skipta um teppi, pússa við o.fl.) sem ég vissi af áður en ég keypti hann.

Ég hef lítið getað gert við bílinn vegna plássleysis, bílskúrinn minn reyndist nefnilega vera frímerki eftir að Benzinn kom inn í hann, var nokkuð stærri en ég hélt :oops:

Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru vorið 2006 þegar ég tók bílinn út "til þess að hreyfa hann aðeins".
Þegar vélin er orðin heit þá gengur hún eins og klukka og sjálfskiptingin svínvirkar :D

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 1_full.jpg[/img]

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 2_full.jpg[/img]

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 3_full.jpg[/img]

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 5_full.jpg[/img]

[img]http://memimage.cardomain.com/member_im ... 4_full.jpg[/img]

Þetta er spennandi verkefni, en bæði tímafrekt og kostnaðarsamt, og þess vegna er þessi bíll er ekki væntanlegur á götuna á næstunni.

Tæknleg lýsing:
Gerð: 220SEb/C / W111 /3
Vél:
2195 ccm línusexa
88 kW / 120 PS hestöfl
Þyngd:
1450 kg
Hröðun 0-100 km/h:
14 sek. (ekki fljótur upp en e.t.v. gott árið 1965 8) )
Hámarkshraði:
171 km

Nánari upplýsingar um þessa gerð er m.a. að finna á:
http://www.w111.net/" onclick="window.open(this.href);return false; og
http://www.heckflosse.nl/" onclick="window.open(this.href);return false;

Innsent: 03 Nóv 2007, 17:10
frá Benzari
Gleymdur en ekki grafinn. (nema kannski í ryki :twisted: )

Glæsilegur bíll Benni, vonandi verður hann svona ljós áfram.

Innsent: 03 Nóv 2007, 18:32
frá Ásgeir Yngvi
Já þessi verður vonandi mættur á götuna eftir nokkur ár ;)

Innsent: 03 Nóv 2007, 23:54
frá Benni
Það er jú von mín að þessi komist aftur á göturnar á næstu árum en að svo komnu máli þá er hann geymdur í "frímerkinu" mínu sem heitir (skv. fasteignamati) bílskúr :shock: :roll:

Innsent: 07 Apr 2008, 13:12
frá messinn
Eitthvað að frétta af þessum?

Innsent: 07 Apr 2008, 13:57
frá Halldór Björn
Glæsilegur bíll og vonandi er hann komin eitthvað áleiðis með bílinn.

Innsent: 07 Apr 2008, 14:23
frá Benni
Nei, það hefur ekkert gerst, aðstöðuleysi og fjölgun í fjölskyldunni gerðu það að verkum að aðeins var búið að vinna í vélinni.
Búinn að skipta um kaldræsiventilinn (gerði það meira að segja sjálfur :lol: ) en það þarf líklega að skipta um eitthvað fleira sem tilheyrir kaldræsingunni.
Synd því að bílinn var bara ansi skemmtilegur í akstri :roll: - og er örugglega enn en vantar bara að fara í gang :?

Það er hugsanlegt að ég muni bara selja gripinn þar sem ég hef ekki aðstöðu til þess að klára hann eins og er og önnur mál eru í forgangi í dag :?

Þetta er samt uppáhaldstýpan mín auk 300SL Gullwing og 600 (W100) svo að það væri alltaf leiðinlegt að sjá á eftir svona eðalgrip.

Innsent: 07 Apr 2008, 15:04
frá messinn
Leiðinlegt að heyra þetta með aðstöðu og tíma en sumt verður að fá að ganga fyrir, þannig er það nú bara.

Ég myndi nú samt bíða með að selja hann og sjá hvort að tími og aðstaða gefist ekki í sumar :wink:

Nú ef ekki þá má þessi bíll ekki fara í rangar hendur! Væri synd og skömm að sjá hann grotna niður fyrir aftan einhvern gám eða í einhverri innkeyrslunni.

Innsent: 07 Apr 2008, 16:20
frá Benni
messinn skrifaði:Leiðinlegt að heyra þetta með aðstöðu og tíma en sumt verður að fá að ganga fyrir, þannig er það nú bara.

Ég myndi nú samt bíða með að selja hann og sjá hvort að tími og aðstaða gefist ekki í sumar :wink:

Nú ef ekki þá má þessi bíll ekki fara í rangar hendur! Væri synd og skömm að sjá hann grotna niður fyrir aftan einhvern gám eða í einhverri innkeyrslunni.
Gaf mér upphaflega 3 ár í þetta project (um að gera að setja sér markmið :wink: )
En hitt er að ég mun aldrei selja hann hverjum sem er, það eru bara 2 önnur eintök af svona bíl til á landinu (svo að ég viti til um). 1 er í uppgerð hjá Rúnari, sem þýðir að hann er nógu smámunasamur til þess að gera það vel :wink: , og 1 sem er búið að standa úti lengi á Grensásveginum. Sá bíll er beinskiptur og því eina slíka eintakið á landinu - og er líklega ónýtur :?

Innsent: 07 Apr 2008, 18:23
frá Ztebbsterinn
Benni skrifaði:

Einmitt :cry: ..var búinn að skoða hann á sýnum tíma..