Síða 1 af 1

w124 320E

Innsent: 30 Okt 2014, 00:10
frá Julíus Brynjar
Kvöldið. Er alveg nýr í þessum benz heimi, en langaði að sýna ykkur gullmolan minn.

Þetta er semsagt 320 bíll 92árg, með öllu því helsta. Svart leður, rafmagn í sætum, Asd læsingu, hita í sætum, topplúgu og margt flr.

Sá sem átti hann var búinn að bjóða mér hann áður og hafnaði ég því án þess að skoða hann, svo bauðst mér hann aftur, áhvað að kikja á hann, og gengum við frá þessu á staðnum, ef þetta er ekki bara besti og þéttasti bíll sem ég hef ekið í gegnum tíðinna, og búinn að aka honum nuna 1.500 km á 2vikum.

Plönin eru einfaldlega að halda þessum við og vera duglegur að bóna, og stoppa þá litlu ryðbletti sem farnir eru að myndast, sem er varla hægt að tala um.

En nóg af masi, hér eru nokkrar myndir.

Re: w124 320E

Innsent: 30 Okt 2014, 00:18
frá Benni
:tumbsup:

Flottur hjá þér. Virðist vera "keeper" m.v. það sem ég sá á samkomunni sl. mánudag :tumbsup2:

Re: w124 320E

Innsent: 30 Okt 2014, 00:23
frá Julíus Brynjar
Benni skrifaði::tumbsup:

Flottur hjá þér. Virðist vera "keeper" m.v. það sem ég sá á samkomunni sl. mánudag :tumbsup2:
Já hann er það blessaður, og ekki skemmir að hann er bara ekinn 229.000km. Skylst að tilkeyrslan sé 300.000 á þessum 124 bílum hehe :tumbsup2:

Re: w124 320E

Innsent: 30 Okt 2014, 12:15
frá Pascalpals
Þessi virðist bara vera mjög ljúfur hjá þér :)

Iss 300 er ekki neitt fyrir þessa bíla :D

Re: w124 320E

Innsent: 30 Okt 2014, 21:50
frá gmg
Flottur til lukku með þennan, w124 eru alltaf svo fallegir sérstaklega svona silfur !

Re: w124 320E

Innsent: 31 Okt 2014, 18:12
frá Julíus Brynjar
Takk fyrir það, já þeir eru það.

En já smá update. Smá uppdate, Fór í dag og ætlaði að láta sjóða í pústið, og endaði á að skipta um kúta (orginal benz) Þannig að eina ryðið sem var undir bílnum er horfið :)

Re: w124 320E

Innsent: 13 Nóv 2014, 03:27
frá Julíus Brynjar
Á eitthvað dökk afturljós handa mér? Annað er bleikt, hitt dökkt.
Tók ekki eftir þessu fyrr en um daginn...