Síða 2 af 3

Re: W124 230E 1992 - NM-050

Innsent: 21 Feb 2014, 00:50
frá Benni
valdi skrifaði:leitt að heyra með heddpakkningarvandann, en vonandi finnst þér það þess virði að laga hann, allavega miðað við myndirnar lítur hann vel út og vel þessvirði hehe :)
Já segðu, boddýið er bara helv... gott ;)

Re: W124 230E 1992 - NM-050

Innsent: 21 Feb 2014, 17:41
frá sveinn
Hann er flottur hjá þér Benni og virðist vera mjög eigulegur :tumbsup2: Það er nú hægt að lenda í vandræðum með nýrri bíla líka.

W124 eru vel smíðaðir bílar, en góð eintök eru orðin fágæt og sennilega stutt í það að menn fari að líta á svoleiðis bíla sem eitthvað til að halda upp á. En fyrst og fremst eru þetta bæði hagkvæmir og frábærir brúksbílar sem eru yfirleitt furðu þéttir í akstri miðað við aldur og fyrri störf :Driverauto:

Re: W124 230E 1992 - NM-050

Innsent: 22 Feb 2014, 02:10
frá valdi
já á einn svona ekinn 407 þúsund á original mótor og skiptingu, fyrir utan að skipting heggur aðeins í gírskiptingum þá er betra að keyra hann á allavegu heldur en 2007 avensis (ekinn 122 þús) sem er í fjölskyldunni :)

Re: W124 230E 1992 - NM-050

Innsent: 09 Maí 2014, 00:56
frá Benni
Jæja, ætli þessi verði ekki bara falur eftir allt :( .....

Re: W124 230E 1992 - NM-050

Innsent: 09 Maí 2014, 20:15
frá JBV
Benni skrifaði:Jæja, ætli þessi verði ekki bara falur eftir allt :( .....
:shock: :shock: Hvað kemur til ? :?

Re: W124 230E 1992 - NM-050

Innsent: 09 Maí 2014, 23:45
frá Benni
JBV skrifaði:
Benni skrifaði:Jæja, ætli þessi verði ekki bara falur eftir allt :( .....
:shock: :shock: Hvað kemur til ? :?
Meira bögg sem ég kann ekkert deili á :(
Hef EKKERT vit á þessu, er ágætur í bóni og þrifum (ef aðstaðan er góð) en hef ekkert vit á viðgerðum. Því miður dugar ekki að endurræsa eins og með tölvurnar ;)

Re: W124 230E 1992 - NM-050

Innsent: 10 Maí 2014, 00:50
frá JBV
Leitt að heyra. Hvernig er lýsingin á þessum kvilla ?

Re: W124 230E 1992 - NM-050

Innsent: 10 Maí 2014, 08:35
frá Benni
JBV skrifaði:Leitt að heyra. Hvernig er lýsingin á þessum kvilla ?
Kvillum.... :(

Re: W124 230E 1992 - NM-050

Innsent: 10 Maí 2014, 10:35
frá JBV
Ok fleirtala. Ekki gott. :(

Re: W124 230E 1992 - NM-050

Innsent: 10 Maí 2014, 17:39
frá Alpina
sveinn skrifaði: Það er nú hægt að lenda í vandræðum með nýrri bíla líka.

W124 eru vel smíðaðir bílar, en góð eintök eru orðin fágæt og sennilega stutt í það að menn fari að líta á svoleiðis bíla sem eitthvað til að halda upp á. En fyrst og fremst eru þetta bæði hagkvæmir og frábærir brúksbílar sem eru yfirleitt furðu þéttir í akstri miðað við aldur og fyrri störf :Driverauto:
BARA sammála :tumbsup2: