Síða 3 af 3
Re: MB 200 W123 1981
Innsent: 26 Ágú 2013, 21:39
frá Benzari
Það er allt annað mál, þeir hnappar eru til staðar.
Re: MB 200 W123 1981
Innsent: 12 Nóv 2013, 20:36
frá Ozeki
Varðandi hæðina, þá féll ég yfir
þessa teikningu af 230E.
Þarna má sjá að hæð frá vegi upp að neðri brún á húddi á að vera sú sama og hæð frá vegi upp að neðri brún á lista á skottloki - 760mm
Ég mældi hjá mér bílinn og átti svona hálfpartinn von á að þurfa að lækka hann að aftan. Það kom mjög á óvart að sjá hann upp á millimeter í réttri hæð að framan og kannski 2mm undir hæð að aftan. Mældur stútfullur af bensíni, stendur á lítið slitnum 175/80R14 sem líklega eru 2-3mm minni í radíus en orginal.
Re: MB 200 W123 1981
Innsent: 13 Nóv 2013, 18:22
frá Ásgeir Örn
Ozeki skrifaði:Varðandi hæðina, þá féll ég yfir
þessa teikningu af 230E.
Þarna má sjá að hæð frá vegi upp að neðri brún á húddi á að vera sú sama og hæð frá vegi upp að neðri brún á lista á skottloki - 760mm
Ég mældi hjá mér bílinn og átti svona hálfpartinn von á að þurfa að lækka hann að aftan. Það kom mjög á óvart að sjá hann upp á millimeter í réttri hæð að framan og kannski 2mm undir hæð að aftan. Mældur stútfullur af bensíni, stendur á lítið slitnum 175/80R14 sem líklega eru 2-3mm minni í radíus en orginal.
Á myndinni stendur að bíllinn þar sé á 175R14. Það er 175/80 R14 þannig hann er voðalega orginal í hæð greinilega!
Re: MB 200 W123 1981
Innsent: 13 Nóv 2013, 19:33
frá Ozeki
Já, þeir komu á 175R14 upphaflega og það er reyndar ónotað varadekk í skottinu af þeirri stærð.
En prófíllinn á dekkjunum á þessum tíma er 82. Þau fást hinsvegar ekki nema á svona fjórföldu verði á við stærðir dagsins í dag. Það má nálga þetta með 175/80, 195/70 eða 195/75
Re: MB 200 W123 1981
Innsent: 04 Des 2013, 21:58
frá Ozeki
Smá update á þennan.
Kominn á álfelgu-gang með nýjum vetrardekkjum. Það var nú eiginlega gert til að ná stálfelgunum undan og mála. Svo eru ný sumardekk á leiðinni frá USA með hvítum hring.
Ég tók svo af honum Y númerið, var ekkert að tengjast því. Setti þetta M númer á hann, það eru sennilega bara Benz hnetur sem átta sig á því hvað er sniðugt við það.
Re: MB 200 W123 1981
Innsent: 04 Des 2013, 22:38
frá JBV
Snilldar númer
Alltaf jafn fallegur þessi

Re: MB 200 W123 1981
Innsent: 05 Des 2013, 00:18
frá sveinn
Flottur bíll og gott númer!

...og vissulega smá nördalegt!

Re: MB 200 W123 1981
Innsent: 05 Des 2013, 20:11
frá Ásgeir Örn
Þetta er rosalega flott númer!
Re: MB 200 W123 1981
Innsent: 08 Des 2013, 11:51
frá gmg
Snilldar númer

Re: MB 200 W123 1981
Innsent: 15 Feb 2014, 18:29
frá Ozeki
Smá skreppitúr á Der Alte
Nýskóaður og fínn.