Síða 1 af 2

Mercedes-Benz E220 # nýjar felgur

Innsent: 25 Mar 2013, 19:22
frá frikkie
Góðann Daginn

Hér er smá þráður um Benzan minn

E220
árg 1993
ekinn 220þús

Bíllinn er gjörsamlega eins og nýr fyrir utan nokkra ryðbletti sem ég þarf að ditta að

hef enginn plön fyrir þennan bíl nema kannski felgur og leðursæti og bara keyra þetta

svo er hann líka á þessum flottu hækkunarklossum :roll:

2 símamyndir kem með betri seinna
ég er alveg virkilega sáttur með þennan bíl svo væri líka fínt ef einhver gæti reddan mér eigendasögu bíllsins

Re: Mercedes-Benz E220

Innsent: 26 Mar 2013, 09:10
frá JBV
Flottur W124. Þessi litur er einn af mínum uppáhalds á 124 línunni. 8)

Re: Mercedes-Benz E220

Innsent: 26 Mar 2013, 19:51
frá frikkie
Þakka þér fyrir ekki veistu nokkuð litanúmerið á þessum lit ?

Re: Mercedes-Benz E220

Innsent: 26 Mar 2013, 21:19
frá JBV
Ég átti eitt sinn svona litan Benz, en hvað litanúmerið er þekki ég ekki. En menn hérna á spjallinu eins og t.d. Gummco, Alpina, Benzari o.fl. vita þetta sennilega.

Re: Mercedes-Benz E220

Innsent: 26 Mar 2013, 21:40
frá Benzari
Til hamingju með Benzann.


Aðal-liturinn er 481, bornit metallic(DE) eða blackberry.(USA)
Veit ekki litanúmerið á neðri litnum.

Re: Mercedes-Benz E220

Innsent: 26 Mar 2013, 21:56
frá BaraBenz
Neðri liturinn er 7166 og mér er sagt að á því er mött glæra. Ég fékk hana í Bílanaust (N1).

Re: Mercedes-Benz E220

Innsent: 26 Mar 2013, 23:00
frá GUMMCO
BaraBenz skrifaði:Neðri liturinn er 7166 og mér er sagt að á því er mött glæra. Ég fékk hana í Bílanaust (N1).
Reyndar getur neðri líturinn verið misjafn(litano),best er að taka eitt plastið af og bera það við litprufur sem lakkframleiðendur/salar hafa,matta glæran er frá Glasurit og verður að hræra mjög vel í dósinni áður enn málað er og einnig verður hún að taka sig á milli umferða,annars verður hún of glansandi , ekki vera of snöggur á milli umferða :)

Re: Mercedes-Benz E220

Innsent: 26 Mar 2013, 23:49
frá frikkie
Takk kærlega fyrir góð svör drengir ekki vitiði um einhvern sem tekur að sér að ryðhreinsa og sprauta fyrir mig tími engan veginn að bletta í þetta. svo vel með farið lakk á bílnum

Re: Mercedes-Benz E220

Innsent: 30 Mar 2013, 11:11
frá Ásgeir Örn
Er enginn búinn að taka eftir bílunum sem standa í bakrunn?

Glæsilegur bíll og allt það en shæsen, er þetta stærsta Jaguar safn á íslandi? :D

Re: Mercedes-Benz E220

Innsent: 30 Mar 2013, 13:56
frá frikkie
haha einhvað í þá áttina svo er dót í skúrnum líka og eitt stk handónýtur maserati