Síða 4 af 5

Re: Mercedes-Benz 300SL 1990

Innsent: 09 Des 2012, 22:39
frá sveinn
Alpina skrifaði:er bíllinn á Lorinser felgunum ??
Já, þær eru undir honum núna. Hann var pantaður með þessum felgum (á nótuna) og mér finnst þessar felgur eiga heima undir honum.

Mig langar samt svolítið í 16“ 15loch til að hafa til skiptana, en felgan í skottinu er þannig (aldrei verið sett undir). Hann er mun flottari á Lorinzer, en það eru ákveðnir aksturseiginleikar sem tapast samt fyrir útlitið ;)

Re: Mercedes-Benz 300SL 1991

Innsent: 10 Des 2012, 11:41
frá JBV
sveinn skrifaði:
JBV skrifaði:Það er ekki að spyrja að dugnaðinum hjá þér Sveinn. :D Þvílík gegnumtekt á innréttingunni, eins og þér er von og vísa. :tumbsup2: Sammála með stefnuljósin, þau gefa SL-inum mun fallegra yfirbragð. :cheers:
Takk fyrir það Jón :)

...já, það eru ótrúlega margir sem eru hrifnari af þessum hvítu stefnuljósum, en það á að einhverjum ástæðum ekki við mig. Ég á núna sett af hvítum ljósum á B-lagernum fyrir bæði W124 og W129 (reyndar voru þessi ljós á SLinum orðin léleg) ;)
Svo það sé alveg á hreinu, þá eru það orange stefnuljósin sem ég er að vísa til í mínum texta. :lol: Alveg sammála þér Sveinn, hvítu stefnuljósin eru heldur ekki minn tebolli fyrir svona eðalvagna. :?

Re: Mercedes-Benz 300SL 1991

Innsent: 10 Des 2012, 19:18
frá íbbi
neinei.. aksturseiginlekarnir aukast með 17"

Re: Mercedes-Benz 300SL 1990

Innsent: 11 Des 2012, 16:21
frá sveinn
íbbi skrifaði:neinei.. aksturseiginlekarnir aukast með 17"
Já, vissir aksturseiginleikar aukast við breiðan/lágan barða. Svo er það bara spurningin hvort þeir aksturseiginleikar séu þeir sem maður leitar eftir ;)

Reyndar eru Lorinzer felgurnar 18“ (með 245x40 dekkjum). Við vissar aðstæður henta svona dekk vel, en sé tekið mið af því hvernig malbikið er á götum borgarinnar þá finnst mér mjórri og hærri barði (og þar með minni felga) betri til aksturs hér innanbæjar.

Þessi bíll mun vera á Lorinzer felgunum undir öllum venjulegum kringumstæðum. Mér finnst þær nefnilega fara bílnum einstaklega vel. Mig langar hinsvegar í 16“ felgur eins og hann kom á til að eiga til skiptanna, svona aðallega til að geta breytt til :)

Re: Mercedes-Benz 300SL 1991

Innsent: 13 Des 2012, 16:38
frá Ásgeir Örn
Glæsilegur bíll!

Re: Mercedes-Benz 300SL 1990

Innsent: 15 Des 2012, 18:19
frá sveinn
Ásgeir Örn skrifaði:Glæsilegur bíll!
Takk fyrir það :)

...hann er ágætlega útlítandi miðað við að vera óðfluga að nálgast fornbílaaldurin (nb. ekkert mótorplast) :wink:

Re: Mercedes-Benz 300SL 1990

Innsent: 28 Des 2012, 21:20
frá sveinn
Jæja, sætin komu frá Dr. Leður rétt fyrir jól og það er engin smá munur á þessu;

Fyrir:
Eftir:
Reyndar varð ég fyrir smá vonbrigðum þegar ég var búinn að seta seturnar aftur í og ætlaði að láta bílinn í gang, því ekkert gerðist :?

Á meðan sætin voru í viðgerð hafði ég notað tímann og skipt um barka í bílstjórasætinu sem losar bakið til að fella það fram. Þetta eru tveir barkar og annar þeirra var slitinn þannig að ekki var hægt hreyfa það. Þetta var ekkert sem skiptir máli, því enginn fer þarna afturí hvort sem er, en ég vil hafa þetta í lagi. Auðvitað var sá barki slitinn sem er hálf vonlaust að skipta um; hverfur inn í burðarbitann rétt fyrir neðan handfangið. Sætið í þessum bíl er dálítið mikið unit með öryggisbeltinu innbyggðu, og er því sér styrkt. Ég þurfti að smíða mér ýmis verkfæri til að koma þessu úr og nýja barkanum í. Var fyrirfram búinn að dæma þetta vonlaust, en þetta hafðist þó á þrjóskunni. Í hamaganginum bæði við það að skipta um barkann og taka seturnar úr, var ég búinn færa sætin það oft fram og til baka með hurðarnar opnar og inniljósin kveikt, að bíllinn var auðvitað orðinn rafmagnslaus og fór því ekki í gang.

Þar sem skottlæsingin var einnig föst hafði ég notað tækifærið og rifið hana úr og látið í viðgerð á sama tíma og sætin. Þegar ég fékk seturnar aftur var skottlæsingin enn í viðgerð og eftir að hafa hlaðið geyminn, reyndi ég að seta bílinn í gang án læsingarinnar. Startarinn snérist á fullu, en bíllinn vildi ekki í gang. Í fyrstu var ég viss um að það væri svona immobilizer viðbjóður í bílnum og nú væri það kerfi búið að loka fyrir ræsingu af því að skottlæsinguna vantaði :( Eftir að hafa fengið hana til baka og reynt ýmsar tiktúrur með IR fjarstýringunni sem mér hafði verið ráðlagt gekk ekkert. Bíllinn vildi ekki í gang. Þegar hér var komið ég var reyndar sannfærður um að eitthvað annað væri að :roll:

Rafmagnsbilanir af þessu tagi eru eitthvað sem ég fæst ekki við, þannig að ég hafði samband við Þröst hér á spjallinu. Ég verð að hrósa honum fyrir frábæra og hárnákvæma bilanagreiningu! :tumbsup2: Ég var orðinn ansi stressaður um að nú myndi ballið byrja eina ferðina enn með getgátum um að þetta og hitt væri bilað og tilraunum því tengdu með því að skipta út hlutum, oftast án árangurs nema í allnokkrum atrennum; "trial by error" kallast það. Nei, málið var skoðað, rannsakað og komist að niðurstöðu með því að sannreyna hvað væri að! Þannig eiga faglegar bilanagreiningar líka að vera! Orsökin var reyndar ekki mjög flókin, en að komast að henni vil ég þakka og hrósa Þresti fyrir! :clapping:

Hér er hún í öllu sýnu veldi; :roll:
Þetta er tengi frá MAS relay-inu niður í bensíndælur.

Re: Mercedes-Benz 300SL 1991

Innsent: 28 Des 2012, 21:51
frá Þröstur
Maður roðnar bara :oops: En betri er þolinmæði en heymæði.

Re: Mercedes-Benz 300SL 1991

Innsent: 28 Des 2012, 23:58
frá gmg
Þröstur skrifaði:Maður roðnar bara :oops: En betri er þolinmæði en heymæði.
Snillingur :tumbsup2:

Re: Mercedes-Benz 300SL 1990

Innsent: 29 Jan 2013, 19:52
frá sveinn
Jæja, það var blíðskaparveður seinnipartinn þannig að mér langaði að taka SLinn aðeins út. Vandamálið var að fyrir utan skúrinn hjá mér var svellbunki Reykjavíkur. Ég ákvað samt að ráðast á hann með heitu vatni og hafði betur fyrir rest :)

...langaði aðallega að skoða það sem ég er búinn að vera að gera að undanförnu, en ég hef verið að vinna dálítið í lakkinu á honum. Það var að vísu ekki sól, en hann leit betur út í þessari birtu sem var í dag en ég þorði að vona fyrirfram.

Hér eru nokkrar myndir