Síða 1 af 3

190E í uppgerð

Innsent: 14 Okt 2012, 18:41
frá Cronzi
var að eignast þennann hérna,

hann er 1.8L 190E með m102 mótor (væntanlega)
hann er ekinn 348XXX og er klesstur, en ég er byrjaður að laga hann :tumbsup2:








Re: 190E í uppgerð

Innsent: 17 Okt 2012, 01:17
frá Cronzi
jæja. þá er þessi kominn á götuna!

búinn að festa framljósin
aftengja aircon dæluna
styttri reim
skipt um viftu
grill sett á
skipt um dekk og felgur
stýrisslá löguð (mælaborðið gekk upp og niður þegar ég beygði)
skipt um afturljósið
vatnskassi settur í
skiptingavökvi settur á (vantaði böööööns!)

þetta tók mig ekki nema fimm tíma í dag! hafði varla tíma fyrir sígó!

er búinn að keyra hann 60 km í dag og hann er allur að koma til
en stefnuljósin að framan vilja ekki virka og svo bankar eitthvað í hjólum eða drifi þegar ég gef í eða slæ af :?

:mercedes: :mercedes: :mercedes: :mercedes: :mercedes: :mercedes:

Myndir væntanlegar :wink:

Re: 190E í uppgerð

Innsent: 17 Okt 2012, 18:42
frá gmg
Glæsilegt, til lukku með hann, þessir w201 eru ótrúlega sterkir og skemmtilegir :tumbsup2:

Re: 190E í uppgerð

Innsent: 18 Okt 2012, 10:36
frá Ásgeir Örn
Þetta bank gæti mjög líklega verið drifskaptsupphengjan. Til hamingju með bílinn annars, þetta eru skemmtilegir bílar. ;)

Re: 190E í uppgerð

Innsent: 19 Okt 2012, 23:50
frá Cronzi
góðir bílar já :D þetta er annar minn! verulega hrifinn af þessum bílum.
en já takk fyrir það Ásgeir, athuga með það :)

hér eru nýjar myndir, alveg að verða ready í skoðun
plastið sem vantar hér á bílstjórahurð er komið á :))


vantar núna bara að
losna við bankið úr drifskafti
finna út með kaldstart
skipta um kælislöngu fyrir skiptingu

Re: 190E í uppgerð

Innsent: 27 Okt 2012, 15:25
frá Cronzi
Nýbónaður og fínn
:tumbsup:

Re: 190E í uppgerð

Innsent: 29 Okt 2012, 13:07
frá Cronzi
í dag lagaði ég sambandsleysi sem olli því að miðstöð virkaði eftir hentisemi

ennþá er smá bank í drifskafti en ég leit undir hann um daginn og tók eftir því að drifið var laust :o það voru allir boltar óhertir og einn þeirra var nánast dottinn úr! mjög bjánalegt og líklega af eitthvers vitleysings völdum

mér er sagt að það sé driflæsing í honum, en ég veit ekki meir, það er rafmagns plögg í drifinu en ég veit ekki meir

og svo er skiptingin eitthvað leiðinleg, skiptir sér illa í 3 gír (seint)

annars alveg að verða ready í skoðun til að fá fullnaðarmiða, er á endurskoðun 11 núna

Re: 190E í uppgerð

Innsent: 05 Nóv 2012, 12:38
frá Cronzi
athugasemdalaus 13 skoðun komin á þennann :))

Re: 190E í uppgerð

Innsent: 11 Nóv 2012, 15:00
frá Alpina
gmg skrifaði:Glæsilegt, til lukku með hann, þessir w201 eru ótrúlega sterkir og skemmtilegir :tumbsup2:
Frábærir bílar

Re: 190E í uppgerð

Innsent: 11 Nóv 2012, 17:25
frá Pascalpals
Flottur bíll! Náðirðu annars að gera við þetta bank ?
Það sama er að hrjá minn