Síða 3 af 6

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1991

Innsent: 02 Ágú 2011, 23:57
frá gmg
Þessi bíll verður bara betri og betri hjá þér Sveinn, glæsilegt :tumbsup2:

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1991

Innsent: 03 Ágú 2011, 00:11
frá Mercedes-Benz
Ég er reyndar ekki fyrir minn smekk að skylja þessa "G30 Off Road eftirlíkingu" með því að mála felgurnar svona svartar, en engu að síður er þetta snyrtilegt eintak af svona G-bíl þótt við rökræðum ekki smekk og sérvisku.... :? HEHEHE

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1991

Innsent: 04 Ágú 2011, 21:04
frá eyjok
Töff bíll hjá þér.

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1991

Innsent: 04 Ágú 2011, 21:33
frá msditlevsen
Flot eintakk hjá þer Sveinn!

Kvaðan geta man kaupa þetta blásatæki sem þu nótar og veist þu verðið?

Kv.
Martin

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1990

Innsent: 04 Ágú 2011, 21:56
frá sveinn
Takk fyrir það... :)

Martin, þessi sandblásturbyssa fæst í Verkfærasölunni og kostaði eitthvað tæplega 8þús. með sandi sem hefur dugað mér síðan. En þú verður auðvitað líka að eiga eða hafa aðgang að loftpressu og svoleiðis :wink:

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1990

Innsent: 04 Ágú 2011, 21:57
frá sveinn
"Smá" langlokur hér af því að spjallið er svo rólegt um þessar mundir :lol:

Driflæsingarnar...

Það voru svolítil vonbrigði eftir að ég kom bílnum í gang að driflæsingarnar virkuðu ekki, a.m.k. komu ekki ljósin sem sýna þegar hann læsir. Ég átti nú reyndar hálfpartinn von á einhverju svona fyrirfram en engu að síður voru þetta pínu vonbrigði.

Ég er núna búinn að fara í gegnum allt þetta W463 driflæsingakerfi og það er svo sem ágætt, því nú þekki ég það alveg. Verst að ég byrjaði bara á öfugum enda. Læsingakerfið er því miður aðeins flóknara en í W460 og virkar þannig að fyrst verður að læsa millikassa, síðan afturhásingu og síðast framhásingu. Þetta er lógísk röð sem stýrð er af rafkerfinu. Læsingakerfið er líka þrefalt, eða rafkerfi, vacuumkerfi, glussakerfi.

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/300GE/W463DiffLocks.jpg[/img]

Upphaflega hélt ég að þetta væri vandamál í vacuumkerfinu, þar sem fyrst þarf að læsa millikassa og hann er aðeins læstur með vacuum. Við mælingu á því virtist samt allt vera í lagi, kerfið lak ekki og hélt réttum undirþrýstingi. Raflokarnir sem stýra þessu virkuðu einnig rétt. Mig hafði jafnframt grunað að þetta væri einhver stirðleiki þar sem læsingarnar höfðu aldrei verið notaðar af fyrri eiganda. Ég fór því á malarsvæði og keyrði í áttuhringi í dágóða stund, en ekkert ljós kviknaði. Mér fannst engu að síður eins og hann læsti öllu. Maður finnur alveg þegar driflæsingar eru á og maður ekur í beygju, því hjólin fara að spóla þeim megin sem maður beygir og radíusinn er styttri.

Mér fór því að finnast líklegt að þetta væri eitthvað í rafkerfinu og líklega þá læsingarofarnir, perurnar fyrir læsingarnar eða sambandsleysi einhverstaðar þarna á milli. Ég rakti spennuna, reif mælaborðið/miðjustokkinn af og athugaði perurnar. Allt virtist í góðu lagi nema í tenginu fyrir rofana í millikassanum og afturdrifinu var spennan dottin í 6 volt. Það flækir reyndar málið aðeins að rafkerfið fyrir læsingarnar tengist inn á ABSið. Þessir rofar rjúfa eða öllu heldur tengja jörð og setti ég því vír/jumper á milli og ljósið fyrir læsinguna á framdrifinu kviknaði, en ekki fyrir millikassann eða afturdrif. Ég viðnámsmældi líka rofana þegar og þeir virtust í lagi. Ég reyndi líka að rekja vírana, sem er dálítið erfitt því þeir sameinast í stærri víraknippi í lokuðum plasthlífum.

Þegar ég lá þarna undir bílnum og var að reyna að rekja þetta, rakst ég fyrir tilviljun á jarðvíraknippi sem er jarðtengt í bitann ofan við afturhásinguna. Fjórir vírar í þessu knippi voru í sundur því að þarna gengur armur fram og til baka sem skynjar hleðslu á afturhásingu og stýrir þrýsting inn á bremsukerfið að aftan. Þessi armur var búin að ná að klippa vírana í sundur. Ég viðnámsmældi þessa víra við jörðina í rofatengin og fann þannig út að tveir þeirra voru fyrir læsingarnar. Þetta voru auðvitað góð tíðindi því með því að jarðtengja þessa víra fóru læsingaljósin að virka. Ég hef reyndar ekki hugmynd um fyrir hvað hinir tveir jarðvírarnir eru, en þá er bara eitthvað farið að virka sem ég vissi ekki að væri bilað :D

...

Þegar ég var að fara yfir rafkerfið í tengslum við læsingarnar komst ég fljótlega hvað aðgengið að því er snilldarlega hannað. Allt helsta rafdótið er í kringum öryggjatöfluna, þ.e. öll relay, stýringar fyrir ABS, innspýtingu o.s.frv.. Í fyrsta lagi er þetta haft farþegamein og í öðru lagi þá opnast skúffa á hjörum niður til fóta og þetta verður allt mjög aðgengilegt og auðvelt að vinna í þessu.

Ég tók reyndar eitt skref afturábak þegar ég opnaði þessa skúffu fyrst. Þarna var þvílíka vírahrúgan sem augljóslega var ekki í upphaflegu hönnuninni. Víradrasl sem hafði verið bætt við eftir á og flest tengt bara beint upp í rafgeimi, bæði +/-. Ég var þó nokkurn tíma að finna út úr þessu dóti og fjarlægja það því ekkert af þessu hafði nokkurn tilgang þarna þegar betur var að gáð. Ég þurfti að rannsaka hvern einasta vír því ekki vildi ég kippa þessu úr án þess að vita hver tilgangurinn var. Þegar yfir lauk var komin dágóð vírahrúga á gólfið, þar á meðal tvö relay og annað þeirra tengt í flautuna. Tilgangurinn með því var og er mér enn alveg hulinn, en úr fór það.

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/300GE/locks1.jpg[/img]

En skúffan gerir allt alveg sérlega aðgengilegt... :)

[img]http://dl.dropbox.com/u/1264580/300GE/locks2.jpg[/img]

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1990

Innsent: 04 Ágú 2011, 21:59
frá sveinn
Gangtruflanir...

Ég er búinn að vera í smá vandræðum með að fá truntuganginn úr bílnum og búinn að reyna ýmislegt til að fá mýkri gang í hann. Hélt fyrst að það þyrfti bara að keyra úr honum kúkinn þar sem hann hafði staðið í tvö ár.

Ég er reyndar búinn að fá fínan gang í hann núna og er pínu spældur út í sjálfan mig fyrir að hafa ekki fattað fyrr hvað var að angra bílinn. Hefði getað sagt mér það sjálfum svona eftir á að hyggja, því ég var ný búinn að laga svipað vandamál með 230CE bílinn minn. Veit ekki hvað ég var að hugsa, eða ekki hugsa. Það tók mig 5 mínútur að laga þetta og ég þurfti ekki að skipta um neitt.

Fyrst eftir að ég kom bílnum í gang og fann hvernig hann gekk, fannst mér eins og þetta stafaði af einhverju í tengslum við kveikjukerfið. Ég byrjaði því að skipta um kertin, en gangurinn breyttist ekki neitt við það. Hann varð hvorki betri né verri, bara alveg nákvæmlega eins. Þá datt mér í hug að athuga kveikjuþræðina og kveikjulokið og fékk mér því annað notað sett til að prófa. Gangurinn varð ekkert betri og ekkert verri við það að setja það í, bara alveg eins og áður. Ég mældi alla þræðina og þeir voru allir með svipaða leiðni og virtust í lagi. Ég prófaði að nota kveikjulokið sem var betra og þræðina sem voru betri, en gangurinn var alveg eins, alveg sami truntugangurinn og ekkert betri eða verri. Það var því ljóst að vandamálið var ekki þarna.

Þá fór mig að gruna bensínkerfið. Byrjaði á þessu vanalega að kaupa innspýtingarhreinsi og íseyði (þar sem hann var búinn að standa lengi yfir allar árstíðir og hefði getað verið búinn að mynda raka í bensíntanki). Sakaði ekki að reyna, en ekki frekar en þau önnur skipti sem ég hef keypt þetta innspýtingarhreinsisglundur, þá virkaði það ekki neitt. Sennilega virkar þetta jukk verr en sykurtöflur á sjúkling með óbylandi trú á lyflækningum. Mér tókst semsagt ekki að trúa betri gang í bílinn.

Þá var mér sagt að þetta væru örugglega spíssarnir. Ég byrjaði á að hringja í Öskju og þar átti settið í bílinn að kosta 100þús kall takk! Fannst það frekar mikið, en var ákveðinn í að skipta um þá þar sem mér var sagt að þeir dygðu ekki meir en 100þús/km og bíllinn keyrður 180þús. Fann síðan spíssa á eBay.com þar sem stykkið kostaði um 25 dollara og kostuðu þeir mig um 23.000kr hingað komnir. Var mjög sáttur við það verð, sem vissulega er gott í samanburði við hvað þetta kostar í Öskju. Setti þessa nýju spíssa í fullur eftirvæntingar, með smá vandræðum þó þar sem þeir pössuðu ekki alveg, og ég hugsa að vonbrigðin hafi ekki leynt sér í svipnum á mér þegar ég setti í gang og bíllinn gekk alveg eins. Ekkert betur og ekkert verr, bara alveg nákvæmlega eins og áður!

Vandamálið lýsti sér með truntugangi í lausagangi, en ekki í akstri eða vinnslu. Fínt hljóð í mótor þá. Það var þegar ég setti þetta svona niður fyrir mig þegar ég áttaði mig allt í einu á því að þetta var sama vandamál og ég var ný búinn að leysa í 230CE. Hafði gengið í gegnum alvega nákvæmlega það sama, ný kerti, nýr súrefnisskynjari, hitaskynjari, nýir spíssar og nýir bla, bla, bla. Það var ekki fyrr en ég heimsótti Guðjón í DC að hann gerði þetta stórum betra á einhverjum 5mín meðan ég stóð og horfði á. Þetta fór reyndar í sama farið fljótlega nokkrum dögum seinna, enda gert á hlaupum, en ég hafði fylgst með hvað hann gerði. Hann stakk voltmæli í pinna 3 í upplýsingatenginu sem er í vinstra frambrettinu og fylgdist með spennunni á meðan hann stillti blönduna með sexkant. Ég hugsaði bara; þetta get ég nú alveg gert sjálfur. Ég googlaði þetta svo bara og fann fljótlega þessa grein hér Bosch KE3-Jetronic Mixture Adjustment. Ég stillti hann svo útfrá þessum upplýsingum og hann er búinn að vera fínn síðan. Ég bara skil ekki af hverju ég var ekki búinn að átta mig á alveg sömu einkennunum með 300GE. Það tók mig 5 mín að gera hann góðan líka.

Ekki það að það er fínt að vera búinn að endurnýja kerti, þræði, spíssa og svoleiðis :)

Ég mæli með því að menn lesi þessa KE3-Jetronic grein :wink: ...menn þurfa samt sem áður að átta sig á því að það er ekki gott að fikta í þessu nema að framkvæma mengunarmælingu samhliða eða á eftir.

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1991

Innsent: 04 Ágú 2011, 23:46
frá Benni
Gaman að svona lesningu :tumbsup2:

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1991

Innsent: 04 Ágú 2011, 23:49
frá hjalti.g
Meiri svona langlokur :clapping:

Re: Mercedes-Benz 300GE, 1991

Innsent: 05 Ágú 2011, 10:16
frá AM
Skemmtileg lesning :tumbsup2: