Síða 1 af 1

W124 E320 Sportline '94/95 Svartur

Innsent: 19 Jún 2011, 05:01
frá joolli
Sælir,

Fyrir nokkrum mánuðum auglýsti ég eftir E320 W124 hér á spjallinu og upp úr krafsinu kom sá sem hér um ræðir. Hann er með nóg af aukadóti og má segja að það hafi selt mér skrjóðinn. Einhverntíman fann ég VIN decoder á netinu og fékk þetta út:
  • Moderator 1 940503
    Front Axle 2 BE1350R1029443923534
    Обогрев 0-20513700
    Heating SWF
    Number of transmissions 722503 03 985779
    Order number 0420500748
    Color* 199
    Подзаказ* n
    Interior 271
    Chassis 00000
    Lighting HELLA
    Body Code* n
    Index Model* 7
    Engine Number 104992 12 059673
    nul
  • Option Codes
    222 RIGHT FRONT SEAT, ELECTRICALLY ADJUSTABLE
    240 OUTSIDE TEMPERATURE INDICATOR
    241 FRONT SEAT LH ELECTRIC ADJUSTABLE WITH MEMORY
    244 SPORTS SEATS, FRONT
    249 AUTOMATICALLY DIMMING INSIDE REAR VIEW MIRROR
    281 AMG PERFORMANCE STEERING WHEEL
    291 AIRBAG FOR FRONT PASSENGER
    425 5-SPEED AUTOMATIC TRANSMISSION
    430 HEADREST IN THE REAR, LEFT AND RIGHT
    440 TEMPOMAT (CRUISE CONTROL)
    471 ACCELERATION SKID CONTROL (ASR)
    512 MB RADIO SPECIAL WITH TRAFF. MESS., RDS
    551 ANTI-THEFT/ANTI-BREAK-IN WARNING SYSTEM
    570 FOLDING ARMREST, FRONT
    593 ALL-ROUND WD-GREEN GLASS,HEATED REAR WINDOW-ESG,BF
    611 EXIT LIGHTS FOR DRIVER DOORS
    620 AIR POLLUTION CONTROL
    653 SPORTS CHASSIS WITH 8-HOLE LIGHT ALLOY RIMS
    682 FIRE EXTINGUISHER
    731 WOOD TRIM BURRED WALNUT ROOT
    873 SEAT HEATER FOR LEFT AND RIGHT FRONT SEATS
    885 HIGHTEN THEFT PROTECTION
    915 FUEL TANK WITH LARGER CAPACITY
    Full List
    '222','240','241','244','249','281','291','300','412','425','430','440','471','512','544','551','570','588','593','611', '620','653','682','731','873','877','885','915','953'
Nokkuð myndarlegur listi þar...

Þessi listi ásamt því að vera E320 eins og ég vildi, trompaði algjörlega skynsemina og ákvað ég að skella mér á hann þrátt fyrir að hann væri ógangfær, þ.e.a.s. ónýtt throttlebody og engin leið að prófa hann.


Hér er eitthvað af því sem ég er búinn að gera:
  • Throttle body skipti.
    Yfirspennurelay (Opnað og lagað, mælt og sett í (Mafia666))
    Loftinntaks ventlatímingarskynjari.
    Drif upptekið, skipt um legur. (Sást ekki á kamb og pinion)
    Skipt um dremparan á reimarstrekkjaranum.
    Drifskaftsupphengja og lega.
    Gírkassapúði.
    Súrefnisskynjari. (Engir villukóðar og heldur blöndu)
    Felga löguð (Brotin og lak :shock: )
    Hraðamælir lagaður (Sýndi alltaf 15-17KM/H yfir. Fjöður í mæli stilltur eftir að kílómetramælir hafði verið athugaður).
    Hitamælir í mælaborði.
    Rafdrifin gardína löguð.
    Ný dekk
    Nýjir boltar í felgur (Kolrangir boltar í felgunum; of stuttir og með rangan kón!!)
    Hjólastilltur.
    Kerti.
    Útleiðsla löguð. Öryggi B sprakk stöðugt...
    Sjálfdekkjandi baksýnisspegill lagaður (hafði verið tekinn úr og vír klemmdur við samsetningu (Sprengdi Öryggi #B))
    Skipta um gorma að aftan
    Skipta um spyrnur að aftan
    Skipta um boddýpúða.
    Laga rafdrifna hliðarspegla.
    Kaupa nýja hátalara, það voru einhverjir ótengdir sem passa ekki einusinni.
    Laga óvenju mikið veghljóð. (Ryðgöt í brettum og sílsum löguð)
    Finna út hversvegna miðstöð blæs stundum bara brennheitu (Orsakað af gamalli Aux vatnsdælu)
    Lagað wiring harness/loom að háspennukeflum vegna storknunnar á vírakápum.
Það sem þarf að gera:
  • Struttagúmmi(?) að framan.
    Laga höfuðpúða að aftan (Falla ekki niður þegar ýtt er á takkan framm í).
    Laga rafdrifið loftnet.
    Laga ryð (Hugsanleg sprautun).
    Laga snáð bílstjórasæti.
Nýjar myndir koma fljótlega en það má finna myndir hér:

http://www.MBClub.is/spjall/viewtopic.php?f=15&t=8487

Re: W124 E320 Sportline '94/95 Svartur

Innsent: 19 Jún 2011, 12:03
frá Balli...
þessi er æði! ég var mikið á þessum í fyrra bara gott að keyra þetta..

Re: W124 E320 Sportline '94/95 Svartur

Innsent: 19 Jún 2011, 20:13
frá Björgvin
Hann er allaveganna á asskoti flottum felgum :)

Átti Rúnar stofnmeðlimur MBKÍ ekki þennan bíll eitt sinn?? :)

Kveðja

Re: W124 E320 Sportline '94/95 Svartur

Innsent: 19 Jún 2011, 21:48
frá joolli
Björgvin skrifaði:Hann er allaveganna á asskoti flottum felgum :)

Átti Rúnar stofnmeðlimur MBKÍ ekki þennan bíll eitt sinn?? :)

Kveðja
Jú, mér skilst að Rúnar hafi átt þennan bíl. Ég spurði hann einhverntíman út í bílinn og hann sagði að bíllinn hafi verið nokkuð góður þegar hann átti hann en meira hafði hann ekki að segja um kaggan. :)

Hann er ekki á þeim felgum sem sjást á myndinni. Hann er á 18" AMG Monoblock replicum sem eru látnar líta út fyrir að vera two piece. Mér finnst þær mjög flottar en pólýhúðin er nokkuð illa farin, flögnuð og sprungin, svo þær verða teknar í gegn eftir sumarið.

Re: W124 E320 Sportline '94/95 Svartur

Innsent: 23 Jún 2011, 02:07
frá joolli
Jæja, bíllinn heldur áfram að vera mér til vandræða. Heheh

Í dag þegar ég geng út í bíl á leið heim úr vinnu og ætla að ræsa hann þá kemur einkennilegt skrölt þegar ég svissa á hann. Ég komst fljótt að því að þetta væri í einu relay-inu frammi í húddi. Þetta relay er kallað Combination relay (N10) og stjórnar rúðuþurrkumótornum, stefnuljósunum og hita í afturrúðu. Eftir frekari athugun var ljóst að það voru stefnuljósin sem voru að orsaka þetta. Skrítna var að skröltið kom bara þegar stefnuljósin voru ekki í gangi en þegar kveikt var á hazard ljóstunum eða vinstri eða hægri stefnuljósunum þá hætti það. Ég fékk lánað eins relay og fékk sama hljóð úr því svo að ég vissi þá að það var ekki relay-ið sjálft. Fór þá yfir allar perur í stefnuljósum og þreif þær. Ein þeirra var mjög oxyderuð(?). Athugaði svo öryggin og öryggi #5 var farið; skipti um það og skröltið hætti. Vúhú! :)

Svo einföld skýring á einhverju sem virtist vera svooo flókið. Vonandi að þetta gagnist einhverjum einhverntíman.

Mér þykir líklegt að þetta hafi verið á leiðinni að gerast í einhvern tíma því stundum duttu vatnshitamælirinn, bensínmælirinn og olíuþrýstingsmælirinn aðeins niður og hoppuðu aftur upp hjá mér. Þegar ég svo tók relay-ið úr á meðan ég keyrði bílinn heim þá virkaði ekkert af þeim mælum. Spurning hvort þetta orsakaði að mælarnir létu svona?

P.s. Er það einkennilegt að mér þyki bara vænna um bílinn eftir því sem ég lendi í meira veseni og laga? Heheh :D

Re: W124 E320 Sportline '94/95 Svartur

Innsent: 23 Jún 2011, 03:51
frá AM
Já þetta er oft skrítið. Ég hélt einu sinni að það væri draugur í bílnum míum. í hvert skipti sem ég drap á bílnum og gleymdi að taka ljósin af áður (þegar flautið kemur), fór hægri framrúðan alltaf niður. Skýringin var að stjórnboxið fyrir rúðurnar var bilað.

Re: W124 E320 Sportline '94/95 Svartur

Innsent: 23 Jún 2011, 10:46
frá joolli
Hahahah! Það er veeel fyndið! :)

Re: W124 E320 Sportline '94/95 Svartur

Innsent: 23 Jún 2011, 13:40
frá joolli
Btw, 300CE-inn þinn er snaaaaaar geggjaður!

Re: W124 E320 Sportline '94/95 Svartur

Innsent: 23 Jún 2011, 13:55
frá AM
Þakka þér fyrir vinur :mrgreen:

Re: W124 E320 Sportline '94/95 Svartur

Innsent: 07 Feb 2013, 01:32
frá joolli
Aðeins meira sem búið er að gera fyrir bílinn:
  • Skipta um gorma að aftan (Liggur á gúmmíunum með 1 farþega afturí)
    Skipta um spyrnur að aftan (Flestar byrjaðar að blómstra og chamber orðinn rangur).
    Skipta um boddýpúða.
    Laga rafdrifna hliðarspegla.
    Kaupa nýja hátalara, það voru einhverjir ótengdir sem passa ekki einusinni.
    Laga óvenju mikið veghljóð. (Ryðgöt í brettum og sílsum löguð)
    Finna út hversvegna miðstöð blæs stundum bara brennheitu (Líklega monovalve eða heili)
    Lagað wiring harness/loom að háspennukeflum vegna storknunar á vírakápum.
Ég athugaði vírana að háspennukeflunum einn daginn þegar ég var að skoða undarlegan gang og mikla eldsneytisneyslu og þar voru kápurnar utan um vírana farnar að storkna eins og gerist í þessum bílum. Ég hélt alltaf að þetta væri í lagi í þessum bíl því kápurnar eru í lagi allstaðar annarstaðar. Ég hætti að nota bílinn þegar í stað og lagaði þetta stuttu seinna eftir að ég útilokaði að kaupa þetta á ebay. Rugl verð sem fólk setur á vírahrúgu! ;)

Hér eru nokkrar myndir sem ég tók. Eflaust ekki það fallegasta en þetta virkar. ;)

Albúm:
http://imgur.com/a/XN3sZ#0
Svo var ég alltaf í bölvuðum vandræðum með miðstöðina. Hún byrjaði alltaf að blása eldheitu sama hvernig ég stillti miðstöðina. Vandamálið er að auka vatnsdælan er orðin gömul og byrjuð að draga of mikinn straum vegna tregðu. Við það fer miðstöðin í hálfgert "safe mode" og vatnsventillinn fer í sjálfgefna stöðu; sem er að fara á heitasta. Ég kemst framhjá vandanum með að taka dæluna úr sambandi en ég ætla að taka hana úr fljótlega og athuga hvort ég geti ekki þrifið hana og lífgað upp á hana. Tek myndir af því og set það hér inn.