Síða 6 af 6

Re: S210 E290TD Elegance '99 - winter is here

Innsent: 17 Nóv 2013, 01:09
frá Logi
Fór með þennan í skoðun um daginn. Fékk endurskoðun út á efri spindla að framan :tumbsdown2:

Fór daginn eftir í Bíladoktorinn og því var reddað: Eftir miklar vetrardekkjapælingar keypti ég Nokian Hakkapelitta 8
í 215/55-16 á stálfelgur sem duttu upp í hendurnar á mér (takk Þröstur!).
Búinn að keyra aðeins á þessum dekkjum í snjónum hér í bænum og fyrir
norðan og þetta eru bestu vetrardekk sem ég hef prófað!!! Reyndar
líka þau dýrustu :lol:

Svona lúkkar hann í dag á koppunum sem ég keypti notaða á ebay.de: Er mjög sáttur við hann svona!

Re: S210 E290TD Elegance '99 - winter is here

Innsent: 17 Nóv 2013, 12:09
frá JBV
haha þurfa menn að sækja svona alla leið til íbei :?: :D

Þvílíkt álfelguland sem klakinn er orðinn. :lol:

Annars tekur sá grái sig bara vel út á þessum plastskífum. :tumbsup2:

Re: S210 E290TD Elegance '99 - winter is here

Innsent: 17 Nóv 2013, 13:08
frá gmg
Flottur á koppum :tumbsup2:

Re: S210 E290TD Elegance '99 - winter is here

Innsent: 22 Nóv 2013, 09:55
frá Logi
JBV skrifaði:haha þurfa menn að sækja svona alla leið til íbei :?: :D

Þvílíkt álfelguland sem klakinn er orðinn. :lol:

Annars tekur sá grái sig bara vel út á þessum plastskífum. :tumbsup2:
Já það er ekki auðvelt að finna 16" Mercedes koppa hér heima :lol: Það eru til koppar undir
C-bíl í Öskju, held að það séu þessir: Mér finnst þeir ekki alveg nógu flottir, fyrir utan að þeir kosta yfir
8þús stykkið! Maður ætti ekki annað eftir en að kaupa koppa-sett
fyrir rúml. 32.000 :lol:

Re: S210 E290TD Elegance '99 - winter is here

Innsent: 31 Jan 2014, 00:03
frá Logi
Var að keyra um á þessum í slabbinu seinnipartinn í dag þegar
hann rúllaði í 280þús km. Hugsaði með mér: Hann er bara helvíti
góður miðað við aldur og fyrri störf... 2 mín seinna fór að
finnast einhver víbringur og heyrast hærra í vélinni :| WTF :x

Stoppaði og kíkti undir bílinn og þá hafði hitahlífin ofan við
pústið undir miðjum bílnum losnað og lá ofan á pústinu. Komst á
lyftu og festi aftur = Allt í orden :tumbsup:

Re: S210 E290TD Elegance '99 - winter is here

Innsent: 31 Jan 2014, 11:35
frá JBV
Fjúkket maður :tumbsup:

Það er það ánægulega við svona hljóð er þegar þú kemst að því að það er ekki neitt neitt. Einmitt þegar maður býst við hinu versta :D