Síða 1 af 2

Mercedes Benz E220 1994

Innsent: 15 Nóv 2010, 22:54
frá AM
Fann mér þennan fína E220 til að vera á í vetur.
Hann er 1994 árgerð og er ágætlega búinn, ASD driflæsing 8) , aircondition, krók, hita í sætum.
Hann er með flottan Jensen dvd spilara og nýjir alpine hátalar allan hringinn, einnig er bassi í skottinu.

Nokkrar lélegar símamyndir :

[img]http://www.fotothing.com/photos/aa3/aa3 ... 8e9c6d.jpg[/img]

[img]http://www.fotothing.com/photos/832/832 ... 7ea7b6.jpg[/img]

[img]http://www.fotothing.com/photos/8bb/8bb ... 29ffe6.jpg[/img]

Þessar fylgdu með bílnum. Svo núna á ég 3 ganga af monoblock. 2 18" og 1 17"
[img]http://www.fotothing.com/photos/6d5/6d5 ... fda9c5.jpg[/img]

Re: Mercedes Benz E220 1994

Innsent: 15 Nóv 2010, 23:08
frá Petur260E
helvíti flottur hjá þér :) er eitthvað plan með þennan ?

Re: Mercedes Benz E220 1994

Innsent: 15 Nóv 2010, 23:14
frá AM
Takk fyrir það :wink:

Ég þarf nauðsynlega að lækka hann örlítið að framan, ekki mikið samt því þetta er vetrarbíllinn. Þarf helst nýjan framstuðara og svo langar mig í leður.

Re: Mercedes Benz E220 1994

Innsent: 16 Nóv 2010, 10:21
frá Benni
Congrats með þennan sparibauk, 220 er líklega besta vélin í "bíter" :lol:
Og ASD er toppurinn 8)

Re: Mercedes Benz E220 1994

Innsent: 16 Nóv 2010, 10:38
frá JBV
Flottur bíter, til hamingju. Var þessi ekki til sölu á er.is fyrir skemmstu ?

Re: Mercedes Benz E220 1994

Innsent: 16 Nóv 2010, 10:58
frá AM
Takk :D

Jú hann var auglýstur þar.

Já það kom mér á óvart hve skemmtileg þessi vél er og ASD er snilld, hef komist allt hingað til á þessum 265 breiðu dekkjum og bara gaman :Driverauto:

Re: Mercedes Benz E220 1994

Innsent: 16 Nóv 2010, 15:16
frá aroningi
Bíterar gerast ekki betri. Til hamingju, er búinn að sjá þennan til sölu á er.is í langan tíma, langaði alltaf í hann. Gott að hann komst í góðar hendur.

Re: Mercedes Benz E220 1994

Innsent: 17 Nóv 2010, 09:49
frá Benzter
er búinn að keira þennan bíl einusinni og það var fyrir cirka mánuði 8)
bara sóðalega flottur bíll í alla staði

til hamingju með þennan 8)

Re: Mercedes Benz E220 1994

Innsent: 09 Des 2010, 00:38
frá Ólafur Þ.
Flottur þessi.
Ók honum frá keflavík til RVK einhvern tímann í sumar og það var svakalega gott að keyra hann, kom mér á óvart hve vel 2,2 vélin vann.

Re: Mercedes Benz E220 1994

Innsent: 09 Des 2010, 12:51
frá Vidir
Til hamingju með þennan. Flott stjarna :wink:
En svolítið vandræðaleg spurning, en hvað er ASD driflæsing ? Er það bara rofi til að læsa drifinu, og var þetta frá benz verksmiðjunni