Síða 4 af 4

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 26 Nóv 2010, 20:58
frá Benzari
Vel gert Björgvin.
Voru einmitt einhverjar bólur farnar að kíkja undan afturrúðulistanum í mínum gamla, þetta ryðgar alltsaman á endanum.

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 17 Apr 2011, 22:09
frá MaggiV
Glæsilegur hjá þér, w126 eru bestu bílarnir :D

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 19 Jún 2011, 20:13
frá Balli...
hvernig er staðan á þessum höfðingja?

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 19 Jún 2011, 22:25
frá BjörgvinS
Balli... skrifaði:hvernig er staðan á þessum höfðingja?
Staðan er bara góð. Ekkert búið að gera í honum undanfarna tvo mánuði samt. En markmiðið er heldur ekki að vinna hann hratt heldur gera það vel :D
Það voru teknar nokkrar helgar í honum í vetur þar sem var farið í eitt og annað. Búið að skipta út t.d báðum "skálunum" í skottinu (semsagt skálunum sem eru með vatnstöppunum/vatnsaffalsslöngunum í) Það var komið slatta ryð í þær og hefði eflaust verið hægt að sjóða bara einhverja búta yfir það en við ákváðum að fara lengri og dýrari leiðina og bara skipta skálunum alveg út, teknar burt bara á orginal suðupunktunum og nýjar soðnar í, mjög vel gert.

Það er líka búið að skipta út brettaboganum bílstjóramegin að aftan, það var gert með nýju viðgerðarstykki. Þá á bara eftir að skipta út brettaboganum farþegamegin að aftan og þá ætti gott sem allt ryð að vera búið.

Ég tók nú slatta af myndum af verkinu en hef ekki hugmynd um hvar þær eru núna, þarf að finna þær og gefa mér tíma í að uppfæra þetta með myndum.

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 20 Jún 2011, 07:48
frá Björgvin B
bul

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 20 Jún 2011, 12:49
frá Balli...
glæsilegt :tumbsup2: svona höfðingi á ekkert annað skilið en að það sé gert almennilega við hann... hlakka til á sjá myndir

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 20 Jún 2011, 15:58
frá sveinn
Já, endilega koma með myndir af framganginum Björgvin :)

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 09 Jan 2013, 17:57
frá íbbi
jæja, hver er staðan á þessum höfðingja

það vill svo til að þetta er nákvæmlega eins w126 og ég vill helst. langur í þessu litacombo-i

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 14 Jan 2013, 20:25
frá BjörgvinS
Heyrðu, það vill nú svo til að staðan á þessum er nokkurnveginn einsog seinast, hann kúrir bara í geymslu og bíður áframhalds. En ég er einmitt kominn með aðstöðuna mína í lag núna og reikna því með að þessi fari þar inn í næsta mánuði og bara halda áfram :D