Síða 3 af 4

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 12 Apr 2010, 18:14
frá BjörgvinS
Hjalti skrifaði:Til hamingju með bílinn samdiru við konuna eða strákinn sem átti bílinn?

Kveðja Hjalti
Takk fyrir það, ég talaði nú bara við þau bæði en samdi svo við strákinn.

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 12 Apr 2010, 18:22
frá Björgvin B
bul

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 12 Apr 2010, 18:48
frá BjörgvinS
Björgvin B skrifaði:Hvað liggur fyrir varðandi lakkvinnu félagi ?
Sæll nafni, það er nú ekki komið á hreint ennþá. Það eru nokkur atriði á listanum áður en ég helli mér útí þá pælingu. Raunar er forgangsatriðið núna bara að koma honum í gegnum fulla skoðun. Eftir það verður sett athyglin á hvað maður á að gera varðandi boddí og lakkvinnu.

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 12 Apr 2010, 19:33
frá Björgvin B
bul

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 29 Apr 2010, 11:51
frá Balli...
úff einn af mínum draumavögnum, þér lagngar ekki að selja?

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 29 Apr 2010, 19:24
frá BjörgvinS
Balli... skrifaði:úff einn af mínum draumavögnum, þér lagngar ekki að selja?
neee ég hef nú ekkert voðalegan áhuga á að selja hann :D

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 03 Maí 2010, 13:20
frá Balli...
hehe!skil það vel ef ég ætti þennan grip myndi ég aldrei selja!

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 25 Nóv 2010, 21:36
frá BjörgvinS
Töluvert síðan þetta hefur verið updateað hjá mér. Staðan er nú sú að þessi var kominn á númer og fékk fulla skoðun í sumar. Svo hefur eitt og annað verið gert í gegnum mánuðina. Nýjir bremsuklossar, rúðuþurkumótor og eitthvað svona smotterí hér og þar. Reyndar líka komið nýtt(notað) húdd og grill á hann.

Svo var ráðist í stærsta verkefnið hingað til síðastliðna helgi. Ég sá lítinn riðblett gægjast undan afturrúðupakkningunni fyrir nokkrum vikum síðan, sem var auðvitað til þess að ég þurfti endilega að rífa afturrúðuna úr og ætlaði mér að laga hann :roll: . Það kom mér reyndar ekkert á óvart hvað beið mín, svona miðað við ástandið á hillunni að neðanverðu. Þetta var orðið alveg hraustlega götótt og illa farið.
Þetta var hugsað í smá stund og ég komst að því að eina vitið væri að gera þetta almennilega og varð mér úti um algjörlega heilt varahlutastykki, sem ég lét sandblása og ekki rið til í því stykki. Svo fékk ég félaga minn til að ráðast í að skipta um þetta með mér, hann er algjör fagmaður þegar kemur að svona vinnu.
Allar mælingar sem voru gerðar stóðust algjörlega 110%, það var semsagt gert til að tryggja að stykkið væri nákvæmlega í einsog það ætti að vera.


Gamla hillan frekar ljót
[img]http://img403.imageshack.us/img403/3875/hillan.jpg[/img]

Þessa mynd tók Björgvin B þegar hann kíkti í heimsókn til mín fyrir nokkrum vikum.
[img]http://img696.imageshack.us/img696/295/img3908small.jpg[/img]

Hillan komin í og allt frágengið 8)
[img]http://img80.imageshack.us/img80/2000/i ... zsmall.jpg[/img]

[img]http://img440.imageshack.us/img440/3023 ... 7small.jpg[/img]


Næst verður farið í að laga hjólbogana að aftan, svo endar þetta sennilega allt með sprautun fyrir sumarið, svona allavega reiknað með því.

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 26 Nóv 2010, 09:20
frá Olbogi
Vægast sagt falleg vinnubrögð á fallegum bíl

Re: W126, 1987 560SEL í gegnumtekt

Innsent: 26 Nóv 2010, 20:35
frá JBV
Olbogi skrifaði:Vægast sagt falleg vinnubrögð á fallegum bíl
:iagree:
Verður gaman að sjá þennan fullgerðan. :D