Þessi er bara góður orðinn í keyrslu og lítið sem böggar mann við daglegan akstur. Það sem hels er að bögga mig þessa dagana er verð á eldsneyti (200kr/L) og því koma hér 2 pælingar.
Ég hef verið að skoða það að breyta honum yfir í metanbíl og er til mikils að vinna ef það verður raunin. Það er allaveg hægt að breyta honum í metanbíl en kostnaðurinn er 400k aflminkun er c.a 10%(minna tog en snerpa eykst) og skottrými minnkar líka um c.a 1/3. Mér skilst að k-jetronic innspítingin sé svolítið erfið í svona breytingu en þá er gott hafa fagmenn í þessu. Þeir hjá vélamiðstöðinni breyta bílum í samstarfi við ísl gámafélagið
http://www.gamur.is/index.php?option=co ... Itemid=132
Eftir upplýsingum á netinu víðsvegar sýnist mér að um amk 50% minni útgjöld til eldsneytis geti verið raunin en það sem er kannski leiðilegast er að íslenska ríkið gefiur fríðindi með innfluttum bílum með metankiti(engin vörugjöld) en það er ekki gefinn afsláttur ef bílnum er breytt hér á landi. 400 k er svolítið dýrt en mun borga sig á 2-3 árum og jafnvel fyrr ef benzín heldur áfram að hækka. Mér skilst líka að regluverk í kringum þett sé í vinnslu og komi út í enda febrúar-byrjun mars.
Það virðist ekkert vera að borga sig að reyna að fá þessi kit keypt og setja í sjálfur þar sem sá sem setur kerfið í þarf að vera löggildur bifvélavirki og helst með námskeið frá framleiðanda þess til þess að meiga setja þetta í bílinn.
Þá þarf að láta skoða og skrá búnaðinn í bílinn sem gerir þetta enþá flóknara.
Mér reiknaðist til að svona kerfi kosti ekki mikið undir 350k (ECE 110 viðurkennt eins og það þarf að vera hér á landi) og þá á eftir að setja það í og skrá það og stilla það.
M.v þetta þá er 400k hjá vélamiðstöðinni ekki svo dýrt.
Hér er línkur inn á 220C (með rafstýrðum spíssum) bíl sem búið er að breyta en hann er með mjög stóra kúta í skottinu sem þarf nu ekki að vera nema einn
http://picasaweb.google.com/cngconversi ... esC220CNG#
Á meðan ég er að velta þessu fyrir mér hef ég verið að skoða einnig mótorhitara en ég setti slíkan búnað í 300CE bíl sem ég átti f 4-5 árum og gaf góða raun: bæði heitur bíll, minni meingun minni eyðsla og minna slit á vél.
[img]
http://www.defa.com/nyheter_pict/7.jpg[/img]
minnir að ég hafi einmitt sett svona hitara frá DEFA
http://wup.defa.com/en/wup_products_wupkits.htmlsem ég keypti hjá Stillingu en vita menn um fleirri gerðir og sölustaði? Ég hef heyrt að N1 eigi mótorhitara til sölu en hafa menn reynslu af þessu.
Einn helsti galli við þessa rafmagnshitara er að það þarf að muna eftir því að stinga þeim í samband
