Síða 2 af 4

Re: Benz 300E 1990

Innsent: 20 Mar 2009, 16:12
frá Konni Gunn
Smá saga: Óvirkt loftnet.

Þannig er það að ég er með rafdrifið loftnet og nú þegar það er farið að hlýna í veðri þá ætlaði ég að skella því upp. En það gerðist ekki neitt, svo ég fór í það að rífa útvarpið úr og mældi leiðnina úr því, hún var góð, svo ég prufaði að slökkva á spilaranum með power takkanum. Smelli á hann og þá kemur loftnetið upp, þá sá ég það að Band (útvarpið) var á sama takka og power takkinn en maður þarf að halda takkanum inni til að slökkva alveg á spilaranum. :lol: Ég hlusta nefnilega alltaf á geisladisk því ég nenni ekki að hlusta á Rás2 og Bylgjan né FM957 nást hérna á Grundarfirði og það kom í ljós að lofnetið virkar ekki nema að það sé stillt á útvarpið. :P

Hákon

Re: Benz 300E - nýjar myndir

Innsent: 20 Mar 2009, 16:16
frá Benni
Góður :lol:

Þetta er eitthvað svo "týpískt Benz", til hvers að hafa eitthvað í gangi á meðan maður er ekki að nota það :mrgreen:

Re: Benz 300E 1990

Innsent: 21 Mar 2009, 20:57
frá Ásgeir Yngvi
flottur bíll !


En já þú ert úr Grundarfirði segiru... hvað ertu gamall? Gá hvort ég á að kannast við þig, kærastan mín er úr Grundó ;)

Re: Benz 300E 1990

Innsent: 23 Mar 2009, 10:54
frá Konni Gunn
Ég verð 18 í ágúst.

Re: Benz 300E 1990

Innsent: 23 Mar 2009, 11:35
frá Benni
Konni Gunn skrifaði:Ég verð 18 í ágúst.
Þannig að bíllinn er eldri en þú ;)

Re: Benz 300E 1990

Innsent: 23 Mar 2009, 12:21
frá Konni Gunn
Já það er það sem er svo skemmtilegt :lol:

Benz 300E 1990 / Skipta um loftsíu í miðstöð? /

Innsent: 09 Apr 2009, 15:46
frá Konni Gunn
Sælir, ég ætlaði að skipta um loftsíu fyrir miðstöðina og ég fann einn link inná netinu sem sýnir hvar loftsían er http://www.micronair.us/assets/pdfs/102.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;.

Hvað með það ég opnaði þetta og reif allt frá svo kom ég að einhverju boxi og þar voru tvær hringlóttar viftur :| og þá hélt ég að ég væri á vitlausum stað. En ég set myndir með.

Er loftsían fyrir neðan þessar viftur eða einhverstaðar annarstaðar?

[img]http://i41.tinypic.com/2qtz4on.jpg[/img]

[img]http://i40.tinypic.com/1z67gbn.jpg[/img]

[img]http://i42.tinypic.com/t4z7np.jpg[/img]

kv. Hákon

Re: Benz 300E 1990 / Skipta um loftsíu í miðstöð? /

Innsent: 09 Apr 2009, 17:47
frá Þröstur
Það er ekkert víst að það séu loftsíur í þessum bíl, þær eiga að vera fyrir ofan mótorinn.

Re: Benz 300E 1990 / Skipta um loftsíu í miðstöð? /

Innsent: 09 Apr 2009, 18:03
frá Konni Gunn
Já er það ekki bara. Var að pæla, þetta er nefnilega bandaríkjatýpa og það er eins og það eigi bara ekki að vera loftsía í þessum bíl.

Re: Benz 300E 1990 / Skipta um loftsíu í miðstöð? /

Innsent: 09 Apr 2009, 20:10
frá valdi
getur ekki verið að hún sé undir mælaborðinu, hægramegin, ef þú losar hlífina af sem er beint fyrir ofan fæturna á manni þegar maður situr frammí farþegamegin , gæti verið að hún sé í boxi þar...