Síða 1 af 3

W126 500SE á Selfossi

Innsent: 05 Feb 2009, 23:23
frá spjot
Talandi um W126, þessi er í familíunni, hér heima og geymdur inni yfir há-veturinn. Alltaf hægt að fara út í skúr og rifja upp góðviðrisdaga frá liðnu sumri......og hlakka til komandi bíltúra.

Kv. Geir.

[img]http://i444.photobucket.com/albums/qq16 ... 010077.jpg[/img]
[img]http://i444.photobucket.com/albums/qq16 ... 010082.jpg[/img]
[img]http://i444.photobucket.com/albums/qq16 ... 010078.jpg[/img]

Re: Svalur W126 500 SEL

Innsent: 05 Feb 2009, 23:25
frá Björgvin
spjot skrifaði:Talandi um W126, þessi er í familíunni, hér heima og geymdur inni yfir há-veturinn. Alltaf hægt að fara út í skúr og rifja upp góðviðrisdaga frá liðnu sumri......og hlakka til komandi bíltúra.

Kv. Geir.
Þetta er ekkert smá fallegur bíll hjá þér....

Re: Svalur W126 500 SEL

Innsent: 05 Feb 2009, 23:29
frá HAMAR
Flottur þessi W126 8)

[img]http://i444.photobucket.com/albums/qq16 ... 010077.jpg[/img]

og einstaklega heimilislegur bílskúr :D

Re: Svalur W126 500 SEL

Innsent: 05 Feb 2009, 23:36
frá JBV
Fallegur W126! Spes litur. Hvaða árgerð er þessi og hversu mikið er hann ekinn? Er þetta 280se?

Re: Svalur W126 500 SEL

Innsent: 06 Feb 2009, 09:14
frá jeepson
HAMAR skrifaði:Flottur þessi W126 8)

[img]http://i444.photobucket.com/albums/qq16 ... 010077.jpg[/img]

og einstaklega heimilislegur bílskúr :D
maður verður að vera með heimilislegan bílskúr fyirir svona klassa græju :D

Re: Svalur W126 500 SEL

Innsent: 06 Feb 2009, 14:01
frá spjot
Sælir og þakka vinsamleg ummæli. Það er rétt að það komi fram að þessi eðalvagn er í eigu foreldra minna en ég þykist nú engu að síður eiga dulítið í honum. Svo vildi til að fyrir nokkrum árum fór faðir minn að hafa orð á því að koma sér upp sunnudagsbíl, svona sparipramma, og kom þá helst til greina eitthvað ættað úr ameríkuhrepp. Bróður mínum og mér leist vel á þessar fyrirætlanir en vildum hafa hönd í bagga með tegundarvalið, fórum á stúfana og fundum þennan 126 til sölu á Höfðanum. ´'Eg þóttist sjá að hér væri á ferðinni nokkuð heill ´89 500SE, með velour-innréttingu sem var ekki verra.
Eftir fortölur fengust "gömlu" hjónin til að prufa og líkaði nokkuð vel. Varð loks úr, að gripurinn var keyptur og fóru þau kaup fram á Þorláksmessu, sem kanski hefur haft áhrif um hve hagstæðir samningar náðust. Að vísu hafði sitt að segja að bíllinn var eins og haugur innan sem utan og á sléttum dekkjum sem hentuðu illa til vetraraksturs. Það kom í minn hlut að koma bílnum í heimahöfn á Selfossi, náði rétt fyrir lokun inn í Sólningu, hvar skipt var um dekk og síðan brunað austur. Bíllinn olli ekki vonbrigðum, þéttur og góður í akstri. Ekki var hæagt að opna nema smá rifu á "hesthúsdyrnar" vegna hálku og varð það að bíða betri tíma. Er heim var komið tók við mikil vinna við þrif, utan sem innan og kom þá í ljós að hér var um mjög gott eintak að ræða, allur heill á lakki og innréttingu og ryðlaus að mestu. að líkindum hefur hann verið mattaður niður að hluta og glærað upp á nýtt með smá áferðarmun ef mjög vel er að gáð en það er nú bara smámunasemi. Það var að vísu eitt og annað sem gera þurfti t.d.
-Endurnýjað í bremsum framan og aftan
-demparar og stýrisliðir
-Skipt um hillu undir afturrúðu vegna gegnumryðs(klassískt í þessu boddíi)
-Gert við leka með afturljósum og yfirborðsryð kringum tjakkgöt á síls
-Gert við sæti
-Skipt um knastása,undirlyftur og keðju.
-Kerti, þræðir, allar síur og vökvar
-Fengnar original W126 felgur sem voru teknar í gegn, glerblásnar og málaðar(var á 16" 201 felgum)
og svo bara allment viðhald eins og gengur.

Bíllinn er keyrður 215þús km. og kom til landsins ´98-99. Það voru nótur frá e-u verkstæði í Þýskalandi fyrir þjónustuskoðunum og ber bíllinn þess vitni að hafa verið í góðri umhirðu utan 1-2 ár áður en hann rak á fjörur okkar. Það er skemmst frá því að segja að bíllinn er draumur í akstri og betra að fylgjast með hraðamælinum ef 'Olafur Helgi eða hans undirsátar eru á ferðinni.

Nú er mál að linni, ég smelli af honum betri myndum næst þegar hann verður tekinn út, sem er regluleg helgistund hjá okkur feðgum, og pósta þeim hér, ásamt nánari upplýsingum um bílinn og þróun mála. ´'Eg skal athuga með nafnið á þessum lit, hann fer einkar vel á þessu boddíi, fín-sanseraður og látlaus.

Með kveðju,

Geir

Re: Svalur W126 500 SEL

Innsent: 06 Feb 2009, 17:35
frá GUMMCO
FLOTTIR :clapping:

Re: Svalur W126 500 SEL

Innsent: 06 Feb 2009, 18:14
frá jeepson
Þetta er alveg magnað hjá ykkur

Re: W126 500SE á Selfossi

Innsent: 06 Feb 2009, 21:24
frá Benni
Ég flutti þetta út þessum þræði hérna:
http://www.stjarna.is/forum/viewtopic.php?f=1&t=13052
þar sem þessi bíll á skilið sinn eiginn þráð undir Bílar félagsmanna.

Það væri gaman að fá að sjá þennan í sumar á samkomu hjá klúbbnum :wink:

Re: W126 500SE á Selfossi

Innsent: 07 Feb 2009, 16:09
frá Benz
Glæsilegur.Skil samt ekki þegar börnin taka fram fyrir hendur foreldrana í vali á sparibíl.