Síða 16 af 22
Re: Mercedes-Benz 230CE [Kominn úr málun] 13.maí
Innsent: 13 Maí 2010, 10:07
frá GunnarSmári
Það stefnir allt í að ég komist ekki á rúntinn núna, en reyni að koma á næstu samkomu eða rúnt.
Ég er orðinn mjög sáttur með útkomuna á honum. Þarf bara flottar felgur og málið er dautt

Re: Mercedes-Benz 230CE [Kominn úr málun] 13.maí
Innsent: 13 Maí 2010, 13:49
frá flatbeat
Flottur
Synd að ég hafi hent gamla grill insertinu sem var á bílnum, annars hefði ég leyft þér að eiga það

Re: Mercedes-Benz 230CE [Kominn úr málun] 13.maí
Innsent: 13 Maí 2010, 14:19
frá AM
þú getur farið niðrí neyðarþjónustu, held ég að það heiti, hliðina á heklu. þeir geta breytt cylendernum þannig að það er bara einn lykill.
Re: Mercedes-Benz 230CE [Kominn úr málun] 13.maí
Innsent: 13 Maí 2010, 15:21
frá GunnarSmári
Já, Lyklasmiðurinn á Laugarveginum. Það var planið

Re: Mercedes-Benz 230CE [Kominn úr málun] 13.maí
Innsent: 26 Maí 2010, 21:58
frá GunnarSmári
Lyklasmiðurinn gat ekki gert neitt í þessu svo ég ætlaði bara að svissa við farþegahurðina en útaf þessu þjófavarnarkerfi var það ekki hægt. Er að kanna verð á þessu í DE eins og er.
Planið næstu daga:
1. júní tími hjá Doktornum.
4. júní mössun hjá Óla kelerínu.
Langar að fá einhvern til að taka myndir af bílnum, jafnvel í kvöld. Síminn er 866-8282.
MBK
Gunnar
Re: Mercedes-Benz 230CE [Kominn úr málun] 13.maí
Innsent: 13 Jún 2010, 16:17
frá GunnarSmári
Orðið svolítið síðan ég setti eitthvað hérna inn.
Það sem hefur verið í gangi í þessum uppá síðkastið var auðvitið tíminn hjá Doktornum og þar var skiptu um spindil og handfang á bílstjórahurð og svo var hann bilanagreindur sem svo að bensíndeilirinn væri bilaður. Fór ég og keypti einn slíkan en batnaði ekki við það. Þá talaði ég við einn mann sem kann sitt fag í svona mótorum og hann benti mér á að fara með spíssana í prófun hjá Vélalandi og gerði ég svo. Hann benti mér einnig á það að sumir spíssar hreinlega batna við svona prófun. Það var tilfellið í þetta skipti og batnaði gangurinn til muna. Er bíllinn orðinn góður núna en það er ein pústfesting sem er búin að vera með bögg og brotna 2svar og ætla ég að fara á morgun og kaupa hana og þá er hann alveg góður.
Eins og sumir vita þá er þessi kominn á sölu og verður látinn malla þar í bili.
Ég tók nýjar myndir og hér er úrkoman.
[img]
http://c2.ac-images.myspacecdn.com/imag ... f67cbd.jpg[/img]
[img]
http://c1.ac-images.myspacecdn.com/imag ... feae10.jpg[/img]
[img]
http://c4.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 0c54bb.jpg[/img]
[img]
http://c4.ac-images.myspacecdn.com/imag ... a2bdaf.jpg[/img]
[img]
http://c4.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 2afed3.jpg[/img]
[img]
http://c1.ac-images.myspacecdn.com/imag ... 126254.jpg[/img]
Neyddist ég til að fresta mössuninni til 16. júní vegna óviðráðanlegra ástæðna.
Annars er ekki mikið hægt að gera í honum núna þar sem allt er bara komið í lag.
MBK
Gunnar Smári.
Re: Mercedes-Benz 230CE Nýjar Myndir Bls. 11
Innsent: 13 Jún 2010, 17:02
frá Hlynzi
Hann er orðinn gríðarlega flottur!
Ætlaru að útvega þér Facelift skottlok líka ?
Re: Mercedes-Benz 230CE Nýjar Myndir Bls. 11
Innsent: 13 Jún 2010, 17:13
frá GUMMCO
Hlynzi skrifaði:Hann er orðinn gríðarlega flottur!
Ætlaru að útvega þér Facelift skottlok líka ?
Þarf ekki nýtt skottlok,bara kaupa plastið á milli ljósanna,þannig er það orginal í coupe

Re: Mercedes-Benz 230CE Nýjar Myndir Bls. 11
Innsent: 13 Jún 2010, 17:30
frá aroningi
Æðislega flottur, fékk að skoða hann aðeins um daginn og fannst minn vera eitthver fjallajeppi við hliðiná þessum

Re: Mercedes-Benz 230CE Nýjar Myndir Bls. 11
Innsent: 13 Jún 2010, 17:48
frá Hlynzi
GUMMCO skrifaði:Hlynzi skrifaði:Hann er orðinn gríðarlega flottur!
Ætlaru að útvega þér Facelift skottlok líka ?
Þarf ekki nýtt skottlok,bara kaupa plastið á milli ljósanna,þannig er það orginal í coupe

Það er bara svo hrikalega ljótt.