Aðalfundur Mercedes-Benz klúbbsins - 12. apríl 2018 UPPFÆRT
Innsent: 12 Mar 2018, 12:05
Þá er komið að því – Aðalfundur MBKÍ er á næsta leyti!
Aðalfundur MBKÍ verður haldinn fimmtudaginn næstkomandi, eða 12. apríl. Fundurinn verður haldinn í Bílaumboðinu Öskju, umboðsaðila Mercedes-Benz á Íslandi. Askja er staðsett að Krókhálsi 11.
Í tilefni af fundinum ætlar Askja að frumsýna fyrir ykkur, hinn nýja CLS. Bíllinn kom til landsins rétt fyrir helgi, og er fyrsti sinnar tegundar á Íslandi. Bíllinn er búinn nýjustu kynslóð díselvéla frá Mercedes en hún er 6cyl línuvél, sem skilar 340hp og 700Nm í tog. Bíllinn sem verður til sýnis er „Edition 1“ bíll og því drekkhlaðinn búnaði.
Veitingar verða í boði MBKÍ.
Til að skrá sig á aðalfundinn er smellt á hlekkin hér að neðan. Þeir sem eru ekki meðlimir MBKÍ geta slegið tvær flugur í einu höggi og skráð sig í klúbbinn og á aðalfundinn.
https://goo.gl/forms/DG7BMRrN9VIPKRDu1
Þessi aðalfundur er aðalfundur fyrir árið 2017. Aðalfundur fyrir árið 2018 verður haldin, eins og lög gera ráð fyrir, í október 2018.
Á aðalfundinum þann 12. apríl verða bornar fram þær tillögur að breytingum að lögum sem borist hafa til stjórnar.