Síða 1 af 1

Vegna kaupa/sölu á netinu - aðvörunarorð

Innsent: 18 Nóv 2010, 13:41
frá Stjórn MBKÍ
Að gefnu tilefni þá hefur Vefstjórn ákveðið að loka aðgengi aðila sem var að selja þýfi í gegnum vefinn okkar.

Aðvörunarorð hafa verið sett inn í alla þræði undir Markaðurinn hérna á spjallinu.

Við mælumst með að fólk sé á varðbergi gagnvart þýfi sem kann að rata inn á vefinn í auglýsingarnar og hafa samband strax við lögreglu ef grunsemdir vakna. Ennfremur minnum við á ábyrgð þess sem kaupir þýfi.

Sá aðili sem verður uppvís að því að selja þýfi eða aðra illa fengna hluti hér á vefsvæði MBKÍ verður tafarlaust settur í bann!