Síða 2 af 4

Innsent: 10 Des 2007, 08:38
frá Gunnar Örn
Mercedes-Benz skrifaði:
Louis Cyphre skrifaði:
Björgvin skrifaði:Skil bara ekki afhverju þessir blessuðu ráðherrar þurfa alltaf að taka dýrustu bílana á markaðnum.... Segja "almúganum" að það sé ekki tilefni til að hækka laun vegna erfiðleika í samfélaginu en skella sér svo í Öskju og kaupa sér dýrustu sort af bíl bara til að komast frá a til b..... Bara hræsni og aumingjaskapur.....

Kveðja
Nákvæmlega!!!!
Hvað er að ykkur..... ??? :shock: :shock: Hvað er að því þó að bílar ráðherra séu reglulega endurnýjaðir með ágætis bílum eða allavega sambærilegum í verði og þeir gömlu voru... Ég sé ekkert að því þó svo að það sé settar nokkrar millu á ári í að endurnýja þessa bíla fyrst það er verið að skaffa þeim þessa bíla á annað borð. Ekki viljið þið frekar að ráðuneitin láti bílana verða of gamla og eyði miljónum á hverju ári í að halda þeim gangandi og gera við þá. Ég er líka viss um að þið vilduð frekar láta skaffa þessa bíla frekar en að ráðherrum yrðu greiddir bílastyrkspeningar fyrir að nota eigin bíl í vinnunni... Það yrði margfalt dýrara..

Því miður eru engir grúskarar í vinnu hjá ríkinu við að laga eitthvað smotteri, skipta um stýrisenda og spindilkúlur í ráðherrabílum. Þeir fara bara á verkstæði með tilheirandi og eins dýrum kostnaði og mögulegt er. Ég bendi á að raunkostnaður ríkissjóðs af 5 miljón króna bíl sem er með 2.0 lítra vél + er um 2,7- 2,8 miljónir, bíl sem er í ábyrgð í tvö ár og þá er timi til kominn að fá bara annan. Svo eftir tveggja ára notkun fara þessir bílar í Innkaupastofnun og eru seldir á 2,5- 3 millur og hver er þá heildarkostnaðurinn við að kaupa bílinn.?

Þetta kemur í öllum tilfellum til með að verða ódýrasti kosturinn fyrir ríkið að endur´nýja svona bíla reglulega. Það hefur aldrei farið vel þegar ríkið ætlar að fara að gera út eitthvað gamalt dót. Ég er búinn að sjá mörg dæmi um vonlausan og yfirgengilega mikin fjáraustur ríkisins í að halda úti eitthverju gömlu og vonlausu drasli af því að það er ekki fjárveiting til að kaupa nýtt....

Svo er bara annað sem að þið verðið að hafa í huga að þið sumir mættuð vera ánægðir með að keyptur skuli vera Mercedes-Benz. Eitthverjir verða að kaupa nýju Benzana svo að þið hinir sem ekki hafi efni á því geti keypt þá gamla.

Það var mikið að einhver kom með vitrænt innleg varðandi þennan þráð. :iagree:

Innsent: 10 Des 2007, 09:03
frá Björgvin Ólafsson
Hjartanlega sammála þessu hjá Rúnari!!

Svo eru það sömu mennirnir sem verða alveg crazy þegar Ólafur Ragnar kaupir Toyotu sem dæmi. Skilja ekkert ahverju það er ekki keyptur Benz :roll:

kv
Björgvin

Innsent: 10 Des 2007, 09:22
frá Einsi
Mér sýnist nú ráðherrabílaflotinn ekki vera neitt sérstaklega dýr. Sjávarútvegsráðuneytið er með ósköp venjulegan Landcruiser, Menntamála er með nokkurra ára gamlan Audi, viðskipta- og iðnaðarráðuneytið BMW x5 og svo framvegis. Þessir þrír mundu ekki einu sinni duga fyrir einum nýjum Geländerwagen

Innsent: 10 Des 2007, 13:34
frá Louis Cyphre
Ég sé bara ekki afhverju skattgreiðendur eiga að vera að skaffa þessu fólki einhverja lúxusbíla. Landcruiserinn, X5 bimmarnir hafa hingað til flokkast sem slíkir.

Alveg nóg að setja Toyotu Corollu undir rassgatið á þeim! Ef það er ekki nóg, þá finnst mér að þeir geti bara keypt sér sína eigin bíla eins og annað fólk þarf að gera.

Það var enginn að halda því fram að ráðherrar þjóðarinnar ættu að keyra um á eldgömlum dollum, það var verið að fárast yfir verðinu og standardinum á þessum bílum þeirra.

Varðandi það að við Björgvin höfum verið að fárast yfir því að forsetinn hafi fengið Toyotu í staðinn fyrir Benz, þá þótti mér það sláandi að borga þvílíkar upphæðir fyrir Toyotuna, þegar hægt hefði verið að fá Benz fyrir hérumbil sama peninginn. Ég hefði haldið að þið væruð nú flestir sammála því?

Innsent: 10 Des 2007, 14:05
frá ivar
ég reyndar er alveg að samþykja þetta,

það væri nú hálf grátbroslegt ef ráðherrum landsins væru keyrt um í littlum corollum, ekki frá því að ég sjái fyrir mér youtube video af slíkri uppákomu.. kandólíní ræs kemur til íslands og á móti tekur ljósblár auris með fánastöngunum í brettinu..

ekki alveg..

það fara fleyri milljónir framhjá okkur sem mætti skoða í hvað er látið..

Innsent: 10 Des 2007, 16:25
frá Benzari
Auris er megatöff, alltof flottur fyrir Kon'duLísu

Innsent: 11 Des 2007, 00:06
frá Gizmo
Strákar, hættið að tala niður til Lexus forsetans, þetta er bara barnalegt, þetta er megaflottur bíll sem sómir hverjum sem er þótt ég hefði samt frekar viljað sjá Benz í embættinu.

Ráðherrar eiga að vera á flottum bílum með drivera. Haldið þið að það væri hagur fyrir land og þjóð ef allir ráðherrarnir væru að leita að bílastæðum og skafa rúður alla morgna ?

Innsent: 11 Des 2007, 07:20
frá Louis Cyphre
Toyota Corolla er bara alveg nógu fínn bíll handa ráðherrum meðan þeir þurfa ekki að borga hann sjálfir. Ef að þeir þyrftu sjálfir að keyra, leita sér að bílastæðum og skafa af bílnum sínum, þá væru þeir kannski í aðeins meiri tengslum við raunveruleikann.

Sannleikurinn með þá marga er að þeir hafa aldrei dýft hendi í kalt vatn. Samanber Guðlaug heilbrigðisráðherra.

Innsent: 11 Des 2007, 09:20
frá lhg
Djöfulsins röfl er þetta í ykkur. Þetta eru ráðamenn þjóðarinnar og það er akkurat ekkert athugavert við að þeir séu í bílum í takt við það.

Innsent: 11 Des 2007, 09:24
frá HHH
Louis Cyphre skrifaði:Toyota Corolla er bara alveg nógu fínn bíll handa ráðherrum meðan þeir þurfa ekki að borga hann sjálfir. Ef að þeir þyrftu sjálfir að keyra, leita sér að bílastæðum og skafa af bílnum sínum, þá væru þeir kannski í aðeins meiri tengslum við raunveruleikann.

Sannleikurinn með þá marga er að þeir hafa aldrei dýft hendi í kalt vatn. Samanber Guðlaug heilbrigðisráðherra.
Afhverju ferð þú ekki á þing og breytir þessu bara. Betra en að röfla úti í horni. Gera eitthvað í þessu. Gét ekki beðið eftir að sjá Ráðherra á einum Lada, Dævú eða Kía, með flöggum og alles. :fyndid: