Síða 2 af 2

Innsent: 19 Sep 2007, 22:58
frá Benni
jon skrifaði:lágmark 100kg í skottið þá er bílinn góður... sama hvað þið haldið að þið séuð góðir ökumen þá eru margir benzar alltof léttir að aftan og geta verið leiðinlegir og hættulegir fyrir fólk sem kann ekki á þa´í hálku... og að setja lágmark 100kg í skottið er bílinn bara skemntilegri í hálku :wink: :wink:
Loksins :shock: vitrænt svar við þessari fyrirspurn :clapping:

Innsent: 20 Sep 2007, 00:38
frá m-benz
takk fyrir jón, er 100 kg ekki einum og kanski? :?

Innsent: 20 Sep 2007, 02:28
frá ivar
neinei.. maður hefur nú alveg séð annað eins fara í skottið,

það er alveg satt hjá jóni, benzarnir eru ekki með mjög góða þyngdardreifingu uppá veturinn að gera, þriggjastafa skammstafaðair vinir þeirra og vandamenn eru hinsvegar alveg á hinum endanum við þá,


keyptu bara tvo poka af t.d fóðri eða fræjum sem koma í 40kg pakningum í þykku plasti sem er ekki hætta á að rifni þót tþeir fáir að kastast aðeins til, bíllin ver'ur mun þægilegri í notkun, og þægilegra að ná honum af stað,

ég var einu sinni heilan vetur með 250kg af sandi á pallinum á dodge pallbíl sem ég átti, breytti bílnum alveg bókstaflega

Innsent: 20 Sep 2007, 16:32
frá Mercedes-Benz
Kaupa bara áburð í 50 kílóa sekkjum.....

Þegar kemur vor er kominn tími til að nota áburðinn á garðinn og þá gleymirðu ekki að taka hann úr skottinu..... :roll: :roll: :roll: :lol: :lol: :lol:

Innsent: 20 Sep 2007, 23:11
frá Ásgeir Yngvi
Mercedes-Benz skrifaði:Kaupa bara áburð í 50 kílóa sekkjum.....

Þegar kemur vor er kominn tími til að nota áburðinn á garðinn og þá gleymirðu ekki að taka hann úr skottinu..... :roll: :roll: :roll: :lol: :lol: :lol:
svo kemur gat á pokann,, og bíllinn ryðgar. Bömmer :lol:


Nei nei ég var nú á w123 einn vetur, ekki sá ég þörf á því að setja þyngsli í skottið. En það er nú varla verra að prufa.

Innsent: 21 Sep 2007, 23:50
frá andrz
Ég var að fara að ná í nokkra poka til að setja í skottið á bílnum mínum en víkingasveitin mætti á undan mér og gerði skútuna mína m.a upptæka :roll: :(


Bölvaðir asnarnir hljóta að fara mannavillt svona rétt fyrir veturinn
:klikk: