Síða 1 af 3

Innsent: 09 Sep 2007, 20:53
frá Halldór Björn
Er með heilsársdekk og komst allt sem ég vildi síðasta vetur en ég fór aldrei útur bænum á bílnum, fór lengt i grafavoginn á honum, ég án djóks fór ekki einu sinni til mosfellsbæjar allan síðasta vetur.

Innsent: 09 Sep 2007, 22:20
frá HAMAR
Var með Bridgestone Blizzak WS-50 loftbóludekk undir mínum BMW 750i
og hann fór gersamlega allt sem ég þurfti að komast og meira til.
Alger snilldar dekk.

[img]http://www.wheelsplus.ru/show.php?p=t/Br/WS50.jpg&m=2[/img]

Innsent: 09 Sep 2007, 22:37
frá hjalti.g
Verð á nagladekkjum af því að ég á þau til en það er nú varla þörf á því hérna í borginni nema kannski á næturnar.

Innsent: 09 Sep 2007, 22:42
frá gmg
HAMAR skrifaði:Var með Bridgestone Blizzak WS-50 loftbóludekk undir mínum BMW 750i
og hann fór gersamlega allt sem ég þurfti að komast og meira til.
Alger snilldar dekk.

[img]http://www.wheelsplus.ru/show.php?p=t/Br/WS50.jpg&m=2[/img]
Sama hér, snilldar dekk ætla að fá mér ný svona fyrir veturinn !

Innsent: 09 Sep 2007, 22:44
frá eyjok
Það er mín skoðun að við hérna á höfuðborgarsvæðinu þurfum ekki á nagladekkjum að halda.Enda lengja þau hemlunarvegalengdina í algengasta færinu sem er blautt malbik.
Ég hef keyrt á naglalausum dekkjum á Benz í nokkur ár og hef komist allt sem ég ætla.
Hef bara passað upp á að tjöruhreinsa dekkin.

Innsent: 09 Sep 2007, 23:25
frá FatBoy
eyjok skrifaði:Það er mín skoðun að við hérna á höfuðborgarsvæðinu þurfum ekki á nagladekkjum að halda.Enda lengja þau hemlunarvegalengdina í algengasta færinu sem er blautt malbik.
Ég hef keyrt á naglalausum dekkjum á Benz í nokkur ár og hef komist allt sem ég ætla.
Hef bara passað upp á að tjöruhreinsa dekkin.
Tek undir þetta.

Það eru ekki margir dagar á ári sem krefjast nagladekkja á höfuðborgarsvæðinu. Þegar færið er slíkt þá er umferðin hvort eð er hálfstopp.

Naglalaus vetrardekk eða loftbóludekk er klárlega nóg á þessu horni landsins.

Þetta er frekar spurning um aksturshæfni eða aksturstækni heldur en að "þurfa" að vera á nagladekkjum á veturna.

Það er allavegana mín skoðun.

Innsent: 09 Sep 2007, 23:44
frá eyjok
Það eru því miður margir sem setja nagladekk undir bíllinn sinn og trúa því að þá sé hægt að aka jafnhratt á veturna og sumrin,og þá er ógleymd loftmenguninn sem er bara viðbjóður.

Innsent: 10 Sep 2007, 00:19
frá gmg
Ég var nú fyrir norðan síðasta vetur þegar að allt snjóaði í kaf, ég hélt að ég kæmist hvergi, en ég komst á loftbólu dekkjunum á mínum w126 !