Síða 1 af 2

M Benz E 500 hjá krók

Innsent: 29 Ágú 2007, 12:10
frá adler
http://bilauppbod.is/auction/view/41
Nýskráður 18.05.2007
[img]http://bilauppbod.is/assets/0000/0393/0708280031.JPG[/img]

Árgerð 1994/framleiðslu ár 1993

Innsent: 29 Ágú 2007, 12:37
frá Ztebbsterinn
já, þekkir eitthver þessa ameríku típu?

Innsent: 29 Ágú 2007, 12:43
frá JBV

Innsent: 29 Ágú 2007, 12:50
frá Ztebbsterinn
Þetta er nú ekki mikið tjón að sjá að utan

[img]http://bilauppbod.is/assets/0000/0399/0708280038.jpg[/img]

Á hurðina og plastið..

Innsent: 29 Ágú 2007, 12:51
frá Halldór Björn
Flottur bíll, leiðinlegt að einhver hafi klesst á hann.

Innsent: 29 Ágú 2007, 14:32
frá Björgvin
þarf ekki meira en þetta til að tryggingafélögin kaupin bílinn af manni :roll:

Innsent: 29 Ágú 2007, 15:41
frá Stinnitz
Björgvin skrifaði:þarf ekki meira en þetta til að tryggingafélögin kaupin bílinn af manni :roll:
Segi það með þér... hvað er hægt að skjóta á að svona viðgerð kostar? 150K?

Innsent: 29 Ágú 2007, 17:53
frá Þröstur
Stinnitz skrifaði:
Björgvin skrifaði:þarf ekki meira en þetta til að tryggingafélögin kaupin bílinn af manni :roll:
Segi það með þér... hvað er hægt að skjóta á að svona viðgerð kostar? 150K?

Það þarf sjálfsagt ekki að vera mikið meira.

Innsent: 29 Ágú 2007, 18:50
frá Ztebbsterinn
Þröstur skrifaði:
Stinnitz skrifaði:
Björgvin skrifaði:þarf ekki meira en þetta til að tryggingafélögin kaupin bílinn af manni :roll:
Segi það með þér... hvað er hægt að skjóta á að svona viðgerð kostar? 150K?

Það þarf sjálfsagt ekki að vera mikið meira.
Nei, þetta er svona 250 þús. króna viðgerð á verkstæði.

Ný hurð, plast, crome listi og líklega smellur og festingar.
Rúðusleikilisti?
Möguleiki á að hurðarspjald sé skemmt að innan.
Kanski eitthvað innvols í hurð (upphalari, hurðarstoppari eða álíka)
A stafur gæri einnig verið eitthvað hnjaskaður.
Samlitun þarf á frambretti og afturhurð, þá á báða litina uppi og niðri.
Rispaður hurðarhúnn?
Spegill? og þá málun?

Gæti farið uppí 350 þús. jafnvel.

En samt lítið miðað við gangverð á þessum bílum, kanski er eitthvað annað á bakvið útborgunina.
Gæti verið að það hafi verið bílalán á honum og tryggingarnar tekið hann uppí það td.

Innsent: 29 Ágú 2007, 23:28
frá gmg
Eða viðkomandi góður viðskiftavinur og heimtað að hann yrði borgaður út ?