Innsent: 07 Júl 2007, 20:57
Mér finnst þetta nú bara frekar fallegur bíll, finnst Lexus yfir höfuð frekar flottir bílar.
Það eina sem vantar er Forseti sem hægt er að vera stoltur af BjarniGizmo skrifaði:Mér finnst þetta flott hjá kallinum, LÖNGU tímabært að senda gamla Daimlerinn í endurvinnslu ásamt Cadillac brakinu, nú er bara að sækja Packardinn og þá munum við eiga flottasta Forseta í heimi, allavega hvað bílakost varðar.
Þessi svokallaða japanska "dolla" hefur nú verið áreiðanlegasti bíll síðustu 10 ára í USA hvað varðar bilanir og galla rétt á undan kóreskri "dollu" sem kallast Hyundai.... Held að okkar ástsæli Benz nái varla inn á topp 10.....Frissi skrifaði:Er þetta ekki skandal að þjóðarhöfðingi skuli láta sjá sig á Japanskri dollu
Ef allir myndu hugsa þannig að einn bíll skipti engu máli þá væru þessar bílar ekkert til en sannleikurinn er sá að einn bíll skiptir miklu máli.... Og það að þjóðhöfðingjar séu að velja svona bíl hefur mikið auglýsingagildi og ýtir undir útbreiðslu vistvænna bíla.... þannig að ég er eins ósammála þér með þetta og hægt er.....andrz skrifaði: Og þetta bull með að mengunin sé að drepa okkur og allt það, hvað hefur einn bíll með það að gera?
Í hvert skipti sem ég sé svona "vistvænan" bíl langar mig til að kaupa mér pakka af sígarettum og keðjureykja hann, kaupa mér einn benzínák á hvern svona bíl í umferðinni og moka út benzíninu með því að spóla í hringi einhversstaðar í mosagrænni náttúrunni.
Nei án djóks, heyrðuð þið viðtalið við hann? Það var eins og þessi eini bíll skipti heiminn öllu máli varðandi umhverfismál. Plánetunni bjargað. Það er ekki eins og framleiðslan á þessum bílum sé eitthvað vistvænni en á öðrum bílum. Náttúruunnendabull![]()