Síða 1 af 2

Felgur undir w202

Innsent: 21 Maí 2007, 05:06
frá Júlli
Jæja nú er komið sumar, skólinn búinn og maður fer að vinna fulla vinnu og svona... og auðvitað vill maður þá fara að kaupa eitthvað í bílinn fyrir auka peninginn sem maður fær 8)

Ég var að skoða S-bíla (maður má nú láta sig dreyma :D) á bilasolur.is einhverntímann og rakst á alveg einstakar felgur sem mig langar svo mikið í... og eftir nokkurra tíma leit á vefnum þá fann ég þær loksins:

[img]http://www.topgear.co.uk/acatalog/antera323.jpg[/img]
http://www.topgear.co.uk/acatalog/4x_17 ... ral_20.php

Nú er bara spurning... eða spurningAR öllu heldur :P
Komast 205/40 felgur og dekk á w202? eru þetta ekki örugglega réttar festingar (sýnist það nú)? og hvað ætli þær kosti komnar hingað sirka? reiknaði út að þær kosta 100 þúsund slétt úti samkvæmt 130 króna pundi.

(og svo ef einhver vill vera MJÖG hjálpsamur þá myndi ég vilja kaupa benz stjörnu í miðjuna á þeim í staðinn fyrir antera merkið... en ég get alveg googlað það sjálfur, bara ef einhver er með þetta allt á hreinu mætti hann kannski hripa það niður)

Með fyrirfram þökk... :D

Re: Felgur undir w202

Innsent: 23 Maí 2007, 00:15
frá Frissi
Júlli skrifaði:
(og svo ef einhver vill vera MJÖG hjálpsamur þá myndi ég vilja kaupa benz stjörnu í miðjuna á þeim í staðinn fyrir antera merkið... en ég get alveg googlað það sjálfur, bara ef einhver er með þetta allt á hreinu mætti hann kannski hripa það niður)
Þú getur keipt benz stjörnu í miðjuna í Tækniþjónusta bifreiða, en ég veit ekki hvort það passar.

Innsent: 23 Maí 2007, 01:07
frá ivar
jeminn ætlaru að setja þetta udnir benzann :oops:

jæja whatever floats your boat

Innsent: 23 Maí 2007, 16:23
frá Björgvin
Það er einn S bíll á svona bling bling..... Kemur ágætlegt út en alls ekki Benz legt....

Innsent: 23 Maí 2007, 17:25
frá Þröstur
Það stendur nú ekkert um gata setningu á þessum felgum sem er 5X112 undir Benz. Ég myndi ekki mæla með að nota þessa stærð undir W202 hann myndi elta hverja einustu mishæð í malbikinu og vera hundleiðinlegur á þeim. Benz miðjan passar ekki í þessar felgur þar sem það er minna gat á þeim.

Innsent: 23 Maí 2007, 18:50
frá ivar
Björgvin skrifaði:Það er einn S bíll á svona bling bling..... Kemur ágætlegt út en alls ekki Benz legt....
S bíll ber pimpin.. ekki w202

Innsent: 01 Jún 2007, 17:08
frá Júlli
Björgvin skrifaði:Það er einn S bíll á svona bling bling..... Kemur ágætlegt út en alls ekki Benz legt....
Fékk einmitt hugmyndina þaðan, fannst þetta bara koma svo vel út á honum, kannski ekkert rosalega Benz-legt en allar þessar Benz felgur eru bara svo algengar, ég vil hafa eitthvað sérstakt og flott. Annars eru sumar AMG felgurnar reyndar ekkert algengar, gæti svosem fengið mér eitthvað af þeim.
þröstur skrifaði:Benz miðjan passar ekki í þessar felgur þar sem það er minna gat á þeim.
Þessi S bíll sem Björgvin talar um sem er með þessar felgur er með Benz miðju með svörtum bakgrunni, hlýtur að vera hægt að fá Benz miðju í fleiri en einni stærð.

Annars er þetta líklega satt hjá ykkur... full "pimpin" felgur fyrir w202, og svo er ég líka alls ekkert óánægður með felgurnar sem ég er með núna :D

En þegar ég fæ mér S bíl... þá fæ ég mér svona felgur á hann 8)

Og já takk fyrir öll svörin og hjálpina :D

Innsent: 01 Jún 2007, 17:47
frá ivar
benz miðjur koma bara í 1 stærð,

Innsent: 01 Jún 2007, 23:08
frá Júlli
ivar skrifaði:benz miðjur koma bara í 1 stærð,
Þá hljóta þær að passa í miðjuna á Antera felgum fyrst það er Benz miðja í Antera felgunum sem þessi S bíll er á.

Innsent: 01 Jún 2007, 23:42
frá Benzari
Mundu bara að hafa rétt offsett á blinginu, 35-40 er hentugt á W202.

Dekkin geta verið 225/45 17" ef offsettið er rétt (255/40 að aftan)