Síða 1 af 6

S-320 2005 viðgerðarkostnaður

Innsent: 18 Maí 2007, 18:07
frá Beinskiptur
Sælir.

Ég keypti mér 2005 árg. af S-320 bíl fyrir ári síðan ekinn 27 þús km. Ég er mjög sáttur við bílinn sem slíkan, en mér finnst ég vera búinn að eyða heldur miklu í viðgerðarkostnað. Ég er nú enginn bifvélavirki en við erum víst að tala um tímagír, sjálfskipting, drif og fullt af einhverju pilleríi sem er búið að kosta mig yfir 1.5 milljón í verkstæðiskostnað á einu ári. Ég hef nánast ekkert getað notað bílinn, því hann er alltaf á verkstæði. Er þetta eitthvað sem menn kannast við, eða er ég bara óheppinn með eintak.

Innsent: 18 Maí 2007, 18:23
frá Henzel
nei þú ert ekki óheppin þú átt alvöru benz

Innsent: 18 Maí 2007, 20:28
frá Júlli
Eins og þú lýsir þessu finnst mér þetta hljóma langt yfir eðlilegum mörkum, það segir sig sjálft að það er ekki eðlilegt að þú borgir 1,5 milljón á ári í viðgerðarkostnað, enda myndi ég ekki halda að neitt af þessu sem þú taldir um þarna ætti að bila eftir svo litla keyrslu :S

En eins og henzel segir geturðu seint talist óheppinn þannig séð þar sem margir (þar á meðal ég) myndu gera ansi margt til að eiga svona bíl :roll:

Innsent: 18 Maí 2007, 21:03
frá SE
Spyr sá sem veit ekki..... en skipting, drif og allt þetta sem þú telur upp í bíl sem er 2005 árgerð :shock: og ekinn 27þús.km. er ekkert af þessu í ábyrgð :roll:

Innsent: 18 Maí 2007, 21:54
frá AMG_POWER
SE skrifaði:Spyr sá sem veit ekki..... en skipting, drif og allt þetta sem þú telur upp í bíl sem er 2005 árgerð :shock: og ekinn 27þús.km. er ekkert af þessu í ábyrgð :roll:


:iagree: Þetta á að vera í verksmiðjuábyrgð, nema að bíllinn sé notaður í kappakstur eða sé tjónabíll...

s 320

Innsent: 18 Maí 2007, 23:01
frá Björgvin B
Sæll félagi ,

Ég tók upp símann fyrir þig félagi og hringdi til Stuttgart til að kanna málið, til svara varð Hr Grubenstiften. Hann tjáði mér það að þetta væri claim dæmi dauðans og ábyrgðin væri klár frá byrjun. Hr Gubenstiften krafðist þess að fá nákvæmar upplýsingar um þessi viðskipti, þar sem hann er þjónustustjóri Mercedes Benz í gjörvallri Evrópu eftir því sem mér skilst.

Re: s 320

Innsent: 18 Maí 2007, 23:24
frá Alpina
Björgvin B skrifaði:Sæll félagi ,

Ég tók upp símann fyrir þig félagi og hringdi til Stuttgart til að kanna málið, til svara varð Hr Grubenstiften. Hann tjáði mér það að þetta væri claim dæmi dauðans og ábyrgðin væri klár frá byrjun. Hr Gubenstiften krafðist þess að fá nákvæmar upplýsingar um þessi viðskipti, þar sem hann er þjónustustjóri Mercedes Benz í gjörvallri Evrópu eftir því sem mér skilst.
Talandi um Þjónustu :shock:

Re: s 320

Innsent: 18 Maí 2007, 23:28
frá Ásgeir Yngvi
Alpina skrifaði:
Björgvin B skrifaði:Sæll félagi ,

Ég tók upp símann fyrir þig félagi og hringdi til Stuttgart til að kanna málið, til svara varð Hr Grubenstiften. Hann tjáði mér það að þetta væri claim dæmi dauðans og ábyrgðin væri klár frá byrjun. Hr Gubenstiften krafðist þess að fá nákvæmar upplýsingar um þessi viðskipti, þar sem hann er þjónustustjóri Mercedes Benz í gjörvallri Evrópu eftir því sem mér skilst.
Talandi um Þjónustu :shock:

Góðan daginn og gleðileg jól ! Björgvin lætur svo sannarlega verkin tala :!: :shock:

:D

Innsent: 18 Maí 2007, 23:46
frá siggi_runar
Það er aldeilis... hér láta menn sko verkin tala...

Innsent: 19 Maí 2007, 00:26
frá ivar
ekkert óeðlilegt við þetta,

benz at its best :lol: