Síða 1 af 2
Innsent: 13 Maí 2007, 21:10
frá Júlli
Þetta er andskoti vel gert hjá þér... ég þarf að fara að æfa mig í þessu svo ég nái þessu svona vel, gekk ekkert hjá mér síðast, notaði rúman hálfan Sonax Hard Wax brúsa en hann bara glansaði ekki neitt :p
Maður skellir sér í þetta eftir prófin

Innsent: 13 Maí 2007, 21:15
frá Júlli
Haha... úff... ég sem fór vandlega yfir margra síðna þráð hérna einhverntímann og komst að þeirri niðurstöðu að flestir mældu með Sonax Hard Wax, sem vinur minn hafði einmitt líka mælt með... en svo segir þú að það sé alveg ömurlegt... af hverju getur fólk bara ekki verið sammála um það hvað er best svo ég þurfi ekki að standa í því að prufa allt sjálfur og mynda mér skoðun? ég nenni því ekkert, það er vesen :p
Innsent: 13 Maí 2007, 21:19
frá Benzari
Hardwax er hreinsibón en allt í lagi ef þér er sama um lakkið á bílnum.
Well done Jón.
Innsent: 13 Maí 2007, 21:22
frá Júlli
Spurning hvort maður fer ekki bara með hann á bónstöð og lætur gera þetta almennilega... á það ekki að endast í einhvern svaka tíma? eða á maður kannski bara að gera þetta sjálfur?
Innsent: 13 Maí 2007, 21:29
frá Halldór Björn
Júlli maður gerir þetta sjálfur, einungis gamalt fólk sem lætur gera þetta fyrir sig...já og fólki sem er bara allveg sama um bíllinn en vilja láta sér líða betur með því að láta bóna hann fyrir sig og halda að þau hafi verið rosa dugleg:D
Innsent: 14 Maí 2007, 00:46
frá Mercedes-Benz
Mjallarbón..
Bera fyrst á allan bílinn og svo hraðbón yfir á eftir. Þurrka svo af með örtrefjaklút...
Svolítil vinna en það virkar...
.... og glansinn á mínum gamla hefur aldrei verið svona flottur

Innsent: 14 Maí 2007, 01:27
frá Frissi
jon skrifaði:sonax er drasl og hardwax er verra en að pissa á bílinn sinn... notaðu autoglym eða maguers

Maguers bónið er got en það er engin ending í því, bónhúðin fer starx af. En Autoglym er samt djöful got.