Síða 1 af 2

Filmur

Innsent: 07 Maí 2007, 08:23
frá Björgvin B
Þekkja menn hvar hægt er að láta setja filmur í rúður, og hvert verðið er.

Innsent: 07 Maí 2007, 08:38
frá Halldór Björn
Ég á það til að skoða l2c.com og þar hafa þesssar spurningar oft komið fram.
Flestir þar vilja meina að IceFilmur geri þetta best en ég held að þeir segi það engöngu því að hann Haukur sem á þetta er notandi þar og póstar mikið og þekkir fullt af þessu fólki.
En hann er víst dýrastur en flestir vilja meina að þetta sé betur gert hjá honum, einnig tekur hann oftast meira fyrir þýska bíla þar sem það er meira vesen að filma þá.
Svo eru til VIPfilms og sumir segja að það séu líka mjög góð vinnubrögð
Líka til Artbílalist

http://www.live2cruize.com/phpBB2/viewtopic.php?t=54909
Hérna er þráðurinn á l2c.com ég hef ekki látið gera þetta við minn en eftir það sem ég hef lestið er icefilmur bestar en vipfilmur ódyrastar.

Hérna eru síðurnar
http://www.internet.is/vip/
http://icefilmur.is/
og ég finn ekki síðun hjá artbílalist...held það sé bara best að hringja á þessa staði og sjá hvaða verð þeir bjóða þér fyrir bíllinn

filmur

Innsent: 07 Maí 2007, 10:11
frá Björgvin B
Takk fyrir greinargóð svör.

Innsent: 07 Maí 2007, 11:39
frá ivar
ég held að binni í kópsson sé að filma líka, ef svo er þá er ekki annað í myndini en að það sé til fyrirmyndar

Innsent: 07 Maí 2007, 11:46
frá Halldór Björn
Ég vissi ekki af því að þeir væru að filma bila, hinsvegar er allt annað sem þeir gera mjög vel gert og flott og þá myndi ég ekki hika við að láta þá filma bíllinn ef þeir eru með sanngjarnan prís

Innsent: 07 Maí 2007, 13:41
frá Andri
Ég held að Binni í Kópsson sé hættur að filma.

En annars mæli ég með ---------->ART Bílalist....

Innsent: 07 Maí 2007, 19:28
frá Skelfir
VIP eru að standa sig í verðinu, lang ódýrastir skilst mér.
Allavega senda b&l ávalt bíla í filmur þangað, vinna hjá b&l, og þeir eru að gera það alveg feiknarlega vel.
Strákarnir segja mér að VIP sé eina filmuverkstæðið sem er með grunnverð undir 20þúsund.
Sel það ekki dýrara en ég keypti það. En þetta heyrir maður allavega.

Innsent: 07 Maí 2007, 21:16
frá Halldór Björn
Hehe Haukur i Ice sagði 50.000kr i bíllinn minn og þá vorum við að tala um glugga fyrir aftan bílstjóra...það var svolitið mikið:D