Síða 4 af 7
Innsent: 30 Apr 2007, 15:31
frá Halldór Björn
Ég er að vinna til svona 8-9 i kvöld kanski ég kíkji..þori því samt varla þar sem ekki er búið að laga ryðblettina á bílnum

Innsent: 30 Apr 2007, 15:56
frá JBV
Ef menn eru á óhreinum eða óryðbættum bílum, ekki láta það stoppa ykkur í að koma á samkomuna í kvöld. Því fleiri því betra, á hreinum sem óhreinum bílum, ryðlausum sem ryðguðum bílum. Umfram allt að blása lífi í fyrsta sumarhittinginn.

Innsent: 30 Apr 2007, 16:02
frá andrz
Klukkan hvað er þetta? Er hún klukkan átta?
Innsent: 30 Apr 2007, 17:54
frá gmg
Ég mæti á stífbónuðum w126, er búinn að vera sveittur í allan dag við að vélarþvo og bóna !
Þetta er kl. 20:30
Innsent: 30 Apr 2007, 19:04
frá JBV
Ég ætla sko að mæta. Sjáiði veðrið sem við fáum!
Innsent: 30 Apr 2007, 23:35
frá JBV
Vááááááá!!!!!!!! Hvílík samkoma!!! Um 30 bílar þegar best lét!!!! Takk fyrir frábæra mætingu, gaman að enda þetta svo með svona flottum hóprúnti allaleið upp í Mosó, þegar við fylgdum Borgfirðingum, Hvalfirðingum og Vestfirðingum út fyrir bæjarmörkin. Við setjum markið hærra og reynum að gera ennþá betur á næstu samkomu kæru Benz félagar!

Þetta er svo gaman þegar vel tekst til með mætingu.

Samkoma
Innsent: 30 Apr 2007, 23:45
frá Björgvin B
Og þú Jón Birgir átt ferfalt húrra skilið fyrir skelegga stjórn á þessari glæsilegustu samkomu sem ég hef farið á, gríðarlega gaman að sjá þessar Benz bifreiðar samankomnar, þó gaman hefði verið að sjá meira af "steðjanúmerum" á samkomunni. Til hamingju félagar með frábæra mætingu og þið strákar úr Borgarfirðinum, sérstaklega gaman að hitta ykkur. Ásgeir þú ert toppmaður ( S-Klassa maður ) kem við hjá ykkur fljótlega félagar.
Innsent: 30 Apr 2007, 23:50
frá siggi_runar
Maður hefur aldeilis verið að missa af samkomu...
Innsent: 01 Maí 2007, 00:14
frá Röggi
Takk fyrir frábæra samkomu

Innsent: 01 Maí 2007, 00:21
frá Mercedes-Benz
Já þetta var frábær skemmtun og gaman að sjá svona breiða flóru bíla allt frá 190D til S65 AMG. Mig langar að þakka öllum fyrir þessa frábæru mætingu og stemninguna sem í hópnum var.
Það var líka töluverð athygli sem klúbburinn fékk í hópakstrinum upp í Mosó. Margir sem maður ók framhjá eða sem óku framhjá okkur fannst augljóslega athyglisvert að sjá svona margar Mercedes-Benz bifreiðar í einni röð.
Mercedes-Benz klúbburinn er lang flottastur...
