Síða 7 af 7

Innsent: 19 Mar 2008, 09:34
frá hoyt
Sælir. Er að fara að gera blog síðu með myndum og smá sögu af uppgerð bílsins. Eru einhverjar tilögur um hvað ætti að koma fram? Kem ekki til með að fara yfir allt skref fyrir skref enn þeim mun meira af myndum.

Krissi

Re: W123 280CE árg. 1979 í uppgerð

Innsent: 05 Maí 2012, 12:40
frá hoyt
Jæja snúðar og snældur. Er að setja inn myndir af uppgerð og ísetningu á mótor. Doktor Rúnar og hjúkkurnar hans tóku verkið að sér og stóðu sig með stakri prýði. Það er líka myndband af fyrstu gangsetningu. Næstu verk er að klára að tilkeyra hann (náðist ekki áður en hann fór undir feld síðasta haust) og þá ætlar doksi að stilla aftur, skipta um olíu og eitthvað fleira sem ég man ekki. Læt hann um að muna smáatriðin. Svo ætlum við að setja nýtt drif og plast innri bretti í sömu atrennu ásamt sandblástnum og sjænuðum pústgreinum. Svo er verið að snuðra eftir teppum og mottum til að fullkomna verkið.

Ég sá á spjallinu að það hefði einhver dekkt botnana í ljósunum hjá sér á svona bíl. Það finnst mér gegt flott og aldrei að vita nema maður dundi sér við það í sumar.
Vona að ykkur líki vel :D

Re: W123 280CE árg. 1979 í uppgerð

Innsent: 05 Maí 2012, 14:01
frá BaraBenz
Er ekki 280CE merkið öfugu megin á skottinu. Ég hef alltaf séð það vinstra megin og aðeins neðar.

[img]http://280ce.blog.is/img/tncache/600x60 ... 010700.jpg[/img]

Ætti að vera svona:

[img]http://images.drive2.ru/car.journal.pho ... 0-main.jpg[/img]

Re: W123 280CE árg. 1979 í uppgerð

Innsent: 05 Maí 2012, 16:27
frá sveinn
Gaman að sjá hvað þú leggur mikinn metað í að gera þennan bíl góðan, og ekkert til sparað :clapping: :tumbsup2:

...fann reyndar ekki myndbandið á bloggsíðunni hjá þér. Er það kannski ekki komið? :)

Re: W123 280CE árg. 1979 í uppgerð

Innsent: 05 Maí 2012, 18:28
frá hoyt
Takk fyrir það. Ég reyni að fá bestu menn að verkefnunum svo allt sé eins og best verður á kosið.

Videoið er komið á sinn stað.

ps. merkið er farið af fyrir 2 árum. Á eftir að finna út hvar það á nákvæmlega að vera áður en ég set það aftur á. Einhver með málin á því eða er það bara tekið með smiðsauganu?

Re: W123 280CE árg. 1979 í uppgerð

Innsent: 05 Maí 2012, 19:21
frá sveinn
hoyt skrifaði:ps. merkið er farið af fyrir 2 árum. Á eftir að finna út hvar það á nákvæmlega að vera áður en ég set það aftur á. Einhver með málin á því eða er það bara tekið með smiðsauganu?
Þú getur örugglega fengið t.d. GMG til að mæla fyrir mig fjarlægðina frá neðri brún skottloksins að undirstriki merkisins og frá vinstri brún að sama undirstriki á G-71 (200 W123). Hann hefði örugglega gaman að því! :wink:

Ég er líka með R-22 niðri í skúr og get mælt þetta fyrir þig. Sennilega er þetta nokkuð stöðluð staðsetning á merkinu.

Re: W123 280CE árg. 1979 í uppgerð

Innsent: 05 Maí 2012, 20:32
frá hoyt
Það er góð hugmynd :tumbsup2: . Fæ ykkur bara báða til að setja inn málin. Sjáum hvort það sé samræmi í þessu. GMG ertu með?

Re: W123 280CE árg. 1979 í uppgerð

Innsent: 06 Maí 2012, 00:44
frá sveinn
hoyt skrifaði:Það er góð hugmynd :tumbsup2: . Fæ ykkur bara báða til að setja inn málin. Sjáum hvort það sé samræmi í þessu. GMG ertu með?
R-22
3cm frá vinstri brún
2.5cm frá neðri brún (myndi miða við ofanverðan lista á w123)

...svona nokkurn vegin

Re: W123 280CE árg. 1979 í uppgerð

Innsent: 06 Maí 2012, 12:07
frá gmg
hoyt skrifaði:Það er góð hugmynd :tumbsup2: . Fæ ykkur bara báða til að setja inn málin. Sjáum hvort það sé samræmi í þessu. GMG ertu með?
Að sjálfsögðu, alltaf til í smá bíló :tumbsup2:

Re: W123 280CE árg. 1979 í uppgerð

Innsent: 19 Maí 2012, 14:17
frá hoyt
Gott. Og færðu sömu mál? Ekkert ca neitt :)