Síða 1 af 2

Innsent: 20 Nóv 2006, 00:10
frá ringi
Yaris fæst ekki með hita í sætum :?

Ég reyndar keypti nýjann Yaris handa konunni minni,
Helvítis dós, en samt ágætis bíll :roll:

Ef þú ert að leita að díselbíl þá munar ekki svo miklu á A-benz og Yaris

1.859 fyrir Toyotu, 2.400 fyrir Benz

550 þús fyrir ALVÖRU BÍL það telst ekki mikið. ..og 45.000 aukalega fyrir yl í sætin.

En mundu að það er ekki sjálfskipting í Yarisnum, heldur MM skipting. eða eins og segir á heima síðu toyotu "Einnig er hægt að velja rafstýrða beinskiptingu með sjálfvirkri stjórnun kúplingar"

Ég prófaði þetta í Corollu Verso.. og var ekki ánægður. þú þarft að sleppa bensíngjöfinni á milli gírskiptinga, ef þú gerir það ekki á réttu augnabliki, kemur leiðinda hik á bílinn, og svo kippir hann í þegar gírkassin grípur aftur í ....
í einu orði sagt: hundleiðinleg skipting.

Innsent: 20 Nóv 2006, 00:19
frá Benni
Yaris vs. A-Benz ?

Ef þú ert tilbúinn að borga aðeins meira fyrir öryggi og meiri aksturseiginleika þá er Benzinn ekki spurning!
A-Benz er líklega öruggasti smábíllinn á markaðinum og merkilegt nokk að maður hefur það á tilfinningunni að maður sé að aka stærri bíl.

Ef ég fengi mér A Benz þá fengi ég mér diesel bíl með sjálfskiptingu því ég er búinn að fá nóg af því að þurfa sífellt að skipta um gír milli ljósa hér í borginni :roll:

Hef reyndar ekki prófað nýja A bílinn en sá gamli kom mér svo ótrúlega á óvart að ég er alvarlega farinn að hugsa um að fá mér svona bíl á næsta ári.

Innsent: 20 Nóv 2006, 10:12
frá siggi_runar
Það er mjög stutt síðan að kom einn nýr í innkeyrsluna hjá okkur. Hann er bara alveg ótrúlega góður og mæli ég bara sterklega með honum.

Innsent: 20 Nóv 2006, 11:10
frá HAMAR
Ég mæli 100% með Benz A-class, einn albesti bíll sem ég hef átt.
Ég átti ´05 A150 sjálfskiptann, svartan með elegance pakka (en ekki rassvermir),
bíllinn var að eyða ca. 9 lítrum innanbæjar.
Mér lukkaðist hinsvegar ekki að eiga bílinn nema í 11 mánuði og ca. 10.000 km þá var hann eyðilagður fyrir mér.
Konan mín sér mikið eftir honum :cry:
Sami munur á milli A-class og Yaris og á Yaris og reiðhjóli :lol:
Fengi mér sennilega frekar reiðhjól :lol:

Innsent: 20 Nóv 2006, 12:25
frá Mercedes-Benz
A-class = 1st class

Þarf ég að segja meira.

Ég er alveg stórhrifinn af þessum bílum, og kanski þess vegna sem ég á einn slíkan.

Ég gæti ekki hugsað mér að skrönglast um á Yaris eftir að hafa ekið A-Benz.

Spurning með þetta dísil. Þar er bíll með miklu meira tog en hinn. En ég myndi nú heldur fara í A180 eða 200 því að A160 er full máttvana svona almennt.

Innsent: 20 Nóv 2006, 12:30
frá JBV
Hvernig er annars nýi A-classinn í samanburði við gamla A-classinn?

Innsent: 20 Nóv 2006, 12:42
frá lhg
Manni finnst nú líklegt að af þessum smátíkum sem eru í umferð að A-Benzinn beri höfuð og herðar yfir þá alla.

Innsent: 20 Nóv 2006, 13:08
frá Mercedes-Benz
JBV skrifaði:Hvernig er annars nýi A-classinn í samanburði við gamla A-classinn?
Lengri, breiðari og miklu meiri bíll. Mér finnst nýji bílinn töluvert mikið skemmtilegri í akstri en sá gamli. Mér finnst nýji bílinn líka svolítið fallegri en sá gamli. :wink:

Innsent: 20 Nóv 2006, 13:45
frá Benni
Mercedes-Benz skrifaði:
JBV skrifaði:Hvernig er annars nýi A-classinn í samanburði við gamla A-classinn?
Lengri, breiðari og miklu meiri bíll. Mér finnst nýji bílinn töluvert mikið skemmtilegri í akstri en sá gamli. Mér finnst nýji bílinn líka svolítið fallegri en sá gamli. :wink:
Þetta er nefnilega nokkuð merkilegt því að manni finnst eins og nýji bíllinn sé minni þegar maður sér hann :roll: en líklega er það vegna þess að línurnar eru orðnar ávalari, ekki eins kantaður og sá gamli. Svo á ég auðvitað eftir að prófa hann :wink:

Nýji bíllinn er jú fallegri en sá gamli en samt er sá gamli orðinn klassískur og fyndið hvað maður sér útlitið á honum í mörgum bílum í dag, t.d. Yaris :?