Síða 2 af 2
Innsent: 20 Nóv 2006, 13:47
frá lhg
Mercedes-Benz skrifaði:JBV skrifaði:Hvernig er annars nýi A-classinn í samanburði við gamla A-classinn?
Mér finnst nýji bílinn líka svolítið fallegri en sá gamli.

Sammála því. Breytingarnar gerðu ótrúlega mikið fyrir bílinn.
Innsent: 20 Nóv 2006, 17:49
frá ivar
meðað við hvað gamli a bíllin var ljótur.. þá er eins og þeim hafi þótt nýji A bíllin of fallegur og ´búið til B bílin til að vera ljótan í staðin

Innsent: 20 Nóv 2006, 17:58
frá Benni
ivar skrifaði:meðað við hvað gamli a bíllin var ljótur.. þá er eins og þeim hafi þótt nýji A bíllin of fallegur og ´búið til B bílin til að vera ljótan í staðin


- dálítið til í þessu, finnst eins og framendinn sé pínu misheppnaður

Innsent: 20 Nóv 2006, 19:21
frá Louis Cyphre
Vinnubíllinn minn er Yaris.... algjört fjós! Dósahljóð, ljótur að utan sem innan sem utan, ekkert í hann lagt. Óþolandi þetta svokallða mælaborð í honum og óþægilegt að keyra hann í myrkri útaf því. Hann er svo gjörsamlega vélavana að maður er jafnvel kominn í fyrsta gír til að komast upp brekkur ef maður er ekki einn í honum. Nú hef ég aldrei keyrt A-Benz, en hitt get ég fullyrt að eftir að hafa leigt mér Ford Fiestu í Danmörku á dögunum, þá er sá bíll mörgum klössum fyrir ofan Yaris. Svo varðandi bilanatíðni, þá eru gæðin í Toyota ekki þau sömu og þau voru fyrir svona fimm árum. Hinsvegar afbragðs umboð.
Innsent: 20 Nóv 2006, 20:57
frá Mercedes-Benz
Innsent: 21 Nóv 2006, 10:41
frá lhg
Louis Cyphre skrifaði:Vinnubíllinn minn er Yaris....
Samhryggist!!
Innsent: 21 Nóv 2006, 13:56
frá Louis Cyphre
já takk fyrir það, sem beturfer þá "vinn" ég ekki á bílnum heldur hef hann til afnota frá vinnuveitanda, þannig að þetta er ekki alveg jafn slæmt og það lítur út fyrir að vera

Innsent: 22 Nóv 2006, 14:29
frá E 220T
lhg skrifaði:Manni finnst nú líklegt að af þessum smátíkum sem eru í umferð að A-Benzinn beri höfuð og herðar yfir þá alla.
Ég er sammála. Ég átti einu sinni A160 sem ég keypti eftir að hafa prófað flestar smátíkur á markaðnum en hann bar höfuð og herðar yfir þær. Hins vegar er þetta náttúrulega ekkert til að bera saman við stærri Benzana eins og þú eflaust veist.
En sem smástík handa konunni er eflaust erfitt að finna betri bíl
