Síða 1 af 1
TOYO Harðskeljadekk
Innsent: 06 Nóv 2006, 18:22
frá SE
Sá auglýsingu frá Bílabúð Benna um TOYO Harðskeljadekk......
Nú spyr ég þekkir einhver þessi dekk??
Getur maður skipt út nöglunum fyrir valhnetuskeljarnar??
Innsent: 06 Nóv 2006, 20:01
frá Benzari
Það hefur sýnt sig síðustu ár að naglarnir eru óþarfir hérna í borginni.
Blizzak eru svolítið viðkvæmt fyrir snjóleysi og endast rétt 2-3 vetur.
Þekki ekkert til Toyo vetrargúmmís.
Innsent: 08 Nóv 2006, 16:10
frá andrz
Ég var á naglalausum TOYO vetrardekkjum á Mözdunni minni í fyrra og mér fannst þau virka fínt. Voru lítið sem ekkert eydd eftir mikinn leikara skap mest allann veturinn og mikla keyrslu.
Eins og hvernig veður gerði á höfuðborgarsvæðinu í fyrra þegar allt kaffærðist áí snjó í einhverja 4 eða 5 daga virkuðu dekkin mjög vel. Ég hugsa að skeljarnar nýtist ágætlega hér innanbæjar allaveganna. Það sýna þessir útreikningar sem fylgdu auglýsingunni í Mogganum

Innsent: 09 Nóv 2006, 00:41
frá SE
Ég er með TOYO undir jeppanum og er mjög ánægður með þau, hljóðlát og fín en spurning með þessar skeljar
Ég er að hugsa þetta undir gamla W123..... spurning hvort gömlu naglarnir séu ekki málið undir gamla

Innsent: 09 Nóv 2006, 09:26
frá GUMMCO
SE skrifaði:Ég er með TOYO undir jeppanum og er mjög ánægður með þau, hljóðlát og fín en spurning með þessar skeljar
Ég er að hugsa þetta undir gamla W123..... spurning hvort gömlu naglarnir séu ekki málið undir gamla

Mundi segja nagladekk og fullt af sandi í skottið

Innsent: 09 Nóv 2006, 11:15
frá SE
GUMMCO skrifaði:Mundi segja nagladekk og fullt af sandi í skottið

Hallast að því sko... sérstaklega eftir hálkuna í gær/morgun
