Innsent: 21 Sep 2006, 15:45
Fjarki skrifaði:Af tvennu illu þá fer ég milliveginn og fæ mér Avensis eða Accord. Finnst verð á bílum sem eru undir þeim stærðarflokki bara rugl.HAMAR skrifaði:Toyota Corolla sj.sk. er á 2.3 mill.
Mercedes Benz A150 er á 2.6 mill sj.sk. með elegance/avantgerde pakkanum.
Hvort kaupir maður nýjann Benz eða Toyotu ?
Ég valdi Benz A150 og sé ekki eftir því.
Ef við tökum corolluna sem dæmi þá hljótum við að þurfa taka hatchback þá er verðið á svoleiðis bíl 2.1 milla.
En Benzinn er flottur og eflaust vel búinn, hann má eiga það. En mér finnst það oft, ef að maður er að kaupa svona snattara þá þarf maður ekkert að hafa hann ægilega fínann. Jú þetta er bara bíll til að snattast á. Þarf að uppfylla ákveðnar kröfur og málið er dautt. En ef á að nota þennan bíl sem alhliða bíl, innanbæjar, utanbæjar, langferðir og þar eftir götunum er allt í lagi að splæsa aðeins á sig og kannski versla sér eitt stykki Benz.
Góðar stundir
Það er nú reyndar hægt að finna verulega góða notaða Benza fyrir sama verð og nýr Avensis eða Accord.
En ef menn líta á bíl sem tæki eingöngu til að koma manni frá A til B er Avensis málið
Við sem höfum gaman af því keyra fáum okkur Benz, bara misgamla eftir því sem fjárhagurinn leyfir hverju sinni.