Síða 1 af 1

Tollar og gjöld

Innsent: 28 Maí 2006, 20:18
frá Hlynur
Er ekki einhver sem er með tolla og gjöld á hreinu fyrir útreikninga, ef maður vill kaupa bíl úti. Ég man ekki hvað vörugjaldið er, en það hækkar ef bílar eru með stærri mótor 3.0 eða var það 3.5 lítra ?? Reiknar maður vörugjaldið líka af frakt og tryggingu ??

Vonandi er einhver sem veit þetta.


Hlynur

Innsent: 28 Maí 2006, 20:26
frá Ingvar1972
Á heimasíðu BMW trúfélagsins er ágætis reiknivél. http://www.bmwkraftur.is/innflutningur/

Aðflutningsgjöld eru reiknuð af CIF verði bílsins (Cost, Insurance and Freight)
Meira hér http://www.tollur.is/displayer.asp?cat_id=204

Innsent: 29 Maí 2006, 00:33
frá siggi_runar
Fáránlega dýrt alveg... maður kaupir bíl úti á 1.500.000kr.- kannski og hann er eitthvað yfir tveggja lítra. Svo þarf maður að flytja hann til landsins einhvernveginn og þá kostar kannski 90.000kr.- ( bara að leika með tölur ) Svo þegar hann er kominn hingað þá reiknar tollurinn 1500000 x 1,45 = 2.175.000kr.- og þá eru það gjöld og flutningur sem eru 90.000kr.- og það leggst á þetta = 2.265.000kr.- sem margfaldast svo með 1.245 sem gefur manni 2.819.925kr.-. Þá er maður búinn að fjárfesta í tveimur eins bílum á leiðinni hingað til landsins.

Innsent: 29 Maí 2006, 12:15
frá Baddi
siggi_runar skrifaði:Fáránlega dýrt alveg... maður kaupir bíl úti á 1.500.000kr.- kannski og hann er eitthvað yfir tveggja lítra. Svo þarf maður að flytja hann til landsins einhvernveginn og þá kostar kannski 90.000kr.- ( bara að leika með tölur ) Svo þegar hann er kominn hingað þá reiknar tollurinn 1500000 x 1,45 = 2.175.000kr.- og þá eru það gjöld og flutningur sem eru 90.000kr.- og það leggst á þetta = 2.265.000kr.- sem margfaldast svo með 1.245 sem gefur manni 2.819.925kr.-. Þá er maður búinn að fjárfesta í tveimur eins bílum á leiðinni hingað til landsins.
Einmitt, þegar ég skoða bíla erlendis þá nota ég þumalputtann á þetta og hann segjir x2 svona til að grófreikna þetta.