Síða 1 af 5

Radarvarar

Innsent: 17 Mar 2006, 15:11
frá lhg
Ég er búinn að vera að pæla aðeins í radarvörunum sem eru í boði á markaðnum og er ekki alveg kannski nógu klár í þessum málum.

Hvert er álit manna á þessu? Hvaða týpur eru bestar? Er kannski ekkert vit í því að fá sér radarvara yfir höfuð, eru tækin hjá löggunni orðin það góð að þeir nema þetta ekki nema of seint?

Re: Radarvarar

Innsent: 17 Mar 2006, 15:31
frá kolbeinsson
lhg skrifaði:Ég er búinn að vera að pæla aðeins í radarvörunum sem eru í boði á markaðnum og er ekki alveg kannski nógu klár í þessum málum.

Hvert er álit manna á þessu? Hvaða týpur eru bestar? Er kannski ekkert vit í því að fá sér radarvara yfir höfuð, eru tækin hjá löggunni orðin það góð að þeir nema þetta ekki nema of seint?
Ég persónulega er með radarvara (sem ég reyndar nota ekki lendur). Sá kostaði 14.000 (flutti hann inn). Hann er góður til síns brúks. Ef hann bjargar manni tviscar sinnum frá því að fá sekt þá er hann strax búinn að borga sig. Hann vælir þegar löggan er í visst mikilli fjarlægð og þá fær maður smá frest til að spenna sig og hægja aðeins á. En hinsvegar er það mjög varasamt að treysta um of á þessi tæki því flestir nema ekki leyserinn sem löggan er komin með núna, hins vegar er til e-ð takmarkað magn af þessum leyserum held ég svo eitt stk radar er ekki lengi að borga sig upp held ég.

Innsent: 17 Mar 2006, 15:53
frá ivar
valentin one eða hvernig sem það er nú skrifað eiga að vera bestir,

whistler fá voða góða dóma en ég persónulega þoli þá ekki, finnst þeir háværir og leiðinlegt hljóð í þeim,

ég hef verið með tvo cobra og kunni vel við þá, og ekki spurning.. þeir rótvirkuðu

Innsent: 17 Mar 2006, 16:16
frá lhg
Já mér finnst líklegt að þetta sé fljótt að borga sig upp. Mér bíðst að kaupa Cobra Pro 9780 á mjög góðu verði. Fæ að testa hann um helgina og ætla að pæla aðeins í honum.

Það sem að fer sjúklega í taugarnar á mér samt er að snúran skuli hanga úr sígarettukveikjaranum yfir í radarvarann sem hengur í rúðunni. Hvaða leiðir er hægt að fara til að fela þetta? Hvað erum við hugsanlega að tala um í kostnaði?

Innsent: 17 Mar 2006, 16:28
frá ivar
ég hef alltaf tekið rafmagnsvír með Dc tengi og tengt hann inn á rafmagn m.a frá kveikjaranum og leitt snúruna í gegnum mælaborðið og tekið hana upp um miðstöðvarop við framrúðuna, þannig verður þetta allt mjög snyrtiilegt, og það kveiknar á honum þegar maður ræsir bílinn,

í gamla 735 bimmanum mínum gerði ég þetta, síðan stal ég rafmagni úr kveikjaranum fyrir aftursætin og setti tvær snúrur með plöggum til að hlaða ericsson og nokia síma og leiddi það upp með armpúðanum. það var mjög þægilegt, þá var alltaf tiltækt hleðslutæki og öskubakkinn þurfti ekki alltaf að vera opin ef maður var að hlaða síman

Innsent: 17 Mar 2006, 17:26
frá kolbeinsson
ivar skrifaði:ég hef alltaf tekið rafmagnsvír með Dc tengi og tengt hann inn á rafmagn m.a frá kveikjaranum og leitt snúruna í gegnum mælaborðið og tekið hana upp um miðstöðvarop við framrúðuna, þannig verður þetta allt mjög snyrtiilegt, og það kveiknar á honum þegar maður ræsir bílinn,

í gamla 735 bimmanum mínum gerði ég þetta, síðan stal ég rafmagni úr kveikjaranum fyrir aftursætin og setti tvær snúrur með plöggum til að hlaða ericsson og nokia síma og leiddi það upp með armpúðanum. það var mjög þægilegt, þá var alltaf tiltækt hleðslutæki og öskubakkinn þurfti ekki alltaf að vera opin ef maður var að hlaða síman
:iagree:

Innsent: 17 Mar 2006, 22:22
frá f50
bjossi6 skrifaði:ég er mað escort passport 8500, hann er ódýrari en valentine one en kemst næst honum í gæðum, hljóðin eru ekki pirrandi, hann tekur allan radar hjá löggunni, hef samt ekki lent í laser. hann kostar samt 38500kr hjá nesradío en hann er fljótur að borga sig ef þú ert með þungan bensínfót, ég lét nesradíó setja hann í einn bíl sem ég átti og það kostaði nokkra þúsundkall extra, en þetta borgar sig samt :D
Er einmitt með þennan radarvara líka og ég hef sagt það áður og stend við það að ég treysti þessum radarvara nánast 100%, án þess að ýkja þá hef ég margoft cruisað á öðru og stundum þriðja hundraðinu yfir hellisheiðina án þess að hafa nokkrar áhyggjur af löggunni enda hef ég aldrei verið tekinn þegar ég er með þennan radarvara. Ég lét einnig Nesradio tengja hann fyrir mig beint í BMW-inn og er með hann staðsettan beint fyrir ofan baksýnisspegilinn því þá er líka svo auðvelt að teygja sig í hann ef hann byrjar að pípa útaf rennihurðum og öðru slíku sem gerist reyndar afar sjaldan.

Valentine One er betri að því leyti að hann á minnir mig að nema radar í allar áttir 9km, meðan Escort 8500 nemur radarinn ekki svo langt til hliðanna og aftur, hinsvegar nemur Escort 8500 radarinn 12km beint áfram, einnig er hægt að sjá á Valentine One úr hvaða átt löggan er að skjóta. Valentine One er síðan ekki fáanlegur lengur hérlendis ef ég man rétt.

Innsent: 17 Mar 2006, 22:32
frá SLK
f50 skrifaði:

VAELENTINEONE okki spurning