Síða 1 af 4
Re: SLK í ártúnsbrekkunni í gærmorgun.
Innsent: 25 Jan 2006, 20:51
frá SLK
Burri skrifaði:Veit einhver hér hvaða slk þetta var sem fór í buff í ártúnsbrekkunni í gærmorgun.
gott að eigandinn fékk einungis blóðnasir.hefði geta farið mjög illa þarna !
gleðst hanns vegna fyrir að hafa sloppið á lífi en samhryggist hinsvegar fyrir að missa svona bíl í pressuna. þetta var silfur grár slk með AMG kitti.
p.s hvaða fíflaskapur var að sýna mynd af honum í nýjum svörtum SLK að máta nýja bílinn í sömu frétt og mynd er byrt af hinum í mauki ? uppá stunga frá tryggingafélagi eða ??

fannst þetta frekar kjánalegt
hér er þetta á vísi
http://www.visir.is/apps/pbcs.dll/artic ... 50039/1091
Held að hann hafi verið fluttur inn í sumar og sé SLK 230 Kompressor
Innsent: 25 Jan 2006, 21:07
frá JBV
Það voru fleiri sem ráku upp stór augu við þessa frétt á forsíðunni

Bæði yfir því að maðurinn skyldi sleppa með einungis eymsli í baki og hálsi og svo blóðnasir, miðað við hvernig SLK-inn var útleikinn. Síðan þessi mynd af manninum að máta annan SLK!!
Hefur þetta eitthvað með viðskipti Dagsbrúnar (m.a. eiganda Fréttablaðsins) á hlut í Sjóvá Almennum á dögunum að gera? Kanski dulbúinn auglýsing, eins og Magne bendir réttilega á!?
Innsent: 25 Jan 2006, 21:12
frá Ásgeir Yngvi
JBV skrifaði:Það voru fleiri sem ráku upp stór augu við þessa frétt á forsíðunni

Bæði yfir því að maðurinn skyldi sleppa með einungis eymsli í baki og hálsi og svo blóðnasir, miðað við hvernig SLK-inn var útleikinn. Síðan þessi mynd af manninum að máta annan SLK!!
Hefur þetta eitthvað með viðskipti Dagsbrúnar (m.a. eiganda Fréttablaðsins) á hlut í Sjóvá Almennum á dögunum að gera? Kanski dulbúinn auglýsing, eins og Magne bendir réttilega á!?
Já ég var alveg bara WTF !!! Frekar skrýtið.
Nákvæmlega.....
Innsent: 25 Jan 2006, 21:14
frá Kristín
Svolítið skrýtið sko.....
Innsent: 25 Jan 2006, 21:17
frá siggi_runar
Er sammála með þetta vísismál en mogginn segir já að þetta hafi verið SLK230 Kompressor. Mér finnst viðtalið aftaná mogganum miklu betra en þar er þessu lýst miklu betur. Einnig segir strákurinn að hann sé heppinn að hafa ekið um á Mercedes og sé mjög þakklátur merkinu fyrir að standast þetta og einnig það að allur öryggisbúnaður virkaði einsog átti að gera.
Innsent: 25 Jan 2006, 21:19
frá SE
Já ég tek undir þetta, fannst þetta ansi skrýtið.
Hann verður nú að teljast heppinn að sleppa svona vel frá þessu slysi, hefði getað farið miklu verr.
Mér finnst reyndar það að þetta stykki skildi losna svona af flutningabílnum nokkuð alvarlegt mál..... var þetta nógu vel fest??
Innsent: 25 Jan 2006, 21:22
frá siggi_runar
SE skrifaði:Já ég tek undir þetta, fannst þetta ansi skrýtið.
Hann verður nú að teljast heppinn að sleppa svona vel frá þessu slysi, hefði getað farið miklu verr.
Mér finnst reyndar það að þetta stykki skildi losna svona af flutningabílnum nokkuð alvarlegt mál..... var þetta nógu vel fest??
Það segir þarna á vísi að það hafi einmitt ekki verið nógu og góður frágangur á þessu, að þetta hafi verið látið á blautan pall og fest bara með einhverjum nælonböndum. Það er hægt að kæra fyrir þetta en það er eitthvað sem SLK strákurinn verður bara að ráða úr sjáfur, íslenska kerfið er líka svo slow í svona málum að það væru allir búnir að gleyma þessu held ég áður en niðurstaða fengist.
Innsent: 25 Jan 2006, 21:24
frá Ásgeir Yngvi
SE skrifaði:Já ég tek undir þetta, fannst þetta ansi skrýtið.
Hann verður nú að teljast heppinn að sleppa svona vel frá þessu slysi, hefði getað farið miklu verr.
Mér finnst reyndar það að þetta stykki skildi losna svona af flutningabílnum nokkuð alvarlegt mál..... var þetta nógu vel fest??
Nei. Það er einmitt það sem var að. Þeir voru ekki með keðjur á þessu. Gaurinn á bílnum er líklega að leita sér að nýrri vinnu núna, eða þá er hann ný alvarlega skammaður. Þetta hefði getað kostað mannslíf. En auðvitað er þetta ekki bara honum að kenna, það var jú svínað fyrir hann og hann neyddist til að snögghemla.
Innsent: 25 Jan 2006, 21:50
frá ivar
þessi bíll var ekki fluttur inn í sumar og var með einkanúmerið shark, þetta var slk230 já, ég var rétt fyrir aftan þetta og var fastur í heillangan tíma rétt fyrir aftan þetta og hafði góðan tíma til að velta bílnum fyrir mér og fylgjast með... þetta var hrottaleg aðkoma og ég var bókstaflega hissa að heyra af því seinna um daginn að gaurin hefði sloppið því að vá hvað bíllin var skemdur, myndin í mogganum sýnuir ekki aðaltjónið á honum