Síða 3 af 4
Innsent: 26 Jan 2006, 10:28
frá ivar
Burri skrifaði:ivar skrifaði:nei það efast ég um, þetta er svo mikill rugl fréttaflutningur, öryggispúðarnir í stýrinu blása ekki út ef þú veltir bílnum, þeir blása út hefur það kemur högg á nema sem er framan í bílnum, bíllin hjá honum var óskemmdur að framan, enda hefði það ekkert hjálpað honum að fá púðan í andlitið þegar allt höggið var frá hlið
það eru nú hliðarbúðar í nýlegum mercedes og gott betur en það ! alveg uppí lofti á sumum líka sem fer fyrir gluggann
það er líka í nýrri toyotunum, og reyndar all flestum nýrri bílu, mazdan mín er með 8 loftpúða, en hliðarpúðar fóru ekki að verða nánast standart fyrr en sona 04, þegar það var búið að sanna það að þeir gerði gæfumunin í hliðarárekstrum
Innsent: 26 Jan 2006, 15:12
frá kolbeinsson
Er LC 100 ekki með hliðarloftpúðum? Mér finnst það mjög skrýtið ef svo er ekki.
Innsent: 26 Jan 2006, 16:00
frá ivar
mér skylst að það sé í yngri bílum en hans
Innsent: 26 Jan 2006, 17:52
frá kolbeinsson
ivar skrifaði:mér skylst að það sé í yngri bílum en hans
Og hvað var hans gamall?
Innsent: 26 Jan 2006, 18:53
frá Ztebbsterinn
siggi_runar skrifaði:Er sammála með þetta vísismál en mogginn segir já að þetta hafi verið SLK230 Kompressor. Mér finnst viðtalið aftaná mogganum miklu betra en þar er þessu lýst miklu betur. Einnig segir strákurinn að hann sé heppinn að hafa ekið um á Mercedes og sé mjög þakklátur merkinu fyrir að standast þetta og einnig það að allur öryggisbúnaður virkaði einsog átti að gera.
það stendur ekki að hann sé Kompressor, en vitiði til þess að hann sé það fyrir víst??
Innsent: 26 Jan 2006, 18:59
frá arnilst
kolbeinsson skrifaði:ivar skrifaði:mér skylst að það sé í yngri bílum en hans
Og hvað var hans gamall?
Bíllinn hans Steingríms var 6 eða 7 ára gamall.
Innsent: 26 Jan 2006, 19:05
frá Ztebbsterinn
Samkvæmt skráningu er þetta 230SLK bíll, 142 kW, "97 módel flutt inn "00
Innsent: 26 Jan 2006, 20:20
frá siggi_runar
Burri skrifaði:Ztebbsterinn skrifaði:siggi_runar skrifaði:Er sammála með þetta vísismál en mogginn segir já að þetta hafi verið SLK230 Kompressor. Mér finnst viðtalið aftaná mogganum miklu betra en þar er þessu lýst miklu betur. Einnig segir strákurinn að hann sé heppinn að hafa ekið um á Mercedes og sé mjög þakklátur merkinu fyrir að standast þetta og einnig það að allur öryggisbúnaður virkaði einsog átti að gera.
það stendur ekki að hann sé Kompressor, en vitiði til þess að hann sé það fyrir víst??
öööö held nú að það sé ekki til slk 230 án kompressor hmm held ég
Það er ekki til... það er alveg satt.