Síða 1 af 2
E500 W124, finna og flytja inn
Innsent: 23 Jan 2006, 21:27
frá Hlynzi
Mig vantar eins mikið info og hægt er um E500 týpuna (helst eftir ágúst 1993 til lok framleiðslu 1995...3 faceliftið) (og hver er munurinn á limited útgáfunni?)
Planið er að selja E420 fyrir sumarið, fer til Þýskalands í Júní næsta sumar og ætla að fá mér E500. Auðvitað er möst að hafa þetta með u.þ.b. öllum aukabúnaði og helst ekið undir 200 þúsund km.
Ég verð staddur í Hannover, og ef einhver gæti gefið mér lista yfir sölur sem þar eru væri hann vel þeginn.
Innsent: 23 Jan 2006, 23:34
frá flamatron
Myndi byrja að setja bílinn á sölu núna ef þú villt losna við hann,, svolítið margir að selja e420 bíla nuna...
Innsent: 24 Jan 2006, 09:52
frá Hlynzi
Hann fer á sölu eða auglýsingu eftir mánaðarmót, þarf að henda nýrri olíu á bílinn, fara með hann í tölvutjekk ef ég nenni og svo fá 07 miðann á hann.
Innsent: 24 Jan 2006, 15:41
frá Björgvin
Já það virðist nú ekki vera það auðveldasta í heimi þessa dagana að selja 420E420 bíla! Skrýtið að 420 bílinn með þessu flotta láni skuli t.d ekki ennþá vera seldur.....
En þú átt flottan bíl og ætti nú vonandi að seljast nokkuð vel en maður veit aldrei svo þarf líka að skoða verðmiðann! Sýnist fólk ekki vera tilbúið að borga meira en 900 til millu fyrir svona bíl í dag....
Varðandi 500 bílinn þá verður bíllinn 320 hestar eftir facelift 09/1993! Limited bílinn kom um mitt ár 1994 og var framleiddur í takmörkuðu upplagi! Þeir eru flestir með EVO felgurnar og svo eru þeir með marglit leðuráklæði! semsagt svört á köntunum og svo einhvern aukalit innaní grænan/svartan bláan/svartan eða rauðan/svartan hefur maður séð....
[img]
http://bilder.mobile.de/images/autos/52 ... 218_2.bild[/img]
[img]
http://bilder.mobile.de/images/autos/51 ... 226_3.bild[/img]
kveðja
Innsent: 24 Jan 2006, 17:17
frá Gunnar Þór
Er það ekki bara "Limited" útgáfan af E500 sem er með þessu vafasama leðuráklæði?
Það ætti að vera hægt að fá E500 3.gen með t.d. svörtu leðri.
Innsent: 24 Jan 2006, 18:03
frá Hlynzi
Gunnar Þór skrifaði:Er það ekki bara "Limited" útgáfan af E500 sem er með þessu vafasama leðuráklæði?
Það ætti að vera hægt að fá E500 3.gen með t.d. svörtu leðri.
Annað hvort svart, hvítt eða Designo (litamynstrað) á þetta.
Innsent: 26 Jan 2006, 11:30
frá E 220T
Það var hæt að sérpanta svart leður í Limited bílana.
Held samt að það sé erfitt að fá '94-'95 árgerð fyrir minna en 15.000 Evrur nema eintakið sé lélegt. Yfirleitt er sett 20.000 Evrur eða meira á þá, a.m.k. þá sem eru með þjónustubók og keyrðir undir 200.000.
Innsent: 26 Jan 2006, 17:11
frá Stinnitz
E 220T skrifaði:Það var hæt að sérpanta svart leður í Limited bílana.
Held samt að það sé erfitt að fá '94-'95 árgerð fyrir minna en 15.000 Evrur nema eintakið sé lélegt. Yfirleitt er sett 20.000 Evrur eða meira á þá, a.m.k. þá sem eru með þjónustubók og keyrðir undir 200.000.
sammála, a.m.k. miðað við mobbann.
Innsent: 26 Jan 2006, 19:33
frá Aequitas
hvernig er það.....verðið sem maður sér á mobile er það verðið sem þessir bílar eru að fara á ?
Innsent: 26 Jan 2006, 19:51
frá Hlynzi
Aequitas skrifaði:hvernig er það.....verðið sem maður sér á mobile er það verðið sem þessir bílar eru að fara á ?
Ég efast um að þetta sé staðgreiðsluverð, þetta er líklegast ásett verð.
En verðin sem maður horfir á þarna eru í flestum tilfellum mjög raunhæf (annað en hérna)
Svo má ekki gleyma 45% tolli (stærri en 2 lítra vél), 24,5% vsk. sem gerir um 80-100% ofaná upphæðina sem maður getur keypt bílinn á úti.