Síða 1 af 2

S430

Innsent: 02 Jan 2006, 00:52
frá siggi_runar
Það er dáldill draumur að fá sér S bifreið svona í framtíðinni, finnst þetta boddý vera alveg rosalega vígalegt... fann svo þennann hér á landi þegar ég kíkti á bílakassann, veit einhver eitthvað um þennann bíl ?

http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=C ... _ID=113748

Ef eitthvað mið á að taka á þessum bílum í þýskalandinu þá þarf þetta verð nú eitthvað að lækka.

Innsent: 02 Jan 2006, 00:59
frá Benzari
Þú spáir ekki í þessum bílum hér heima nema að setja C36 á listaverði uppí, bara rugl verðin hérna hvað þá á USA bílum sem enginn vill kaupa.

Innsent: 02 Jan 2006, 01:03
frá siggi_runar
Ég hef aldrei séð eða heyrt um neitt listaverð á c36 sko, er einhver sem að veit það eða ?

Það er allavegana annar c36 til sölu hérna sem er á 2,2mills og minn er meira að segja betri en sá en 400.000 kallinum minna skellt á hann.

Innsent: 02 Jan 2006, 01:15
frá Benzari
Nei líklega erfitt að finna e-ð listaverð á AMG bílana, fáir ef einhverjir seldir nýjir í umboði býst ég við.

Þessi á 2,2 er löngu úreld skráning og lítið að marka.

Innsent: 02 Jan 2006, 07:28
frá siggi_runar
Vildi bara að einhver myndi staðgreiða bílinn af mér... !

Innsent: 02 Jan 2006, 21:20
frá siggi_runar
Hvernig er það með aðra... er enginn annar að fýla 220 boddýið ?

Innsent: 02 Jan 2006, 21:55
frá gmg
siggi_runar skrifaði:Hvernig er það með aðra... er enginn annar að fýla 220 boddýið ?
Ó jú þetta eru svakalega fallegir bílar !!!!

Hann er hátt á óskalistanum :wink:

Innsent: 03 Jan 2006, 00:17
frá siggi_runar
Ég er alveg að sjá sjálfan mig á svona 5,0 lítra fallegu villidýri.. að sjá svona renna framhjá sér... úff, hakan mun þurfa plástur eftir fallið !

( Er að reyna að ímynda mér að ég sitji þarna )

[img]http://i6.ebayimg.com/02/i/05/cf/51/7a_1.JPG[/img]

Innsent: 03 Jan 2006, 00:20
frá siggi_runar
Veit einhver hve margir svona eru í umferð hérna ? Hef ekkert séð svo marga.

Innsent: 03 Jan 2006, 00:39
frá gmg
Þeir eru nokkrir allavega 5-10 bílar þess vegna fleiri !