Síða 2 af 2

Innsent: 02 Des 2005, 00:02
frá Mercedes-Benz
ringi skrifaði:allvega kaupir hann ekki Benz i köben... verðið þar er ekki budduvænt

A-150 verð frá 3,5
ML 280 verð frá 9,8
E-200 verð frá 7,5
C-200 Verð frá 6,4
S-350 verð frá 15,3

maður skilur núna af hverju daninn hjólar bara og drekkur bjór :beerchug:
...... og ef þeir kaupa bíla að þá eru það útlifaðar bíltíkur frá Þýskalandi. Bróðir minn býr á Fjóni og hann segir að notaðir bílar frá Þýska heimsveldinu séu fluttir í bílfarmavís yfir til Danmerkur þar sem þeim er víst ekið til hárrar elli.

re

Innsent: 02 Des 2005, 00:07
frá kolbeinsson
Þröstur skrifaði:Ætli hann kaupi ekki mellu :D
Handa mér? :shock:

Bensar í DK....

Innsent: 02 Des 2005, 23:50
frá Eysisig
Ég hef nú aðeins verið að skoða verðið á þessum bílum hérna úti og það er alls ekki galið er maður kaupir bílinn og flytur hann úr landi. Með því sleppur maður við Danska tollinn. En þá er nú sennilega bara betra að kaupa hann beint frá Þýskalandi. EN usssss..... hvað tollurinn er á þessu hérna, enda virðist danska ríkisstjórnin gera allt til þess að sporna við bílaeign almennings.
Það er samt mjög gaman að sjá að hérna úti með bílana sem eru í eigu fyrirtækja (vsk bílar), hérna eru þeir nefnilega á öðruvísi lituðum númerum en "venjulegir" bílar......það eru þó aðalega sverir Mercedes og eitthvað svoleiðis gotterí :wink:

Innsent: 03 Des 2005, 20:45
frá ringi
Þjóðverjar hafa einmitt notfært sér þetta "ástand" með því að kaupa bíla ótollaða frá danmörku. Danskir bílasalar hafa fengið ódýrara verð frá verksmiðju, til að vega upp á móti svívirðilegri hárri tollareglum.

Síðan er hægt að fá t.d. ML bílinn á rauðun númerum, útbúinn sem "lastebil" þá er búið að breyta honum í vsk. bíl, nema að hver sem er má nota hann sem slíkann. Þess vegna eru allir flottu bílarnir t.d. C36 AMG staition, útbúnir sem sendibílar! :cry:

T.d kostar ML í sendibíla útgáfu aðeins 4,3 á móti 9,8 í venjulegri útgáfu :cry:

Furðulegar reglur :roll:

Innsent: 04 Des 2005, 17:29
frá bjozzi
:iagree:

Innsent: 04 Des 2005, 18:01
frá Baddi
ringi skrifaði:Þjóðverjar hafa einmitt notfært sér þetta "ástand" með því að kaupa bíla ótollaða frá danmörku. Danskir bílasalar hafa fengið ódýrara verð frá verksmiðju, til að vega upp á móti svívirðilegri hárri tollareglum.

Síðan er hægt að fá t.d. ML bílinn á rauðun númerum, útbúinn sem "lastebil" þá er búið að breyta honum í vsk. bíl, nema að hver sem er má nota hann sem slíkann. Þess vegna eru allir flottu bílarnir t.d. C36 AMG staition, útbúnir sem sendibílar! :cry:

T.d kostar ML í sendibíla útgáfu aðeins 4,3 á móti 9,8 í venjulegri útgáfu :cry:

Furðulegar reglur :roll:
Já ekki nóg með það, heldur eru til að mig minnir 3 mismunandi útgáfur af þessum moms reglum (vsk reglur)

Það er hægt að kaupa bíl með gulum plötum sem má nota eins og manni sýnist.

Svo er hægt að kaupa bíl með gulum plötum sem má ekki fara á yfir landamærin, nema að sækja um sérstakt leyfi.

Og svo er hægt að kaupa bíl á gulum plötum sem má eingöngu nota í fyrirtækjarekstur.

Tollar á bíla eru í kringum 180% þarna, sem er samt ekki flokkaður sem tollur því EU bannar þeim að rukka svona mikinn toll. Þessvegna er þetta kallað "grønafgift" sem er einsskonar umhverfisgjald. Þess vegna má sjá margar bíltegundir í danmörku sem maður hélt að væru úttdauðar í fínu standi. Menn halda úti gömlu vögnunum eins lengi og það tollir á hjólunum.
En svo eru tollar á atvinnutæki ekki nema 20% og þessvegna eru mjög margir fínir leigubílar, sendibílar, og flutningabílar í danmörku.

Ég spurði nokkra af hverju það væri svona svívirðulega háir skattar af bílum hjá þeim og þeir sögðu flestis að þetta væri gert til þess að stemma við viðskiptahalla við útlönd sem er svo sem ágæt útskýring og gæti örugglega virkað hérna hjá okkur. En ég er ekki endilega hlynntur þessari aðferð frænda okkar.

Jamm danir eru soldið skrýtnir

Innsent: 05 Des 2005, 02:44
frá siggi_runar
JBV skrifaði:Glædelig jul på Ystegade!!! 8)
Ég kíkti nú þangað og sá þetta allt saman sko :D

Annars var þetta bara eitthvað ofar því að vera geðveikt.

Það eru líka ALLIR taxar á svæðinu þarna Mercedes Benz og flest allir nýjir E. Maður þarf ekki að vera að reyna að veiða sér Mercedes einsog hérna á landi eða setjast uppí gamlann fiat eða eitthvað, alveg garenteraður að fara í Mercedes.

Flott líka í Kristianiu, mjög öðruvísi.

Mig langar alveg að eiga heima þarna.

Sá annars ekkert eitthvað svona outstanding eitthvað... Einn Kleeman C hinsvegar og einn flottann 560Sec