Síða 1 af 2

Skv Mogganum er Ræsir búin að missa Daimler Chrysler umboðið

Innsent: 13 Feb 2004, 09:48
frá Bebecar
Sjokkerandi frétt en kemur alls ekki á óvart þar sem öll aðstaða þarna hefur verið óbreytt í 50 ár nánast og varla hægt að bjóða upp á þetta í svona gæðamerki.

Hver ætli taki við umboðinu og munum við sjá hækkandi varahlutaverð?

Innsent: 13 Feb 2004, 10:57
frá E 220T
Þetta líst mér illa á, enda hefur verkstæðið þeirra og varahlutaverð verið afar hagstætt að mínu mati.

Það er hins vegar ljóst að hægt væri að gera margt mun betur en þeir eru að gera.

Innsent: 13 Feb 2004, 13:02
frá Benzboy
Já maður er svona hálf hræddur en líka að sumu leyti ánægður. Málið er jú það að hjá Ræsi veit maður hvað maður hefur en þetta skapar óvissu sem er alltaf óþægileg. Hins vegar var opnun nýs Mercedes "umboðs" um daginn viss áminning um það hvað þetta umboða concept er í raun orðið úrelt.

Innsent: 13 Feb 2004, 13:29
frá gmg
Hér er fréttin : Tekin af mbl.is
Ræsir gefur frá sér Mercedes Benz-umboðið !!!!



Ræsir hf. mun ekki selja Mercedes Benz-bifreiðir beint frá verksmiðju eftir að viðræður við DaimlerChrysler AG um endurnýjun sölusamninga sigldu í strand. Ræsir hf. mun hins vegar halda áfram viðgerða- og varahlutaþjónustu.
Í fréttatilkynningu frá Ræsi hf. kemur fram að í framhaldi af BER (Block Exemption Regulation), reglugerð Evrópusambandsins þar sem samskipti og markaðsleikreglur bílaframleiðenda, umboðsmanna þeirra og neytenda eru skilgreindar, hafi DaimlerChrysler sett fram viðamikla og kostnaðarsama staðla sem taka mið af mun stærri mörkuðum en hinum íslenska. Þrátt fyrir að eigendur Ræsis hafi verið tilbúnir að leggja fram aukið fé til fyrirtækisins hafi samningar strandað á umfangi og framkvæmdahraða fjárfestinga sem staðlarnir gera kröfu um.

Ræsir hf. mun afgreiða þá bíla sem þegar hafa verið pantaðir og staðfestir, einnig þá lager- og sýningarbíla sem til landsins eru komnir.

Einnig segja talsmenn Ræsis að fyrirtækið muni áfram reka verkstæðis- og varahlutaþjónustu fyrir Mercedes Benz og Chrysler og kappkosta að veita viðskiptavinum sínum enn betri þjónustu en áður.

Engar breytingar eru fyrirsjáanlegar hvað varðar Mazda-bifreiðir, sem Ræsir hefur umboð fyrir.

Hallgrímur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ræsis hf., segir þær kröfur sem DaimlerChrysler gerir endurspegla viðleitni framleiðenda til að gera seljendum erfitt fyrir að opna ný útibú þegar markaðurinn verður frjáls í október 2005. "Hugsun þeirra er tvíþætt, annars vegar að halda betri stjórn á dreifikerfi sínu og hins vegar að aðstoða þá sem þegar eru í dreifikerfinu við að vernda fjárfestingu sína. Þetta gengur beint gegn ætlun Evrópusambandsins sem vildi auka samkeppni með setningu nýju BER-reglugerðarinnar." segir Hallgrímur og bætir við að Ræsir muni að sjálfsögðu reyna að uppfylla allar óskir viðskiptavina sinna, hvort sem þar er um að ræða bíla, viðgerðir eða varahlutaþjónustu.

DaimlerChrysler mun upplýsa um framtíðarfyrirkomulag sölumála bifreiða hér á landi þegar fram líða stundir.

Innsent: 13 Feb 2004, 14:53
frá Bebecar
það er bara aksjón í þessu. Þeir hefðu þurft að vera í hægri uppbyggingu og vera byrjaðir á henni fyrir löngu síðan.

En er þetta ekki bara sama dæmi og setti Veltir á hausinn á sínum tíma og Mazda umboðið gamla (byggt og búið)

Innsent: 13 Feb 2004, 20:18
frá gwagon
Þetta er dálagleg afmælisgjöf frá Daimler Chrysler til íslenskra Mercedes Benz eigenda á 50 ára innflutningsafmælinu.

Á að mótmæla? Og kvarta?

Svolítið skrítið að Íslendingar þurfi að fara eftir öllum reglum ESB án þess að vera í því.

Innsent: 13 Feb 2004, 20:24
frá Benz
Reyndar var Mercedes-Benz fluttur inn áður en Ræsir fékk umboðið en þeir hafa flutt hann inn í 50 ár

Innsent: 13 Feb 2004, 21:29
frá gwagon
Benz skrifaði:Reyndar var Mercedes-Benz fluttur inn áður en Ræsir fékk umboðið en þeir hafa flutt hann inn í 50 ár
Ég átti að sjálfögðu við 50 innflutningsafmæli Ræsis sem er að láta frá sér umboðið.

Innsent: 13 Feb 2004, 22:34
frá Benz
OK

Innsent: 14 Feb 2004, 22:10
frá sveinn
Þetta mál snýst allt um lög sem taka gildi næsta haust, þar sem einkaumboð verða aflögð í ríkjum innan Evrópubandalagsins. Til þess að fyrirbyggja að hinir ýmsu vanbúnir einstaklingar taki að flytja inn bifreiðar án þess að hafa neina yfirbyggingu og möguleika til þjónustu við kaupandann, þá hefur DC sett upp viðmiðunarreglur sem erfitt er að uppfylla í smáríki eins og hér Íslandi. Þeir hjá DC setja upp kröfur um eign innflytjandans á sýningarbílum og aðstöðu til sýninga þeirra. Sumar þessar kröfur eru mjög óraunhæfar, eins og t.d. í kringum vörubílaeign innflytjandans og aðstöðu í kringum þá. Þeir gera þá kröfu til þerra sem hyggja á innflutning á nýjum Mercedes-Benz að þeir kaupi af DC um 22 fólksbíla, held ég, og hafi aðstöðu til sýninga á þeim. Til samanburðar má geta þess að Toyota framleiðandinn á allar sýningabifreiðar hér á landi. Málið er að hér er um óraunhæfar kröfur til innflytjanda í smáríki eins og Íslandi. Þetta eru sjálfsagt nýjar reglur sem DC á eftir að aðlaga að þörfum okkarra og annarra sambærilegra þjóða. Vonandi er þetta bara eitthvað millibilsástand.

Annars eru Ræsismenn sjáfir betur í stakk búnir til að svara fyrir þessa uppákomu.