Síða 1 af 1

Ljósmyndun

Innsent: 27 Ágú 2003, 21:04
frá HHS
Einhverjir hérna hafa sjálfsagt áhuga á að taka betri og skemmtilegri myndir af Benzanum sínum.

ég rakst á þetta skemmtilega "tutorial" og sem gæti vonandi leitt til þess að einhverjir fari út og prófi sig áfram með myndavélina :

http://mercedesshop.com/shopforum/showt ... adid=62969



...og sýni árangurinn hérna á spjallinu.

Innsent: 27 Ágú 2003, 21:22
frá Benzboy
Maður er alltaf að fikta við þetta, hér er árangurinn so far:

http://www4.mmedia.is/bergthb/beggi_bilasida.htm

Re: Ljósmyndun

Innsent: 27 Ágú 2003, 23:37
frá Mercedes-Benz
HHS skrifaði:Einhverjir hérna hafa sjálfsagt áhuga á að taka betri og skemmtilegri myndir af Benzanum sínum.

ég rakst á þetta skemmtilega "tutorial" og sem gæti vonandi leitt til þess að einhverjir fari út og prófi sig áfram með myndavélina :

http://mercedesshop.com/shopforum/showt ... adid=62969



...og sýni árangurinn hérna á spjallinu.
Þetta eru mjög skemmtilegar myndir. Hér er ein íslensk tekin af mér sjálfum. Reyndar er þetta jólamynd, en hana notaði ég á jólakort eitt árið.

http://www.stjarna.is/images/MK24820Sk0000.JPG

Innsent: 28 Ágú 2003, 13:43
frá sveinn
Ég var að fjárfesta í nýrri myndavél um daginn og að sjálfsögðu var 6.3 eitt af fyrstu myndefnunum. Þetta er Olympus vél með 10x optical zoom og ég fékk þessa vél nýja á 40þús á eBay (kostar ný með þeim hlutum sem ég fékk með 100þús í Bræðurnir Ormson). Mér finnst þessi vél skila frábærum myndgæðum og ég verð að segja að ég gapi yfir sumum myndunum, sérstaklega þeim sem ég hef tekið af dætrum mínum. Sama daginn og ég fékk vélina stalst ég hér úr vinnunni upp að Rauðavatni, sem er hér í næsta nágreni, og tók nokkrar myndir af bílnum. Þessar myndir eru þær einu sem ég er með aðgengilegar hér í vinnunni og þær er hægt að sjá hér (myndirnar eru mikið smækkaðar);

300SEL 6.3 framan
300SEL 6.3 aftan
300SEL 6.3 vöðvinn

Ég notaði ekkert zoom í þessum myndum, en það kemur mjög vel út þegar myndirnar eru teknar úr dálítilli fjarlægð því þá verður bakgrunnurinn svona blörraður. Ég tók nokkrar þannig myndir af bílnum við ágæt birtuskilyrði uppi við Perlu um daginn. Í bakgrunninum voru mjög hávaxin strá sem fylltu út í myndina. Kom mjög vel út.

Með þessari myndavél er einnig hægt að taka mjög nákvæmar nærmyndir (micro). Ég tók t.d. þannig mynd af auðkennisspjaldinu undir húddinu og sú mynd er hrikalega skýr og eins og tekin úr smásjá.

Innsent: 28 Ágú 2003, 18:53
frá Benzboy
Til lukku með græjuna, þetta eru mjög flottar myndir (og gott myndefni

Innsent: 29 Ágú 2003, 20:47
frá HHS
skemmtilegar myndir hjá ykkur

Innsent: 30 Ágú 2003, 19:57
frá Ztebbsterinn
Benzboy skrifaði:Maður er alltaf að fikta við þetta, hér er árangurinn so far:

http://www4.mmedia.is/bergthb/beggi_bilasida.htm
Þetta er vel laglegur bíll hjá þér, nú þarf maður að fara að mynda sinn, þá fyrir og eftir

Innsent: 30 Ágú 2003, 22:04
frá Benzboy
Ztebbsterinn skrifaði:Þetta er vel laglegur bíll hjá þér, nú þarf maður að fara að mynda sinn, þá fyrir og eftir
Takk fyrir það, já endilega taka fyrir og eftir myndir - gaman að sjá hvað menn eru að dunda sér við