Síða 1 af 2

Stöndum saman

Innsent: 11 Apr 2005, 17:17
frá Dóri
Á Bylgjunni www.bylgjan.is er í dag skoðunnarkönnun um hvort setja eigi hraðatakmarkar í bíla. :evil:

Stöndum saman og svörum þessu allir neikvætt. :!:

Innsent: 11 Apr 2005, 17:36
frá Benzboy
Done

hraðatakmörkun

Innsent: 11 Apr 2005, 17:39
frá mercy
Það er nú bara hálfvitalegt að láta sér detta þetta í hug, ég persónulega vann í 7ár á rútu með takmarkara og kom það sér oft illa því það segjir sér sjálft að til að taka fram úr öðru ökutæki þarftu að auka hraða en ef bill er á 75-80 er frekar seinlegt og erfitt að framkvæma þetta því eins og við vitum þá kunna all margir 'Islendingar ekki að keyra og eru rokkandi með hraða svona 70 til 100 ég veit að minni rútur eins og 16 manna benz þurfa ekki að hafa takmarkara en eru með cruse í staðinn sem er mun betri kostur hitt er bull og vitleysa takk fyrir

Innsent: 11 Apr 2005, 18:53
frá Laurel
Ég skoðaði einu sinni reglugerðina um hraðatakmarkara í rútum og
vörubílum.
Hún segir að vörubílar skuli takmarkaðir við 90 km/h hámarkshraða
og rútur við 100 km/h (alveg eðlilegt að rúturnar megi fara hraðar,
þær eru með svo ómerkilegan farm), en það sem ég var mest hissa á
er að sama reglugerð segir að mótorhjól skuli vera takmörkuð við
90 km/h :!: .
Ekki man ég nokkurn tímann eftir að hafa heyrt um mótorhjól sem
var útbúið hraðatakmarkara :twisted:

Innsent: 11 Apr 2005, 18:57
frá siggi_runar
Laurel skrifaði:Ég skoðaði einu sinni reglugerðina um hraðatakmarkara í rútum og
vörubílum.
Hún segir að vörubílar skuli takmarkaðir við 90 km/h hámarkshraða
og rútur við 100 km/h (alveg eðlilegt að rúturnar megi fara hraðar,
þær eru með svo ómerkilegan farm), en það sem ég var mest hissa á
er að sama reglugerð segir að mótorhjól skuli vera takmörkuð við
90 km/h :!: .
Ekki man ég nokkurn tímann eftir að hafa heyrt um mótorhjól sem
var útbúið hraðatakmarkara :twisted:
Svona af því sem maður hefur séð þá væri líklegra að hraðatakmarkarinn í hjólum væri staðsettur í 190 km/h.

Innsent: 11 Apr 2005, 20:44
frá Benz
Done

Innsent: 12 Apr 2005, 00:13
frá Mercedes-Benz
Það reyndar á að setja hraðatakmarkara í öll "stórhættuleg" ökutæki að mínu mati, og á ég hér við mjög mikið breytta fjallajeppa (Patrol á 44" og Hi-Lux á 38" sem dæmi) . Hvers vegna á slíkur bumbubarðabíll skítmixaður í Íslenskum bílskúr að fá að fara hraðar en 5 tonna ökutæki sem hannað er í bílaverksmiðju með öllum öryggiskröfum sem gerðar eru til slíkra ökutækja?

Það er hraðatakmarkari í Flutningabílum og ég tel hann sérstaklega nauðsynlegar í olíubílum. Varðandi rútur og aðra hópferðabíla eins og strætisvagna ( sem ég hef stundum ekið) sé ég ekki alveg hvers vegna þessir bílar eiga ekki að vera búnir slíkum búnaði sem stilltur er á hóflega ferð 90-100km í rútu og 80 í strætisvögnum. Það er 90 km hámarkshraði á Íslenskum þjóðvegum og 80 er hámark innanbæjar og þetta er bara fullnóg fyrir þessar græjur.

Því miður vegna þeirra launa sem í boði eru fyrir starfsmenn við akstur á Íslandi veljast stundum einstaklingar á svona stór ökutæki sem eru alls ekki starfi sínu vaxnir og alveg furða að þeir hafi yfir höfuð bílpróf þó ekki væri nema bara á fólksbíl. Vissulega er ekki átt hér við bílstjórastéttina í heild sinni sem státar líka af mjög vönduðum mönnum sem kunna sitt fag. En svona búnaður er fyrst og fremst hugsaður til að passa skussana og hinir líða fyrir það.

Ég er hinsvegar algerlega á móti því að svona búnaður verði settur í fólksbíla. lítið breytta jeppa, sendibíla, smárútur, pallbíla og önnur hóflega vaxin ökutæki upp í 3,5 tonn að heyldarþyngd.

Kosið var á móti í þessari kosningu.

Innsent: 12 Apr 2005, 09:40
frá sveinn
Hver borgar kostnaðinn af svona búnaði? Hver borgar fyrir tækið, uppsetningu þess og viðhald? Er það einstaklingurinn? Vitiði það?

Ég er alfarið á móti því að svona búnaður sé settur í fólksbíla, því þetta leysir ekki nema brot af vandamálinu. Ef hámarkshraðinn er stilltur á 100km/klst þá getur þú ekið á þeim hraða þar sem hámarkshraði er t.d. 30! Þetta leysir ekkert varðandi hraðakstur innanbæjar!

Innsent: 12 Apr 2005, 15:44
frá Ásgeir Yngvi
sveinn skrifaði: Ef hámarkshraðinn er stilltur á 100km/klst þá getur þú ekið á þeim hraða þar sem hámarkshraði er t.d. 30! Þetta leysir ekkert varðandi hraðakstur innanbæjar!
akkúrat það sem ég var að hugsa,, enda held ég að það verði aldrei neitt úr þessu.. þetta er bara hugdetta sem aldrei verður að veruleika.