Síða 1 af 1
Raunhæft verð ?
Innsent: 08 Mar 2005, 20:15
frá Hlynzi
http://www.simnet.is/hlynzi/
Er raunhæft að vilja fá 300 þúsund fyrir þennan bíl, með aukafelgugang og því sem kemur fram á síðunni ?
Innsent: 09 Mar 2005, 21:01
frá arnilst
Það er ári eldri stríheill 230 bíll auglýstur í Fréttablaðinu á 250.000kr. Hann er ekki með jafn mikið sjáanlegt ryð og þinn. Aðeins 2 eigendur og bíll í mjög flottu standi.
Innsent: 09 Mar 2005, 23:05
frá gmg
Er ekki bara raunhæft verð það sem að einhver er tilbúinn að borga fyrir bílinn ????
Innsent: 09 Mar 2005, 23:12
frá Mercedes-Benz
Verðið á bílnum ræðs eingöngu af því hvað kaupandi vill borga og hvað seljandi vill selja á. Púnktur.
Ég tel ekkert óraunhæft að borga 300 kall fyrir svona bíl ef hann er í þokkalegur lagi. Ég myndi frekar vilja kaupa bíl með örfáum ryðblettum sem hægt er að laga heldur en bíl sem lítur vel út og er allur í rusli.