Síða 1 af 1

W124 E420E

Innsent: 01 Maí 2015, 18:19
frá Ljónshjarta
Sælir meðlimir, var að spá hvort að það sé einhvað til af þessum bílum sem eru til sölu og var að vonast eftir smá fróðleik um þessa bíla, hvað þarf að varast í m119 og hvað eru góðir kostir og gallar.

Vonast eftir góðum svörum :tumbsup:.
Kv Ljónshjarta.

Re: W124 E420E

Innsent: 03 Maí 2015, 07:02
frá Hlynzi
Yfirleitt eru einhverjir til sölu, aðallega á bilasolur.is , M119 vélarnar virðast vera þokkalegar, sýnist helst oft spurning með háspennukefli og kertaþræði, loftflæðiskynjari bilar stundum. Verst er þegar throttle body fer að verða leiðinlegt, en rafmagnsvírarnir inní því skemmast, einangrunin þornar upp og brotnar, auðvellt að skipta um þá svosem, en ágætt að hafa það í huga, ásamt mótorlúminu, léleg einangrun í of miklum hita í þessum köplum.

Næst eru svo fjöðrunaríhlutir, stífur, balance-stangarfóðringar og annað slíkt. Bremsurnar í þeim eru einnig stórar og dýrar, á þetta gömlum bíl myndi ég íhuga uppgerð á dælum (þ.e. nýjar pakkningar, tiltölulega lítil vinna) líklegt er líka að handbremsan sé biluð.
Svo ryðgar þetta eins og allir W124, E420 eru hinsvegar dýrir svo þeir eru almennt séð með betri umgengni og þar af leiðandi minna ryð.

Re: W124 E420E

Innsent: 03 Maí 2015, 12:25
frá hjalti.g
Það sem þarf að varast er að vél sé vel gangfær og helst búið að skipta um hluti eins og kveikjulok og hamra, en það eitt og sér kostar rúm 100 þúsund í þessa bíla, loftflæðiskynjari hefur einnig bilað og uppgefið verð fyrir hann í Öskju er 320 þús en það er hægt að ná honum að utan fyrir c.a. 100 þús. Vélarlúm er einnig dýrt en þú ert alltaf að tala um einhver 200 c.a. fyrir það. Bremsubúnaður er líka dýr þar sem þetta er allt sverara í 8 cylinndra bílnum. Þannig að það er talsvert atriði að finna bíl sem er búið að endurnýja talsvert í :wink: