Síða 1 af 2

Ganga w210 felgur á w202?

Innsent: 03 Maí 2014, 20:28
frá Ásgeir Yngvi
Ganga w210 felgur á w202 bíl ?

Bara svona til að spara mér mátunarferlið ;)

Re: Ganga w210 felgur á w202?

Innsent: 03 Maí 2014, 21:19
frá gmg
Ég myndi halda það

Re: Ganga w210 felgur á w202?

Innsent: 03 Maí 2014, 23:24
frá BaraBenz

Re: Ganga w210 felgur á w202?

Innsent: 03 Maí 2014, 23:59
frá Pascalpals
Ætli það fari nú ekki bara eftir stærð felganna, en ef þú ætlar að setja 15 eða 15 tommu undir, ætti það að sleppa auðveldlega.

Re: Ganga w210 felgur á w202?

Innsent: 04 Maí 2014, 08:54
frá BaraBenz
Pascalpals skrifaði:Ætli það fari nú ekki bara eftir stærð felganna, en ef þú ætlar að setja 15 eða 15 tommu undir, ætti það að sleppa auðveldlega.
Það er nú ekki alls kostar víst. Það er ástæðan fyrir mismunandi ET og menn eru að eltast við það. Felgurnar fara mis langt inn eða út miðað við miðjusetningu. Rekast í bremsurnar. Það er nú ástæðan fyrir því að menn eru að nota milliplötur ("spacera").

Ég fékk einu sinni felgur af C bíl og þær pössuðu ekki undir W124 ( rakst í bremsurnar ).

Re: Ganga w210 felgur á w202?

Innsent: 05 Maí 2014, 14:02
frá Logi
W210 felgur koma ekki vel út undir W202, standa innarlega! W202 á að vera með lægra ET en W210.

Re: Ganga w210 felgur á w202?

Innsent: 05 Maí 2014, 21:32
frá Ásgeir Yngvi
Það hljómar ekki nógu spennandi :|

Re: Ganga w210 felgur á w202?

Innsent: 06 Maí 2014, 22:53
frá gmg
Ásgeir Yngvi skrifaði:Það hljómar ekki nógu spennandi :|
Bara máta, ef að þær eru of innarlega þá er bara að fá sér spacera !

Re: Ganga w210 felgur á w202?

Innsent: 15 Jún 2014, 01:59
frá valdi
ég hef notað sömu felgur á milli w124,w201,w202,w210 og allt fittað fínt á milli, 15", 16", 17" og 18" felgur... bara prófa ;)

Re: Ganga w210 felgur á w202?

Innsent: 15 Jún 2014, 11:46
frá Logi
valdi skrifaði:ég hef notað sömu felgur á milli w124,w201,w202,w210 og allt fittað fínt á milli, 15", 16", 17" og 18" felgur... bara prófa ;)
Já þetta passar allt á milli, en lúkkar stundum ekkert of vel :mrgreen: