Síða 1 af 2

180 Benzinn hans Guðfinns bílasala V553

Innsent: 23 Jan 2005, 14:07
frá arnilst
Mér finnst hræðilegt að sjá hinn fyrrum virðulega Vestmannaeyja ´58 180 Benz, sem lenti í höndum Guðfinns bílasala, standa úti allt árið sem hrikalega ljótt auglýsingaskilti.

Bíllinn er farinn að ryðga og það er sorglegt að sjá svona bíl grotna niður í höndunum á einhverjum asna sem veit ekkert hvað hann er með í höndunum..

Innsent: 23 Jan 2005, 14:20
frá Björgvin
Já mér finnst til skammar að hann skuli ekki hafa gert bílinn upp heldur sett einhverja ógeðslega auglýsingum um einhverja bílaþvottastöð sem er staðsett á skrifstofunni á bílasölunni Þetta er gullfallegur bíll sem þarf að bjarga úr höndum þessa manns áður en hann eyðileggur hann alveg!!!


Kveðja

Innsent: 23 Jan 2005, 15:06
frá sveinn
Muniði eftir rauða hekkaranum sem stóð uppi á stalli þegar hann var með bílasölu við Vatnsmýrarveg? Sá grotnaði nú niður uppi á því hásæti! ...en mönnum er víst frjálst að gera það sem þeir vilja við eigur sínar.

Innsent: 23 Jan 2005, 17:12
frá Benz
Já,þetta er hræðileg meðferð, en svona fara flestir antik bílarnir hans Guffa

Innsent: 23 Jan 2005, 20:24
frá gmg
Þetta er að verða Guffa-grín

En ég er sammála þessu, það er leiðinlegt að sjá þennan antik bíl sem eitthvað auglýsingaskilti

Innsent: 23 Jan 2005, 20:36
frá Óli Kol

Innsent: 23 Jan 2005, 21:54
frá elfar
Ég veit að þetta er soldið off topic hérna hjá mér en ég hef verið að velta fyrir mér meðalaldri bíla þeirra sem taka þátt í þessum umræðum hér á stjörnunni... væri kannski gaman að taka það saman?

Innsent: 24 Jan 2005, 01:16
frá HHS
var það ekki rúnar hér sem gerði þennan bíl upp fyrir ekki svo löngu?