Síða 1 af 2
Vönduð vinnubrögð?
Innsent: 22 Jan 2005, 02:35
frá sveinn
Vönduð vinnubrögð?
Deyr fé, deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír deyr eigi þeim,
er góðan sér um getur.
Úr Hávamálum.
Hér fyrir neðan eru myndir úr skottinu úr 560SEC bílnum hjá mér. Tveim mánuðum áður en ég keypti bílinn, eða í byrjun desember 2003, lét fyrrverandi eigandi bílsins Nesradíó setja fjarstýrða samlæsingu i bílinn. Tilboð sem kostaði aðeins 15.000kr. Ég læt ykkur eftir að dæma vinnubrögðin;
[img]
http://www.stjarna.is/fornbilar/img/mis ... radio1.jpg[/img]
[img]
http://www.stjarna.is/fornbilar/img/mis ... radio2.jpg[/img]
[img]
http://www.stjarna.is/fornbilar/img/mis ... radio3.jpg[/img]
Fyrir utan smá vandræði í hvert skipti sem ég hreyfi varadekkið, þá er þetta kannski svona allt í lagi... þaggi?
Innsent: 22 Jan 2005, 03:06
frá HHS
Ungur var eg forðum,
fór eg einn saman:
þá varð eg villur vega.
Auðigur þóttumst
er eg annan fann:
Maður er manns gaman
úr Hávamálum
bara vera með..
enn þetta er nú ljóta víraflækjann.......
Innsent: 22 Jan 2005, 09:37
frá Benz
Ég myndi nú fara aftur til þeirra og sýna þeim þetta.Þeir laga þetta örugglega, hef sjálfur skipt mikið við þá
Innsent: 22 Jan 2005, 11:18
frá Hlynzi
Þetta er mjög ófagleg vinnubrögð.
Allavegana í mínum benza eru plast spjöld sitthvorum megin í skottinu, og ef það yrði sett fjarstart í þann bíl yrði það fest á hann, innan við plastið, og VEL gengið frá öllum vírum. Svona býður bara uppá styttri endingu og sambandsleysi (að maður nefni ekki rakann sem er oft í skottinu)
Innsent: 22 Jan 2005, 12:40
frá Björgvin
Þetta finnst mér nú mjög furðuleg vinnurbrögð og ekki það sem ég hef kynnst af Nesradío því ég hef ALLTAF fengið toppþjónustu hjá þeim og fer aldrei annað en til þeirra ef það þarf að fikta eitthvað í rafmagni eða græjum í bílum hjá mér! Ég myndi drífa mig með þetta til hans Gumma í Nesradíó og sýna honum þetta og ég get nánast lofað því að hann mun lagfæra þetta!
Kveðja
Innsent: 22 Jan 2005, 13:55
frá sveinn
Ég var að vinna í bílnum niðri í skúr í gærkvöldi, vegna þess að það er kominn einhver draugur í samlæsinguna. Búinn að smyrja allar læsingar og yfirfara alla loftloka. Þetta fúsk þarna í skottinu í tengslum við fjarstýringuna hefur farið í taugarnar á mér frá því að ég rak augun í þetta fyrst. Þegar ég var að taka varadekkið úr þarna í gærkvöldi var mér nóg boðið og varð reiður yfir þessum vinnubrögðum. Viðbrögðin mín voru að ég fór beint upp og sótti myndavélina, ég mundi síðan eftir því að reikningurinn var á milli sætanna þegar ég keypti bílinn, með dagsetningu frá því tveim mánuðum áður. Ég ákvað að taka mynd að honum líka. Síðan varð mér hugsað til Hávamála vegna orðsporsins.
Kannski hefði ég átt að kæla mig niður og bíða fram á mánudaginn og fara í Nesradíó og bjóða þeim að laga þetta áður en ég auglýsti vinnubrögðin hér. Hef aldrei átt viðskipti við þá og aðeins heyrt af þeim af góðu. En þetta er yfirþyrmandi fúsk. Því er ekki hægt að neita.
Innsent: 22 Jan 2005, 16:53
frá gmg
Þetta kemur mér á óvart .
Ég hef alltaf verzlað við Gumma hjá Nesradíó og þekki þá eingöngu af fagmennsku, þú verður að koma þarna við á mánudaginn og leifa Gumma að skoða þetta og ATH. hvort þetta sé eftir þá.
Getur ekki verið að gaurinn sem að þú kaupir af, hafi sett þetta sjálfur í en keypt búnaðinn í Nesradíó ?
Innsent: 22 Jan 2005, 17:53
frá sveinn
Seljandi bílsins sagði að hann hafi látið setja þetta í bílinn. Nótan var í bílnum þar sem tilgreind var vinna. Ég man eftir því að á þessum tíma var verið að bjóða svona fjarstýringar með ísetningu á 15.000kr. Hvað getur maður annað en ályktað að Nesradíó hafi séð um ísetninguna? Ég ætla að fara til þeirra í næstu viku og láta þá dæma um þetta, svo ég sé ekki að hafa þá fyrir rangri sök.
Það þarf töluverða rafmagnsþekkingu til þess að tengja þetta inn í rafkerfi bílsins, þannig að ég hef enga trú á því að eigandinn hafi gert þetta sjálfur.
Innsent: 22 Jan 2005, 18:42
frá Björgvin
Myndi eindregið mæla með að þú farir til þeirra og látir þá kíkja á þetta þannig að þeir hafi möguleika að lagfæra þessi fúsk vinnubrögð sem hafa farið fram þarna því það er nú oft innan þessara fyrirtækja sem fúskarar koma inn til starfa sem geta skilað slæmu verki og komið óorði á fyrirtæki sem venjulega er ekki þekkt nema af góðu!
Kveðja
Innsent: 23 Jan 2005, 00:14
frá Benz
Hef tekið eftir því að ef Guðmundur er í fríi, þá hefur verið svolítið um svona ljót vinnubrögð.