Síða 1 af 1
Kaup á 230CE
Innsent: 08 Sep 2013, 17:19
frá lexxinn
Góðan daginn, ég hef verið að skoða einn svakalega flottann 230ce bíl sem ég er verulega hrifinn af. Enn einn galli sem ég er í miklum vafa um. Þegar bílnum er ekið frá 0-ca15 þá er einhver titringur sem ég átta mig ekki alveg á, eftir 15-20km hraða þá hættir það. Eigandi segir það ekkert hrjá bílinn en þetta stoppar mig eitthvað. Hvað hafið þið að segja um svona?
Re: Kaup á 230CE
Innsent: 08 Sep 2013, 17:36
frá JBV
Mögulega mótorpúðarnir, jafnvel ballanceringin á dekkjum röng.
Re: Kaup á 230CE
Innsent: 08 Sep 2013, 22:43
frá lexxinn
JBV skrifaði:Mögulega mótorpúðarnir, jafnvel ballanceringin á dekkjum röng.
Fannst þetta eitthvernveginn ekki vera ballanceringin þar sem það fannst ekkert þegar ég hægði niður, eftir 15eða20 og fann heldur ekkert við að bremsa. Gerum ráð fyrir að þetta sé mótorpúðarnir, er það stór viðgerð? eða peningalegaséð?
Re: Kaup á 230CE
Innsent: 09 Sep 2013, 09:17
frá JBV
Ef þetta eru mótorpúðarnir, þá kosta þeir enga stóra aura. En vinna á verkstæði gæti tekið í veskið. Ef þú hefur tök á, þá mæli ég með að þú lítir við með bílinn hjá Bíla-Doktornum, D&C eða Öskju til að meta hvað þurfi að gera.
Re: Kaup á 230CE
Innsent: 21 Sep 2013, 11:45
frá Alpina
Finnst einnig að HJÖRULIÐSKROSS gæti verið möguleiki
Re: Kaup á 230CE
Innsent: 03 Okt 2013, 00:55
frá íbbi
já hljómar eins og kross, nema það sé upphengja á skaptinu